Smá ráð í samb. við móðurborð. Hvort?

Skjámynd

Höfundur
raRaRa
Nörd
Póstar: 131
Skráði sig: Þri 10. Okt 2006 11:18
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Smá ráð í samb. við móðurborð. Hvort?

Pósturaf raRaRa » Þri 10. Okt 2006 23:26

Ég er núna að spá í hvort móðurborðið ég á að kaupa:

Intel - 775 - ABIT AB9 Pro/Intel965X/dualDDR2/FSB1066/

http://www.tolvuvirkni.net/ip?inc=view& ... BIT_AB9Pro

eða

MSI P965 Platinum - Conroe Ready
Intel P965, 4xDDR2 667, 6xSATAII Raid, 1x PCI-E 16X, FireW, 7.1 hljóð, S775

http://www.att.is/product_info.php?cPat ... cd99315524

Hafa sömu specs, nema með crossfire (sem ég mun ekki nota) hvort ætti ég að kaupa frekar og afhverju? Abit er ódýrara er fyrsta ástæðan mín.



Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2753
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Reputation: 166
Staða: Ótengdur

Pósturaf SolidFeather » Þri 10. Okt 2006 23:59

Ég held að þetta borð: http://kisildalur.is/?p=2&id=279 sé betra en hin tvö.




ÓmarSmith
Vaktari
Póstar: 2550
Skráði sig: Fim 13. Júl 2006 19:30
Reputation: 44
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf ÓmarSmith » Mið 11. Okt 2006 08:11

MSI Platinum borðin hafa komið frábærlega vel út. Stöðug OG henta vel í yfirklukkun sem er stór kostur.

Persónulega myndi ég aldrei fá mér Abit eða Gigabyte móðurborð, einfaldlega vegna þess að ég þekki þau ekki og hef enga reynslu af þeim, held samt að Abit sé nokkuð cheap-ó merki .

MSI hinsvegar hef ég góða reynslu af eins og margir aðrir Vaktarar og má þar nefna MSI K8N Neo Platinum borðið sem var líkl. besta AGP móðurborð sem hefur komið.

En yfir í þitt val :

MSI borðið sem þú bendir á er með öðru chipsetti en 975, en ég veit ekki betur en að 975 Chipset móðurborðið sé miklu betra en þetta sem þú bendir á. Myndi vilja að "tæknimaður" myndi svara afhverju.
Síðast breytt af ÓmarSmith á Mið 11. Okt 2006 08:50, breytt samtals 1 sinni.


Gigabyte Aorus Elite V2 * Ryzen 5 5600x * Nvidia RTX3080 * 16Gb Corsair LPX CL16 3600 * Corsair RM850x * Acer Predator X34 34" 100hz * Corsair Carbite 400D * Sennheiser HD560s


Yank
</Snillingur>
Póstar: 1058
Skráði sig: Mið 29. Des 2004 17:01
Reputation: 0
Staðsetning: www.tech.is
Staða: Ótengdur

Pósturaf Yank » Mið 11. Okt 2006 08:19

ÓmarSmith skrifaði:MSI Platinum borðin hafa komið frábærlega vel út. Stöðug OG henta vel í yfirklukkun sem er stór kostur.

Persónulega myndi ég aldrei fá mér Abit eða Gigabyte móðurborð, einfaldlega vegna þess að ég þekki þau ekki og hef enga reynslu af þeim, held samt að Abit sé nokkuð cheap-ó merki .

MSI hinsvegar hef ég góða reynslu af eins og margir aðrir Vaktarar og má þar nefna MSI K8N Neo Platinum borðið sem var líkl. besta AGP móðurborð sem hefur komið.

En yfir í þitt val :

MSI borðið sem þú bendir á er með öðru chipsetti en 775, en ég veit ekki betur en að 775 Chipset móðurborðið sé miklu betra en þetta sem þú bendir á. Myndi vilja að "tæknimaður" myndi svara afhverju.


Þú ert að ruglast það eru 2 MSI borð 975X og 965 þetta með 975 er powerup edition.
Abit, Gigabyte, MSI allt mjög traustir móðurborðs framleiðendur. Hef átt borð frá þeim öllum. Hér áður voru Abit bestu yfirklukkunar borð sem fengust, þau urðu síðan slakari en hafa komið sterk aftur.




ÓmarSmith
Vaktari
Póstar: 2550
Skráði sig: Fim 13. Júl 2006 19:30
Reputation: 44
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf ÓmarSmith » Mið 11. Okt 2006 08:51

Váá , mánudagur í mér .. ég lagaði þetta úr SjöSjöFimm í 975 ;)


Gigabyte Aorus Elite V2 * Ryzen 5 5600x * Nvidia RTX3080 * 16Gb Corsair LPX CL16 3600 * Corsair RM850x * Acer Predator X34 34" 100hz * Corsair Carbite 400D * Sennheiser HD560s

Skjámynd

Höfundur
raRaRa
Nörd
Póstar: 131
Skráði sig: Þri 10. Okt 2006 11:18
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf raRaRa » Mið 11. Okt 2006 11:40

OK, ég er reyndar búinn að breyta um skoðun.


Gigabyte GA-965P-DS3
Intel 965P - ATX - LGA775 - PCI-Express
http://kisildalur.is/?p=2&id=279

Vitiði hvort þetta styðji 677MHz minni? Og hvort þetta sé gott borð fyrir Core 2 duo? :) Mæliði með öðru?



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6596
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 366
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mið 11. Okt 2006 11:54

ÓmarSmith skrifaði:Persónulega myndi ég aldrei fá mér Abit eða Gigabyte móðurborð, einfaldlega vegna þess að ég þekki þau ekki og hef enga reynslu af þeim, held samt að Abit sé nokkuð cheap-ó merki .


Þú ert að grínast ómar! :shock: Abit hefur verið eitt virtasta móðurborða fyrirtæki í heimi í rúmann áratug, bæði hjá overclockurum og þeim sem að vilja bara góð stabíl borð.
og fyrst þú ert að kalla Abit "cheap-ó", þá hafa MSI yfirleitt gefið sig út fyrir að vera "budget" framleiðandi.


"Give what you can, take what you need."


ÓmarSmith
Vaktari
Póstar: 2550
Skráði sig: Fim 13. Júl 2006 19:30
Reputation: 44
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf ÓmarSmith » Mið 11. Okt 2006 12:42

Ég sagði líka " held " Heyrði það útundan mér fyrir langa löngu síðan en sel það ekkert dýrara en ég keypti það. Klárlega rangt og allt í góðu með það. :8)


Gigabyte Aorus Elite V2 * Ryzen 5 5600x * Nvidia RTX3080 * 16Gb Corsair LPX CL16 3600 * Corsair RM850x * Acer Predator X34 34" 100hz * Corsair Carbite 400D * Sennheiser HD560s


hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Mið 11. Okt 2006 16:14

Abit var líka miklu betra og MSI var miklu lélegra.



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3774
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 135
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pandemic » Mið 11. Okt 2006 17:49

Abit fengu smá óorð á sig þegar þeir keyptu falsaða þétta sem voru vitlaust framleiddir en þeir viðurkenndu það og tjónið var bætt.