Sælir,
Ég er að fara að kaupa mér skjákort og var að spá í í hvaða korti er maður er að fá mest fyrir peninginn, er það Ati radion 9700 eða geforce ti eða hvað.
(Vil ekkert drasl)
Það er bæði komin Radeon 9200, 9600 og 9800 svo eru líka komin ný Geforce FX kort, með mun betri kælingu.
En ef ég ætti mikinn pening mindi ég skella mér á Radeon 9700 Pro eða All-In-Wonder [tv-out og -inn)
En ef ég væri aðeins að spara mindi ég fara í boðeind og skella mér á ASUS Geforce 4 Ti-4200 128 mb
Ég hef alltaf verið með GeForce kort, og er með GF4 4600 í dag.
Samt myndi ég aldrei fá mér GeForce FX kortið í dag af ýmsum ástæðum:
1. Alltof dýrt (mv. Radeon 9700 PRO)
2. Alltof stórt (tekur 2 slot!)
3. Performar ekki eins vel og ég bjóst við
Nýju GeForceFX 5200 & 5600 eru *slæm fjárfesting* að mínu mati, þeir standa sig verr undir venjulegum kringumstæðum í DirectX8 leikjum heldur en GeForce4 Ti4200 !!! Þeir njóta sín hinsvegar mun betur en Ti4200 í DirectX9 leikjum... en að sama skapi þá er Radeon9500 Pro mun betri í DirectX9 og er í svipuðum verðflokki. Mín ráðlegging: GLEYMIÐ NVIDIA í bili. Þeir eru búnir að klúðra þessu öllusaman. Ef þú ætlar að kaupa skjákort fyrir leiki næsta árs þá mæli ég eingöngu með Radeon9500PRO-9600-9700-9800