512mb PC4200 vs 1024mb PC4000


Höfundur
Arnar
Staða: Ótengdur

512mb PC4200 vs 1024mb PC4000

Pósturaf Arnar » Fim 11. Des 2003 13:18

Ég ætla að fá mér OCZ minni.
Þaðan sem ég kaupi það eru 1024mb kittin af PC4200 búin og koma ekki aftur fyrr en eftir áramót (vesen hjá framleiðanda)

Þeir eiga hins vegar 512mb (2x256mb) af PC4200
http://www.ocztechnology.com/products/memory/OCZ+EL+DDR+PC-4200+Dual+Channel
Svo eiga þeir líka 1024mb (2x512mb) af PC4000 minni
http://www.ocztechnology.com/products/memory/OCZ+EL+DDR+PC-4000+Dual+Channel+Gold

Hvort ætti maður að velja?
Þetta mun fara í vél sem verður IC7-MAX3 og P4 2.8c og verður oc'ed til helvítis :)

Í hverju finn ég mun á 512mb og 1024mb?
Mun nota þetta aðallega í leiki og annað slíkt vesen
Mun ég fá minna performance í einhverjum leikjum vegna "bara" 512mb i minni?

Segið hvað ég ætti að fá og afhverju.

Takk
Arnar



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fim 11. Des 2003 13:25

ég myndi taka 1Gb án þess að hugsa mig 2x um. 512 er bara of lítið.


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17030
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2298
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf GuðjónR » Fim 11. Des 2003 14:52

Fer reyndar eftir því hvað þú ert að gera....
Ég er með 1GB í aðal tölvunni minni og 512 í hinum tveim....512 er feikinóg í flest...
Ef þú ert að rendera eða vinna í photoshop þá er 1GB lágmark...




Höfundur
Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Fim 11. Des 2003 14:59

Eins og ég sagði, allskonar leiki.
Ég nota nú aldrei photoshop



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17030
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2298
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf GuðjónR » Fim 11. Des 2003 16:41

Í "alla" leiki er 512 feikinóg...það má ekki gleyma að skjákortin eru flest 64/128/256 mb og það hefur sitt að segja í leikjum.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fim 11. Des 2003 16:52

já, það er alveg spurning með það að leikirnir eru alltaf að verða þyngir. 512 er eiginlega alveg lágmark fyrir flesta leiki núna. síðan er 128Mb tildæmis næstum of lítið í HL2 ef maður er með Triple Buffering í gangi. og þar sem að ALLIR skotleikir í framtíðinni verða byggðir á HL2 vélinni að stórum hluta, þá er alveg sniðugt að hafa jafnvel 256mb. annars ræður 128mb vel við alla leiki sem að eru í gangi núna.


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Damien
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 389
Skráði sig: Lau 31. Maí 2003 23:07
Reputation: 0
Staðsetning: Ak-X
Staða: Ótengdur

Pósturaf Damien » Fim 11. Des 2003 18:39

Ég myndi skella mér á 1024. Eins og gnarr sagði: ef þú villt að þetta endist þá kaupiru frekar 1024...

Er ekki of mikið oftast betra en of lítið? Það er það allavega í tölvum... :8)


Damien


Höfundur
Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Fim 11. Des 2003 22:56

Well, ég pantaði 1gb kit af PC4000 gold :)




Höfundur
Fox
Staða: Ótengdur

Pósturaf Fox » Fös 12. Des 2003 01:12

rétt að taka það framm að windows getur max höndlað 2gb fyrir stýrikerfið og hvert application sem það keyrir getur max notað 2gb (32bit limitation).

þeir sem halda að þeir séu að gera góða hluti með því að kaupa sér highend móðurborð og hlaða í þau 4gb fyrir kvikmynda\photoshop vinnslu eru að sóa peningum.

stýrikerfið notar oftast ekki meira en 256 í minni, leikir í dag eru að nota upp í 512mb í minni... og maður er kannski með einhvað drasl mirc, icq, msn og kannski vefsíður í background... svo 1024MB ætti að vera nóg

það er mun ódýrara að taka 2x 512, svo ég myndi hiklaust skella mér á það.