málið er að hann er með eitthvað gamalt ati 9200 skjákort, virkaði fínt í windows xp það er ég gat installað catalyst með því þar, þannig að ég gat farið í control á kortinu og sett video overlay og allt það dæmi á og lit yfir í sjónvarpið, hann notar vélina bara sem sjónvarpstölvu og hefur þetta dugað flott í að glápa á myndir og þætti.
núna er mitt vandamál það að ég er búinn að sækja fleyri catalyst pakka af ati.com og allir haga sér eins, installa skjádriverinum en ekki forritinu sjálfu það er catalyst control center.
er til eitthvað annað forritð sem ég get notað í staðinn fyrir þetta, eina sem í raun og veru vantar að gera er að komast í controlerinn og velja secondary display over lay og stilla á pal
finnst ekki alveg vera að meika sens að láta hann kaupa nýtt skjákort þar sem þetta dugir mjög vel í þetta, en lítur allt út fyrir að ég verði að láta inn windows xp aftur ef ég finn ekki lausn.