Munur að vera með hljóðkort?

Skjámynd

Höfundur
Frost
Besserwisser
Póstar: 3288
Skráði sig: Sun 16. Ágú 2009 02:30
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Munur að vera með hljóðkort?

Pósturaf Frost » Fim 04. Feb 2010 22:36

Sælir. Ég hef nú lengi verið að skoða hljóðkort og vera að spá í einu sérstöku. Er einhver munur að vera með hljóðkort í tölvunni eða nota þetta hefðbundna hljóð frá móðurborðinu?

Einn af vinum mínum er með hljóðkort og það er svakalegt vesen í kringum það. Hann getur heyrt bæði í heyrnatólum og hátölurum á sama tíma. Væri fínt að vita hvort einhver væri að leinda í sömu vandræðum og er einhver munur að vera hljóðkort.


Tölva, 2 skjáir, Alltof mörg lyklaborð, þráðlaus mús og næs heyrnatól

Skjámynd

mercury
Besserwisser
Póstar: 3458
Skráði sig: Fös 31. Júl 2009 16:15
Reputation: 64
Staða: Ótengdur

Re: Munur að vera með hljóðkort?

Pósturaf mercury » Fim 04. Feb 2010 22:42

þetta er bara stillingaratriði hvort að hljóðið komi bara úr annari rásinni eða báðum samtímis. og ef það væri ekkert gegn í þessum hljóðkortum væri varla verið að framleiða þau.
fyrir mína parta nægir mér alveg hd 7.1 hljóðkortið á móðurborðinu en fyrir suma er það ekki nógu gott ;)



Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2753
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Reputation: 166
Staða: Ótengdur

Re: Munur að vera með hljóðkort?

Pósturaf SolidFeather » Fim 04. Feb 2010 22:45

Hljóðkort processar hljóðið svo að örgjörvinn þurfi ekki að gera það ásamt því að gefa yfirleitt betra hljóð og t.d. EAX stuðning. Ég er með X-Fi Fatality sem kemur með audio bay og um leið og ég sting heyrnartólunum í samband þá kemur ekkert hljóð úr hátölurunum.



Skjámynd

Hnykill
Of mikill frítími
Póstar: 1864
Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
Reputation: 85
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Munur að vera með hljóðkort?

Pósturaf Hnykill » Fim 04. Feb 2010 22:56

Meira segja AC97 sem er low cost kubbur, innbyggður á mörg móðurborð í dag er með EAX stuðning, og EAX 2 meira segja.. meir og meir eru innbyggð hljóðkort að taka yfir sérframleiðendur, og af góðri ástæðu. innbyggð hljóðkort á móðurborðum í dag er langt frá því að vera eitthvað drasl.

Eina ástaðan í dag fyrir að kaupa sér pci/pci-x hljóðkort er ef þú ert í einhverskoanar studio/hljóðvinnslu


Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.

Skjámynd

mind
1+1=10
Póstar: 1123
Skráði sig: Fim 12. Des 2002 09:21
Reputation: 31
Staða: Ótengdur

Re: Munur að vera með hljóðkort?

Pósturaf mind » Fim 04. Feb 2010 23:00

Tek undir með hinum.

Í flest öllum tilvikum græðir viðkomandi ekkert á því að fá sér stakt hljóðkort.
Yfirleitt er peninginum alltaf betur notaður í heyrnatól/hátalara.

Reyndar er einn annar ókostur sem er við innbyggðu hljóðkortin. Hún er sú að þau eru oft með meira suð en viðbætt sökum þess hversu þétt þessu er öllu pakkað á móðurborðið.

En enn og aftur þá þarftu að vera með nægilega góð heyrnatól/hátalara til að verða var við það.



Skjámynd

Gunnar
Vaktari
Póstar: 2402
Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
Reputation: 70
Staðsetning: 105 Reykjavík
Staða: Tengdur

Re: Munur að vera með hljóðkort?

Pósturaf Gunnar » Fim 04. Feb 2010 23:02

en ef það heyrist lítið lágtíðnisuð í hátölurum/headsetti?
er það þá ekki aflgjafinn?




SteiniP
Bara að hanga
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 16. Jún 2008 21:54
Reputation: 1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Munur að vera með hljóðkort?

