Að setja inn nýtt vinnsluminni.


Höfundur
toivido
Fiktari
Póstar: 57
Skráði sig: Lau 01. Ágú 2009 01:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Að setja inn nýtt vinnsluminni.

Pósturaf toivido » Fim 27. Ágú 2009 12:40

Þannig er mál með vexti að ég keypti mér notað vinnsluminni í gær, 2 stk Corsair 512mb DDR400. Fyrir er ég með 2 stk Samsung 512mb DDR400. Ég setti minnin í í gærkveldi og kveikti á tölvunni og allt gekk vel. Ég fór því næst í PC Wizard og sá að ég var kominn með 2048mm vinnsluminni og tölvan virkaði fínt. Þegar ég rann yfir upplýsingarnar í PC Wizard um minnin þá tók ég eftir því að t.d. eftirfarandi svæði var ekki það sama á samsung minnunum og corsair minnunum:

CAS Latency (tCL) : 2.5 clocks @166 MHz, 3 clocks @200 MHz
RAS to CAS (tRCD) : 3 clocks @166 MHz, 3 clocks @200 MHz
RAS Precharge (tRP) : 3 clocks @166 MHz, 3 clocks @200 MHz
Cycle Time (tRAS) : 7 clocks @166 MHz, 8 clocks @200 MHz

Mig minnir að það hafi staðið 2,2,2,8 í Corsair minnunum. Ástæðan fyrir því að ég spyr er að áðan var ég að kveikja á tölvunni og það kom ekkert á skjáinn og ég heyrði að hún keyrði sig ekki. Ég opnaði því tölvuna og tók Corsair minnin út og þá kveiknaði á henni.

Spurningin er því kannski: Þarf að gera einhverjar stillingar þegar ný minni eru sett saman við gömul í tölvum? Maður les oft á þessari síðu að menn eru að tala um klukkun, ég veit ekki hvað það þýðir einu sinni.


P.s. Ég setti Ballistix vinnsluminni í gamla tölvu hjá vini mínum um daginn. Tók gömlu alveg út og henti. Það kveiknaði fínt á tölvunni og degi síðar hringdi hann í mig og þá var allt í rugli. Geta vitlaust vinnsluminni eyðilagt eitthvað út frá sér?????????????

Kv.




Höfundur
toivido
Fiktari
Póstar: 57
Skráði sig: Lau 01. Ágú 2009 01:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Að setja inn nýtt vinnsluminni.

Pósturaf toivido » Fim 27. Ágú 2009 19:10

Er ekki einhver sem getur veitt mér visku úr viskubrunni sínum :) ?




Arnarfreyr
Græningi
Póstar: 44
Skráði sig: Mán 23. Júl 2007 17:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Að setja inn nýtt vinnsluminni.

Pósturaf Arnarfreyr » Þri 15. Sep 2009 12:03

þarft engar stillingar til að skipta um vinnsluminni þarf bara taka tölvuna ur sambandi og hafa engan straum á og svo taka ut og láta t.d crosair minnið i raufirnar sem eru nær örgjafanum þar að segja t.d 1 raufin græn og hin blá og ef bláa er nær lætur betri minnið þar og hitt bláa slotið ef þu ert með 4raufar svo likar verðuru af hafa i huga hvort þu sert með rett minni þvi þu ert með DDR en það sem er mest notað nutildags er dd2-dd3



Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4358
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 409
Staða: Ótengdur

Re: Að setja inn nýtt vinnsluminni.

Pósturaf chaplin » Þri 15. Sep 2009 21:27

Gera smá dæmi fyrir þig. Ef þú ert með minni sem er að keyra á, segjum, 5-5-5-15, og setur svo annað minni í tölvuna sem er 4-4-4-12, að þá keyrir það á 5-5-5-15.. annars veit ég ekkert um afhverju tölvan var í rugli..