Uppfærsla af uppfærslu!


Höfundur
Harvest
Geek
Póstar: 820
Skráði sig: Lau 13. Maí 2006 01:25
Reputation: 1
Staðsetning: artæki
Staða: Ótengdur

Uppfærsla af uppfærslu!

Pósturaf Harvest » Fim 13. Des 2007 22:57

Sælt veri fólkið!


Þetta er nú svona hálfgerð uppfærsla á því hvað ég ætla að setja í vélina mína sem verður að öllum líkindum keypt á morgun.

Hún verður að mestu notuð í leikjaspilun, myndvinslu/video, vefráp og bíógláp (ásamt því að vera tengd sjónvarpi).

Endilega kommentið og segið hvað betur mætti fara eða komið með spurnungar.


Main budget: 150þ í vélina.

Takmark:1. Fá sem mest fyrir peninginn án þess að það komi niðurá tölvunni. 2. Spila leiki í flottri upplausn (1920x1200) og góðum gæðum. 3. Frysta draslið - HLJÓÐLEGA



Aflgjafi: Etasis 750w SLI samþykktur - http://www.att.is/product_info.php?cPath=41_34&products_id=3740&osCsid=aa7c81a294ad8a44055b837398aa06bc
//svona stór til að hafa möguleikann að bæta við öðru skjákorti og jafnvel fleiri hörðum diskum - gæti keypt annan annarstaðar, fæ þennan sennilega á góðu verði

- 20.000kr


Móðurborð: Gigabyte GA-X38-DQ6 - http://kisildalur.is/?p=2&id=569
//allir að mæla með þessum borðum

- 30.000kr


Örgjörfi: Core 2 Quad Q6600 - http://kisildalur.is/?p=2&id=509
//held það þurfi varla að ræða annað

- 23.000kr


Minni: GeIL 4GB EVOONE PC2-8500 DC - http://kisildalur.is/?p=2&id=610
//það er spurning að taka eitthvað minna. T.d. 800mhz. Munar um 15k á því.. samt alveg til í að fá svona almennilegt

- 35.000kr


eVGA NVIDIA GeForce 8800GTS(G92) 512MB 1940/670MHz - http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=24_35_77&products_id=915
//hreynlega vegna þess að aðrir eru með 20 mhz minni klukkunarhraða á kjarna - endilega skoðið hjá Tölvutækni og Tölvuvirkni og berið saman. Ég er á biðlista hjá báðum aðillum eiftir eitthverju af þessum kortum. Kaupi af þeim sem fyrr fær :)

- 37.000kr


Kæling á örgjörfa: Thermaltake UltraExtreme 120 - http://kisildalur.is/?p=2&id=510
//endilega kommentið á kælinguna. Vil hafa hana sem allra besta. Mun svo bæta 120mm viftu ofaná þetta.

- 7.500kr


Á svo raptor og kassa.

- Búinn að borga fyrir það. 0 kr.


--------------------------

- Samtals = 152.500kr
//sem er nánast verðið sem planað var í upphafi - en ég er alltaf til í að bæta við t.d. til að fá meiri gæði


Kaupi slatta hjá Kísildal því ég ætla að fá þá til þess að setja allavega kælinguna á örgjörfan (nenni ekki kælikremi og veseni). Þeir eru t.d. ekki með besta verðið á örranum skv. Vaktinni.

Muniði eftir eitthverju fleiru?

Eitthvað sem betur mætti fara?


Uppljóstrari samfélagsins... Lög og regla almúgans... Rödd samtímans... VAKTIN.IS

Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2788
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 129
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf zedro » Fim 13. Des 2007 23:43

Þetta er bara helvíti flottur pakki.
Frétti að Kísildalur á að fá G92 kort á morgun er reyndar ekki með
speccana á hreinu en þér fá einhverja svaka OC útgáfu :8)
Gæti borgað sig að chekka á því.


Kísildalur.is þar sem nördin versla


Höfundur
Harvest
Geek
Póstar: 820
Skráði sig: Lau 13. Maí 2006 01:25
Reputation: 1
Staðsetning: artæki
Staða: Ótengdur

Pósturaf Harvest » Fim 13. Des 2007 23:49

Meinar... takk fyrir að láta mig vita af því.

Tékka pottþétt á því.


Uppljóstrari samfélagsins... Lög og regla almúgans... Rödd samtímans... VAKTIN.IS

Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1285
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 148
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Tengdur

Pósturaf Minuz1 » Fös 14. Des 2007 00:34

vatnskæling? annars mjög góður og vitsmunalegur pakki ef þú ert með plön að fara í vista...annars er minnið overkill.


Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það


TechHead
Geek
Póstar: 822
Skráði sig: Þri 23. Nóv 2004 14:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf TechHead » Fös 14. Des 2007 09:39

Það er alveg barnalega auðvelt að yfirklukka 8800GTS 512 með nTune.

Setti Sparkle 8800GTS 512 í - 770 core og 2110 mem í fyrstu tilraun án
vandræða, tók svo bench í þeirri klukku :8)

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=5941&start=180

og

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=9748&start=200




Taxi
spjallið.is
Póstar: 444
Skráði sig: Fös 17. Feb 2006 20:02
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Taxi » Fös 14. Des 2007 22:26

TechHead skrifaði:Það er alveg barnalega auðvelt að yfirklukka 8800GTS 512 með nTune.

Setti Sparkle 8800GTS 512 í - 770 core og 2110 mem í fyrstu tilraun án
vandræða, tók svo bench í þeirri klukku :8)

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=5941&start=180

og

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=9748&start=200

Það eru ekki ALLIR tilbúnir að fórna ábyrgð á nýja skjákortinu sínu. :roll:




TechHead
Geek
Póstar: 822
Skráði sig: Þri 23. Nóv 2004 14:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf TechHead » Lau 15. Des 2007 00:40

Skemmir nú ekkert ef maður fiktar ekki í voltunum sko!




Taxi
spjallið.is
Póstar: 444
Skráði sig: Fös 17. Feb 2006 20:02
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Taxi » Lau 15. Des 2007 21:26

TechHead skrifaði:Skemmir nú ekkert ef maður fiktar ekki í voltunum sko!

Það er bara ekki alveg rétt.ég hef fengið varanlega artifacts eftir stutta yfirklukkun á skjákorti án nokkurar voltaukningar. :cry:




wICE_man
ÜberAdmin
Póstar: 1302
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 57
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Mán 17. Des 2007 10:42

TechHead skrifaði:Skemmir nú ekkert ef maður fiktar ekki í voltunum sko!


Þetta er svona þumalputtaregla sem hefur virkað með örgjörva, en þegar komið er að skjákortum þá er kælingin oft bara rétt nægileg til að halda kortinu nógu köldu á load. Hitamyndunin eykst í jöfnu hlutfalli við yfirklukkun svo að það er hæglega hægt að steikja skjákortið sitt í illa loftræstum kassa (gerist oft þegar menn vilja hafa kassana sem hljóðlátasta og sleppa öllum viftum t.d.).


Tölvuverslunin Kísildalur, staðurinn þar sem nördin versla :)
...og btw þá er ég innvígður og innmúraður í Kísildal