Pósturaf SteiniP » Fim 04. Feb 2010 23:09

Innbyggt hljóð á móðurborði hljómar eins og ryðgaður nagli á krítartöflu miðað við alvöru hljóðkort. (þá er ég að tala um þessa basic Realtek HD audio eða AC'97 kubba)
Meira að segja gamla Audigy 2 er að skila mun tærari hljóm heldur en nútíma onboard stýringar.

Hljóðkortið sem ég er með núna (Auzentech X-fi Forte) er með innbyggðum headphone magnara og heyrnartólin hafa aldrei hljómað jafn vel.

En auðvitað borgar það sig ekki að vera að spreða tugþúsundum í hljóðkort ef þú ert með 5000 króna hátalara eða heyrnartól úr tiger.



Skjámynd

Hnykill
Of mikill frítími
Póstar: 1864
Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
Reputation: 85
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Munur að vera með hljóðkort?

Pósturaf Hnykill » Fim 04. Feb 2010 23:17

mind skrifaði:Tek undir með hinum.

Í flest öllum tilvikum græðir viðkomandi ekkert á því að fá sér stakt hljóðkort.
Yfirleitt er peninginum alltaf betur notaður í heyrnatól/hátalara.

Reyndar er einn annar ókostur sem er við innbyggðu hljóðkortin. Hún er sú að þau eru oft með meira suð en viðbætt sökum þess hversu þétt þessu er öllu pakkað á móðurborðið.

En enn og aftur þá þarftu að vera með nægilega góð heyrnatól/hátalara til að verða var við það.


Suðið kemur því tölvan er ekki jarðtengd, leiðir út auka rafmagn og þetta er hljóðið sem kemur af því ;) .. ég er sjálfur með rafmagnskapal tengdan aftan í kassan og í ofninn í herberginu hinu megin til að leiða auka straum ;)


Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.

Skjámynd

Hnykill
Of mikill frítími
Póstar: 1864
Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
Reputation: 85
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Munur að vera með hljóðkort?

Pósturaf Hnykill » Fim 04. Feb 2010 23:20

SteiniP skrifaði:Innbyggt hljóð á móðurborði hljómar eins og ryðgaður nagli á krítartöflu miðað við alvöru hljóðkort. (þá er ég að tala um þessa basic Realtek HD audio eða AC'97 kubba)
Meira að segja gamla Audigy 2 er að skila mun tærari hljóm heldur en nútíma onboard stýringar.

Hljóðkortið sem ég er með núna (Auzentech X-fi Forte) er með innbyggðum headphone magnara og heyrnartólin hafa aldrei hljómað jafn vel.

En auðvitað borgar það sig ekki að vera að spreða tugþúsundum í hljóðkort ef þú ert með 5000 króna hátalara eða heyrnartól úr tiger.

með ac97 t.d ..bara stilla mixerinn og annað sem fylgir þessu.. ég átti líka audigy 2 á sínum tíma, munar engu =)


Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.


SteiniP
Bara að hanga
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 16. Jún 2008 21:54
Reputation: 1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Munur að vera með hljóðkort?

Pósturaf SteiniP » Fim 04. Feb 2010 23:32

Hnykill skrifaði:
SteiniP skrifaði:Innbyggt hljóð á móðurborði hljómar eins og ryðgaður nagli á krítartöflu miðað við alvöru hljóðkort. (þá er ég að tala um þessa basic Realtek HD audio eða AC'97 kubba)
Meira að segja gamla Audigy 2 er að skila mun tærari hljóm heldur en nútíma onboard stýringar.

Hljóðkortið sem ég er með núna (Auzentech X-fi Forte) er með innbyggðum headphone magnara og heyrnartólin hafa aldrei hljómað jafn vel.

En auðvitað borgar það sig ekki að vera að spreða tugþúsundum í hljóðkort ef þú ert með 5000 króna hátalara eða heyrnartól úr tiger.

með ac97 t.d ..bara stilla mixerinn og annað sem fylgir þessu.. ég átti líka audigy 2 á sínum tíma, munar engu =)

Kannski er ég bara með svona næma heyrn :)

Ég átti HD555 heyrnartól þegar ég skipti úr ac97 í Audigy2 og ég sagt þér það að þetta var eins og að fara úr 20" túbusjónvarpi í 42" LCD.
Þurfti að tékka hvort ég væri ekki örugglega ennþá með sömu heyrnartólin.

