Síða 1 af 1

Í algjörri klemmu - Vantar DVD DL disk eða Dell win7 pro 64 disk

Sent: Lau 21. Feb 2015 16:24
af snaeji
Sælir Vaktarar.

Ég er í smá klemmu vantar DVD dual layer disk akkúrat núna (er í miðju missioni) og allar tölvubúðir voru að loka.

Búinn að athuga í A4 og þeir eiga þetta víst ekki til.

Er einhver með uppástungu eða er einhver sem er nálægt kópavogi og væri til í að selja mér eitt stykki ?

Re: Í algjörri klemmu - Vantar DVD DL disk eða Dell win7 pro 64 disk

Sent: Lau 21. Feb 2015 16:36
af AntiTrust
Bara fyrir forvitnisssakir, hvað er að stoppa þig í að nota bara OEM .iso W7 skrá og búa til bootable USB?

Re: Í algjörri klemmu - Vantar DVD DL disk eða Dell win7 pro 64 disk

Sent: Lau 21. Feb 2015 16:39
af Hannesinn
Þú getur pottþétt náð þér í dell win7 sp1 á netinu, piratebay eða öðrum torrent síðum. Hann virkar síðan á móti slic 2.1 kóðanum í biosnum hjá þér. Ættir hugsanlega að geta notað kóðann á vélinni með hvaða win7 oem disk sem þú finnur, hann activate'ar bara ekki sjálfvirkt eins og dell diskurinn.

Og færð auðvitað ekki dell theme dótið, en það er nú svosem ekki merkilegt.

Re: Í algjörri klemmu - Vantar DVD DL disk eða Dell win7 pro 64 disk

Sent: Lau 21. Feb 2015 16:41
af snaeji
Minn er týndur, er vísu með 3 hérna... en þeir eru cryptaðir með bitlocker passwordi svo ég get ekki hreinsað af þeim...

Re: Í algjörri klemmu - Vantar DVD DL disk eða Dell win7 pro 64 disk

Sent: Lau 21. Feb 2015 16:45
af snaeji
Hannesinn já það er akkúrat það sem ég er að gera vantaði bara að koma honum eitthvað til þess að geta sett það upp í tölvunni.

Annars tók ég bara sénsinn og hreinsaði út af einum usb lyklinum.. fólk á hvort sem er ekkert að treysta á usb lykla hehe

Re: Í algjörri klemmu - Vantar DVD DL disk eða Dell win7 pro 64 disk

Sent: Lau 21. Feb 2015 16:52
af GuðjónR
Minnir að ég hafi séð DVD DL diska í Krónunni í mosó...
Prófaðu að hringja...

Re: Í algjörri klemmu - Vantar DVD DL disk eða Dell win7 pro 64 disk

Sent: Lau 21. Feb 2015 17:30
af svensven
Ég er með slatta af Dell diskum ef þig vantar

Re: Í algjörri klemmu - Vantar DVD DL disk eða Dell win7 pro 64 disk

Sent: Sun 22. Feb 2015 04:01
af snaeji
Takk fyrir hjálpina! Ég náði í diskinn á pirate bay og notaði win7 download tool til þess að smella honum á usb.