ESD (Electrostatic discharge) hætta


Höfundur
Allinn
spjallið.is
Póstar: 459
Skráði sig: Fim 17. Apr 2008 18:22
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

ESD (Electrostatic discharge) hætta

Pósturaf Allinn » Sun 27. Júl 2008 20:10

Hæ! Nú þori ég ekki að koma við móðurborðið þar til að ég fæ "ESD Wrist Straps". Nú spyr ég hvar er hægt að fá svona á landi?



Hvað er ESD?

ESD er rafstraumur sem kémur frá ýmsum hlutum. Þú hefur snert aðra mannerskju eða hlut þá færð þú allt að 12V rafspennu á þig. Þessi rafspenna er hættandi Nforce móðurborðum. Ef komið er við móðurborð með ESD rafstraum á hendi þá mun móðurborðið einfaldlega eyðileggjast. Ef tölvan þín gétur ekki "Bootað" þá myndi ég taka það út og sjá hvort að bræðandi vír er hjá "northbridge" eða "southbridge" þetta hef ég lent í og þetta kom sjá mynd. Þessvegna á maður að fá sér ESD Wrist Straps



Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2753
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Reputation: 166
Staða: Ótengdur

Re: ESD (Electrostatic discharge) hætta

Pósturaf SolidFeather » Sun 27. Júl 2008 20:12

Snerta bara kassan meðan að þú ert að fikta í henni, virkar fyrir mig.



Skjámynd

Revenant
</Snillingur>
Póstar: 1052
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Reputation: 139
Staða: Ótengdur

Re: ESD (Electrostatic discharge) hætta

Pósturaf Revenant » Sun 27. Júl 2008 21:06

Færð þetta í sumum tölvubúðum eða niðrí íhlutum.




Matti21
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 304
Skráði sig: Fim 01. Nóv 2007 19:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: ESD (Electrostatic discharge) hætta

Pósturaf Matti21 » Sun 27. Júl 2008 21:07

Þetta heitir stöðurafmagn á íslensku. Þarft ekki að hafa mikklar áhyggjur af þessu. Snertu bara eitthvað jarðtengt af og til og ekki vinna í tölvunni á teppi :P
Annars hef ég séð svona bönd í tæknibæ --> http://tb.is/?gluggi=vara_mynd&vara=5492


-Q6600/Thermalright Ultra 120 Extreme/Gigabyte P35-DS3R/4GB Corsair 800Mhz/Nvidia 8600GTS/Corsair HX620/Coolermaster CM690/BenQ G2400W --Hackintosh!--
-Macbook Pro 13" -2010


Höfundur
Allinn
spjallið.is
Póstar: 459
Skráði sig: Fim 17. Apr 2008 18:22
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: ESD (Electrostatic discharge) hætta

Pósturaf Allinn » Sun 27. Júl 2008 21:16

Matti21 skrifaði:Þetta heitir stöðurafmagn á íslensku. Þarft ekki að hafa mikklar áhyggjur af þessu. Snertu bara eitthvað jarðtengt af og til og ekki vinna í tölvunni á teppi :P
Annars hef ég séð svona bönd í tæknibæ --> http://tb.is/?gluggi=vara_mynd&vara=5492


Já takk :) skelli mér í þessa vöru



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: ESD (Electrostatic discharge) hætta

Pósturaf jonsig » Fim 18. Sep 2008 20:11

kanski nóg að snerta kassan , en til að fá jörð f. húsarafmagn þá væri sniðugt að krafsa í ofnin heima hjá þér og láta straumþjófin á málningalausan flöt



Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: ESD (Electrostatic discharge) hætta

Pósturaf KermitTheFrog » Fim 18. Sep 2008 20:27




Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: ESD (Electrostatic discharge) hætta

Pósturaf jonsig » Fim 18. Sep 2008 21:30

svo ef þú kaupir þetta ekki hjá computer.is þá get ég ekki ábyrgst að þú farir til himna.




Matti21
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 304
Skráði sig: Fim 01. Nóv 2007 19:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: ESD (Electrostatic discharge) hætta

Pósturaf Matti21 » Fim 18. Sep 2008 21:51

frá Allinn Sun 27. Júl 2008

Ekki bömpa upp gamla þræði...


