Intel trónir samt sem áður á toppnum fyrir örgjörva stílaða á heimilistölvur
![Rolling Eyes :roll:](./images/smilies/icon_rolleyes.gif)
Edit: Einnig, topp 15 örgjörvarnir þarna eru 2 örgjörvar eða fleiri, og ef ég er að skilja þetta rétt, er þessi opteron örri þarna í raun 8 örgjörvar eða 32 kjarnar. Endilega leiðréttið mig ef ég hef rangt fyrir mér. En ef þetta er rétt skilið hjá mér er Intel enn kóngurinn.
Edit 2:
http://www.cpubenchmark.net/graph_notes.html skv. þessu skilst mér að ég hafi rétt fyrir mér, þarna stendur að [dual cpu] þýði 2 örgjörvar á sama borði, og því myndi maður halda að [quad cpu] myndi þýða fjórir, og ef maður ber saman [quad cpu] scoreið fyrir Opteron 8354 við [8-way] scoreið á sama örgjörva er [8-way] rétt undir tvöföldu [quad cpu] scoreinu.
Edit 3: Svo til að gera þetta enn skemmtilegra, þá er hægt að bera saman betur með því að dæla með fjölda örgjörva í scoreið til að fá ca. út score per örgjörva. Gerum það fyrir top 2, þá fær Opteroninn 1700 stig per örgjörva en Xeoninn fær um 4800 stig per örgjörva.