Vantar rafhlöðu í Toshiba Satellite C660

Hér getur þú óskað eftir tölvum og tölvutengdum búnaði.

Höfundur
geiri42
Græningi
Póstar: 25
Skráði sig: Mið 19. Jún 2013 23:22
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Vantar rafhlöðu í Toshiba Satellite C660

Pósturaf geiri42 » Þri 07. Okt 2014 15:12

Daginn!

Datt í hug að kanna hvort einhver lumi á rafhlöðu í Toshiba Satellite C660-152 fartölvu, t.d. úr vél sem hefur skemmst.
Hún þarf ekki að vera ný, en þó betra að hún haldi sæmilegri hleðslu.

Það eru sömu rafhlöður í öllum C660 vélunum - part number er PA3817U-1BRS.

Þessar vélar voru seldar í Tölvulistanum a.m.k. vor 2012. Það er hægt að panta rafhlöðu hjá þeim, en verðið er frekar hátt. :shock:

Eru einhverjir fleiri sem selja/panta rafhlöður í svona vélar?