-Q6600/Thermalright Ultra 120 Extreme/Gigabyte P35-DS3R/4GB Corsair 800Mhz/Nvidia 8600GTS/Corsair HX620/Coolermaster CM690/BenQ G2400W --Hackintosh!--
-Macbook Pro 13" -2010

Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Re: ESD (Electrostatic discharge) hætta

Pósturaf ManiO » Fim 18. Sep 2008 22:16

jonsig skrifaði:svo ef þú kaupir þetta ekki hjá computer.is þá get ég ekki ábyrgst að þú farir til himna.

:?: Hvaða rugl ertu að tala um drengur?


"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."


Blackened
vélbúnaðarpervert
Póstar: 956
Skráði sig: Mið 29. Sep 2004 17:36
Reputation: 14
Staðsetning: Babýlon norðursins
Staða: Ótengdur

Re: ESD (Electrostatic discharge) hætta

Pósturaf Blackened » Fim 18. Sep 2008 23:40

jonsig skrifaði:kanski nóg að snerta kassan , en til að fá jörð f. húsarafmagn þá væri sniðugt að krafsa í ofnin heima hjá þér og láta straumþjófin á málningalausan flöt


Þú færð "jörð f. húsarafmagn" frá kassanum miðað við að kassinn sé tendgdur í innstungu með jarðsambandi

Jarðsambandið ferðast úr tenglnum.. eftir snúrunni og í powersupplyið.. og úr powersupplyinu í allann kassann

..Svo að ef að kassinn er í sambandi við jarðbundna innstungu (og raflögnin allt í lagi) þá er kassinn eins jarðbundinn og mögulegt getur orðið ;)



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: ESD (Electrostatic discharge) hætta

Pósturaf jonsig » Fös 19. Sep 2008 02:55

ég vildi meina ef jarðbindingu er ábótavant.sem er oft í gömlum húsum þeas fyrst voru þau aðeins jarðbundin í eldhúsi og þvottahúsi en í dag auðvitað allstaðar og ef maður er með dýran búnað að vinna við þá hefði maður viljað vera 100% á því




Selurinn
Kerfisstjóri
Póstar: 1230
Skráði sig: Fös 24. Feb 2006 15:51
Reputation: 2
Staðsetning: Mhz
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: ESD (Electrostatic discharge) hætta

Pósturaf Selurinn » Þri 23. Sep 2008 08:26

Erum við þá að tala um að tölvan verði að vera tengd við rafmagn svo að hún sé rafftengt ef maður ætlar að afhlaða sig með því að koma við kassan :S
Hefur ekki alltaf verið mælt með því að hún sé einmitt ekki í sambandi ef það er gert.



Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Re: ESD (Electrostatic discharge) hætta

Pósturaf ManiO » Þri 23. Sep 2008 11:49

Selurinn skrifaði:Erum við þá að tala um að tölvan verði að vera tengd við rafmagn svo að hún sé rafftengt ef maður ætlar að afhlaða sig með því að koma við kassan :S
Hefur ekki alltaf verið mælt með því að hún sé einmitt ekki í sambandi ef það er gert.



Oftast á að vera veltihnappur á aflgjöfum, og mig grunar að hann rjúfi bara sambandið við strauminn en ekki jarðtenginguna, en þetta er eitthvað sem ég hef minnstu hugmynd um og eflaust einhver hér inni sem veit þetta með vissu.


"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,

wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."


Blackened
vélbúnaðarpervert
Póstar: 956
Skráði sig: Mið 29. Sep 2004 17:36
Reputation: 14
Staðsetning: Babýlon norðursins
Staða: Ótengdur

Re: ESD (Electrostatic discharge) hætta

Pósturaf Blackened » Þri 23. Sep 2008 12:04

Já það er betra að hafa kassann í sambandi við innstunguna og slökkt á veltirofanum sem ef aftaná.. þá helst jarðsambandið í kassanum 100%

En margir eru mjög smeykir við rafmagn og taka engann séns með svona hluti.. og þá er gott að jarðbinda sig með svona armbandi eða einhverju þessháttar