Pósturaf Gets » Lau 07. Jún 2008 20:36
Ef ég á að lesa á milli línana í þessu bréfi þá gef ég mér að þetta kort hafi verið í tölvunni sem þú varst að kaupa.
Hinsvegar ef þú ert að spá í að kaupa þetta kort nýtt út úr búð í dag, þá mæli ég frekar með öðru korti.
Gæði þessa korts fara algerlega eftir því til hvers þú ætlast til af því, ef þú ert mikið fyrir að spila tölvuleiki þá skelltu bara inn leik sem þú hefur gaman af og stilltu grafíkina í þau gæði sem þú vilt spila leikin í, ef leikurinn höktir þá er þetta kort klárlega ekki að gera fyrir þig það sem þú vilt.