Mig vantar smá aðstoð við að velja þráðlaust lyklaborð og mús.
Við erum með tvo fundarsali hérna í vinnunni og þurfum á þráðlausu lyklaborði og mús að halda. Ekki er hægt að vera með tölvuna á fundarborðinu og snúru lyklaborð og mýs ganga því ekki þar sem þessar snúrur eru alltaf svo stuttar og ekki er hægt að vera með snúrur út um allt sem fólk er stanslaust að fella sig á.
Núna erum við með þetta, Lyklaborð+mús Logitech EX110 Þráðlaust, en það bara virkar aldrei þegar það þarf að nota þetta. Ég er alltaf að skipta um rafhlöður og athuga hvort þetta virki ekki allt fyrir næsta fund. Jú það virkar þegar ég prófa en svo þegar kemur að fundinum, þá virkar ekkert! Næstum eins og þetta sé eitthvað slæmt karma fyrir mig þar sem ég kem mjög illa út sem umsjónarmaður þessa drasls sem aldrei virkar!
Ég er því að leita að einhverju nýju sem er áreiðanlegt og virkar. Getið þið mælt með einhverju?
(við erum með Apple tölvur sem keyra á Windows XP)
Gott þráðl. lyklaborð & mús?
Re: Gott þráðl. lyklaborð & mús?
Ég myndi þá kaupa bluetooth lyklaborð og mús, nokkuð viss um að það sé miklu meira solid
-
birgirs
- Nörd
- Póstar: 122
- Skráði sig: Fim 27. Apr 2006 17:11
- Reputation: 6
- Staðsetning: Rvík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Gott þráðl. lyklaborð & mús?
Ég mundi halda að Apple bluetooth þráðlausa lyklab. og Mighty músin væru flott combo á fundarborðið. Bluetooth virkar 10x betur en infrared og þú þarf ekki að vera í beinni línu við einhvern sendi. Allar Apple tölvur eru með innbyggðu bluetooth. Það er fremur dýrt en ætti að vera solid.
Mundi samt ganga í skugga með hvort það virkar ekki 100% við Windows. (Sé ekki ástæðu til þess að það ætti ekki að virka)
Finnur það hér: http://www.apple.is/vorur/aukahlutir/
Mundi samt ganga í skugga með hvort það virkar ekki 100% við Windows. (Sé ekki ástæðu til þess að það ætti ekki að virka)
Finnur það hér: http://www.apple.is/vorur/aukahlutir/
-
Halli25
- Bara að hanga
- Póstar: 1579
- Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
- Reputation: 67
- Staðsetning: Hveragerði
- Staða: Ótengdur