Síða 1 af 1

[ÓE] Active DP yfir í HDMI

Sent: Fös 24. Jan 2025 02:27
af Omerta
Fékk þá hugmynd að nýta gamla Lenovo ThinkCentre M910q (i7 7700T) sem sjónvarpstölvu hjá gömlu. Vélin er aðeins með DisplayPort. Sé ekki betur en að ég þurfi active DP yfir í HDMI kapal eða breytistykki, annars er 1080/60 eða 4k/30 hámarkið. Þyrfti líka að geta borið hljóð. Kostar 22 dollara á B&H en svo 30 shipping og aðrir 30 í skatta. Sé þetta hvergi hér heima, ekki er einhver hér sem á svona?

t.d:

https://www.bhphotovideo.com/c/product/ ... _hdmi.html

eða

https://www.bhphotovideo.com/c/product/ ... _hdmi.html

Re: [ÓE] Active DP yfir í HDMI

Sent: Fös 24. Jan 2025 10:29
af jericho
Sendu fyrirspurn á Fjölsmiðjuna. Þau liggja á alls kyns svona dóti sem er falt fyrir slikk.

Re: [ÓE] Active DP yfir í HDMI

Sent: Fös 24. Jan 2025 14:25
af olihar

Re: [ÓE] Active DP yfir í HDMI

Sent: Fös 24. Jan 2025 14:30
af olihar

Re: [ÓE] Active DP yfir í HDMI

Sent: Lau 25. Jan 2025 03:25
af Omerta
https://tl.is/manhattan-displayport-i-h ... -60hz.html

Er það semsagt rangt að það þurfi active kapal í þetta?

Re: [ÓE] Active DP yfir í HDMI

Sent: Lau 25. Jan 2025 07:41
af olihar
Já þessi ætti að virka, er þetta ekki þessi kapall.

https://manhattanproducts.eu/products/m ... ble-153218

Svona kaplar virka bara í aðra áttina, s.s. Getur ekki tengt HDMI úr tölvu yfir í DisplayPort á skjá. En það sem þú ert að tengja úr DisplayPort yfir í HDMI á hann að virka 4K @60

Re: [ÓE] Active DP yfir í HDMI

Sent: Sun 26. Jan 2025 03:28
af Omerta
Keypti þennan umrædda í TL. 1080p 60hz er ekkert mál en í 4k þá dettur myndin stöðugt út og inn ef ég fer yfir 30hz. Ætla að prufa styttri kapal en ef það er sama sagan þá neyðist ég til að prófa þennan active adapter hjá OK.