Var að spá í að skella mér á eina uppfærslu , eitthvað sem ég hefði átt að gera fyrir löngu

1. Það helsta sem ég væri að leitast í þessari uppfærslu væri að fá smá extra kraft fyrir tölvuleiki, eitthvað sem ætti ekki að vera erfitt þar sem ég á tölvu sem var keypt árið 2004

2. Í þessari uppfærslu hafði ég hugsað mér að kaupa einungis móðurborð, örgjörva og vinnsluminni. Upphæðin sem ég myndi spreða í þetta væri
þá í kringum 40-50þúsund krónur, ekki voða mikið en ætti þó að geta fengið eitthvað fyrir það :þ
3. Hérna er eitthvað sem ég púslaði saman sjálfur en veit ekki hvort þetta sé besti kosturinn, endilega kommentið og segjið ykkar skoðun.
Örri:Intel Core 2 Duo E8400 3.0GHz, 1333FSB
Móðurborð: MSI P31 Neo V2
Vinnsluminni: Corsair XMS2 pöruð 2 stk. 1GB (=2GB) DDR2, 800MHz
Vifta: CoolerMaster Vortex 752
Helst væri ég til í að fagmenn settu saman þetta dótarí þar sem nokkur óhöpp hafa átt sér stað í fortíðinni


Kveðja Mr.Kaspersen