Síða 1 af 1

[ÓE] DDR3 kubb að láni

Sent: Fim 24. Okt 2013 19:20
af Eiiki
Sælir vaktarar

Ef einhver góður vaktari vildi vera svo vænn að lána mér DDR3 kubb í u.þ.b. einn dag og ég skila honum til baka daginn eftir. Er að bilanagreina eina vél hérna og ég er að reyna að útiloka að minnin séu að valda biluninni.
Skilyrði eru að kubburinn sé 1.5V


MBK
Eiiki

Re: [ÓE] DDR3 kubb að láni

Sent: Fös 25. Okt 2013 13:49
af Eiiki
Bump! Vantar kubb sem fyrst

Re: [ÓE] DDR3 kubb að láni

Sent: Mán 28. Okt 2013 18:43
af Eiiki
kommon, á enginn kubb til að lána í 1 dag sem situr og safnar ryki?

Re: [ÓE] DDR3 kubb að láni

Sent: Mið 30. Okt 2013 11:44
af Eiiki
bump

Re: [ÓE] DDR3 kubb að láni

Sent: Mið 30. Okt 2013 21:36
af GullMoli
Er með 6 kubba sem ég er ekki að nota eins og er en þeir eru allir 1.65V (+ 1-2 bilaðir).

Dugar ekkert að keyra bara Memtest til þess að athuga minnin?

Re: [ÓE] DDR3 kubb að láni

Sent: Fim 31. Okt 2013 10:33
af Eiiki
GullMoli skrifaði:Er með 6 kubba sem ég er ekki að nota eins og er en þeir eru allir 1.65V (+ 1-2 bilaðir).

Dugar ekkert að keyra bara Memtest til þess að athuga minnin?


Ég gerði það og það komu engir errorar. En staðan er sú að ef ég ætla að keyra upp eitthvað stýrikerfi beint á minnin þá frís allt alltaf, sama hvort ég sé með einn kubb í eða ekki og hvor kubburinn sem það er.
Mér finnst þetta hljóma mjög undarlega og það að 1.65V minni séu að valda þessu finnst mér ólíklegt, en vildi hafa þetta staðfest áður en ég fer með vélina í viðgerð þar sem móðurborð+örgjörvi voru keypt svo þeir fari ekki að kenna minnunum um og ég fari að greiða fyrir einhverja viðgerð sem basicly var engin..