Auðvitað fiktar maður í öllum stillingum, mixer og equalizer og öllu því drasli, en það lagar aldrei þetta "muffled" sound sem að einkennir AC'97



Skjámynd

Höfundur
Frost
Besserwisser
Póstar: 3288
Skráði sig: Sun 16. Ágú 2009 02:30
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Munur að vera með hljóðkort?

Pósturaf Frost » Fim 04. Feb 2010 23:36

S.s. Það er ekkert vit í þessu nema að það sé verið að vinna í hljóðvinnslu.

Datt líka í hug að vinur minn væri búinn að rugla þessu. Hann er algjör fáviti í sambandi við tölvur :twisted:


Tölva, 2 skjáir, Alltof mörg lyklaborð, þráðlaus mús og næs heyrnatól

Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2753
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Reputation: 166
Staða: Ótengdur

Re: Munur að vera með hljóðkort?

Pósturaf SolidFeather » Fim 04. Feb 2010 23:37

Hnykill skrifaði:Meira segja AC97 sem er low cost kubbur, innbyggður á mörg móðurborð í dag er með EAX stuðning, og EAX 2 meira segja..


Þá eru þau frekar á eftir því EAX 5 er það nýjasta.


Mér dytti allaveganna ekki í hug að nota innbyggða kortið.
Síðast breytt af SolidFeather á Fim 04. Feb 2010 23:42, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

mind
1+1=10
Póstar: 1123
Skráði sig: Fim 12. Des 2002 09:21
Reputation: 31
Staða: Ótengdur

Re: Munur að vera með hljóðkort?

Pósturaf mind » Fim 04. Feb 2010 23:40

Hnykill skrifaði:Suðið kemur því tölvan er ekki jarðtengd, leiðir út auka rafmagn og þetta er hljóðið sem kemur af því ;) .. ég er sjálfur með rafmagnskapal tengdan aftan í kassan og í ofninn í herberginu hinu megin til að leiða auka straum ;)


Þú segir fréttir, að tölvan sé ekki jarðtengd og leiðir út auka rafmagn.

Þá er mér spurn, til hvers er þriðji vírinn á kaplinum sem gengur frá rafmagnsinnstungunni í tölvuna þína ?



Skjámynd

Hnykill
Of mikill frítími
Póstar: 1864
Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
Reputation: 85
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Munur að vera með hljóðkort?

Pósturaf Hnykill » Fim 04. Feb 2010 23:48

þó svo það sé gulur og grænn vír sem þriðji vír (jörð) ..þá leiða bara ekkert allar tengingar eins og þær eiga að gera í sumum húsum :/ .. ég var með + - og jörð tengt í tölvuna eins og á að vera.. ég tékkaði bara á þessu hvað var að.. og einmitt þetta suð fór þgar ég tengdi frá kassanum í ofninn, "alvöru jörð" .. eins og ég segi, prufa bara, það í mesta lagi virkar ;)


Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.

Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4358
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 409
Staða: Ótengdur

Re: Munur að vera með hljóðkort?

Pósturaf chaplin » Fös 05. Feb 2010 00:01

Fáðu þér Asus Xonar og þú mund kynnast himnaríki með eyrunum.



Skjámynd

Gunnar
Vaktari
Póstar: 2402
Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
Reputation: 70
Staðsetning: 105 Reykjavík
Staða: Tengdur

Re: Munur að vera með hljóðkort?

Pósturaf Gunnar » Fös 05. Feb 2010 00:17

mind skrifaði:
Hnykill skrifaði:Suðið kemur því tölvan er ekki jarðtengd, leiðir út auka rafmagn og þetta er hljóðið sem kemur af því ;) .. ég er sjálfur með rafmagnskapal tengdan aftan í kassan og í ofninn í herberginu hinu megin til að leiða auka straum ;)


Þú segir fréttir, að tölvan sé ekki jarðtengd og leiðir út auka rafmagn.

Þá er mér spurn, til hvers er þriðji vírinn á kaplinum sem gengur frá rafmagnsinnstungunni í tölvuna þína ?

á heima í gömlu húsi þar sem það var ekki lagt gulgrænann í lagnir. líklega útaf suðið kemur hja mér. þarf að draga það í á næstunni þá.