Síða 1 af 1
[ÓE] 5.25" floppy drif
Sent: Þri 23. Apr 2013 11:55
af Gislinn
Aldrei hefði mér dottið í hug að árið 2013 væri ég að óska eftir þessum hlut en, er einhver hér sem á 5.25" floppy drif sem virkar sem er til í að selja það?
Einnig eru allar upplýsingar um hvar ég gæti nálgast slíkt drif vel þegnar.
Fyrir þá sem ekki vita hvað 5.25" er þá lítur hann
svona út og er mjúk disketta.
Re: [ÓE] 5.25" floppy drif
Sent: Þri 23. Apr 2013 12:34
af AciD_RaiN
Mig langaði bara að segja gangi þér vel. Ég man eftir svona í 386 véilinni sem afi minn átti en svo hefur maður bara ekkert séð svona síðan

Re: [ÓE] 5.25" floppy drif
Sent: Þri 23. Apr 2013 13:11
af Gislinn
AciD_RaiN skrifaði:Mig langaði bara að segja gangi þér vel. Ég man eftir svona í 386 véilinni sem afi minn átti en svo hefur maður bara ekkert séð svona síðan

Ég sá eitt svona í fyrra í 486 vél, er með alla fingur krosslagða að ég finni svona drif hér. Í versta falli enda ég bara á að panta þetta af ebay.
Re: [ÓE] 5.25" floppy drif
Sent: Þri 23. Apr 2013 15:01
af cartman
Ég á svona drif en ég vil því miður ekki selja það.
Hef ekki prófað það í ansi langan tíma en það virkaði síðast þegar ég vissi, ef það er nóg fyrir þig að fá það lánað þá get ég tékkað hvort það virki ekki örugglega.
Re: [ÓE] 5.25" floppy drif
Sent: Þri 23. Apr 2013 15:25
af demaNtur
Prufa fara í góða hirðinn og kaupa gamla tölvu þar? (þas. ef það eru eitthverjar þar) Mestu líkurnar að þú finnir floppy drif þar held ég

Re: [ÓE] 5.25" floppy drif
Sent: Þri 23. Apr 2013 15:41
af Gislinn
cartman skrifaði:Ég á svona drif en ég vil því miður ekki selja það.
Hef ekki prófað það í ansi langan tíma en það virkaði síðast þegar ég vissi, ef það er nóg fyrir þig að fá það lánað þá get ég tékkað hvort það virki ekki örugglega.
Ég fæ að hafa þig í huga ef enginn á drif til að selja.
demaNtur skrifaði:Prufa fara í góða hirðinn og kaupa gamla tölvu þar? (þas. ef það eru eitthverjar þar) Mestu líkurnar að þú finnir floppy drif þar held ég

Þar sem 5.25" drif eru svo gömul að þá á ég erfitt með að trúa að það finnist þar en ég prufa örugglega að renna þar við og kíkja á það. Takk fyrir ábendinguna.
Re: [ÓE] 5.25" floppy drif
Sent: Þri 23. Apr 2013 16:07
af Farcry
Getur Prófað að fara í Fjölsmiðjuna í kópavogi. þeir sjá um að yfirfara og rifa rafmagnstæki fyrir sorpu.
Re: [ÓE] 5.25" floppy drif
Sent: Þri 23. Apr 2013 16:59
af methylman
Hvað erþetta það er allt til hjá mér, vantar þig kannski diska líka

Re: [ÓE] 5.25" floppy drif
Sent: Þri 23. Apr 2013 19:39
af Gislinn
methylman skrifaði:Hvað erþetta það er allt til hjá mér, vantar þig kannski diska líka

Vantar ekki diska, bara drif. Ef þú átt drif sem þú ert til í að selja þá er ég áhugasamur.

Re: [ÓE] 5.25" floppy drif
Sent: Þri 23. Apr 2013 20:41
af methylman
Gislinn skrifaði:methylman skrifaði:Hvað erþetta það er allt til hjá mér, vantar þig kannski diska líka

Vantar ekki diska, bara drif. Ef þú átt drif sem þú ert til í að selja þá er ég áhugasamur.

Er þetta í eitthvað retro verkefni ?
Re: [ÓE] 5.25" floppy drif
Sent: Þri 23. Apr 2013 20:56
af Gislinn
methylman skrifaði:Er þetta í eitthvað retro verkefni ?
Bara gamalt vinnu backup frá nítján-hundruð-áttatíu-og-eitthvað sem ég þarf að koma yfir á nútímalegra form.
Re: [ÓE] 5.25" floppy drif
Sent: Þri 23. Apr 2013 21:00
af methylman
Gislinn skrifaði:methylman skrifaði:Er þetta í eitthvað retro verkefni ?
Bara gamalt vinnu backup frá nítján-hundruð-áttatíu-og-eitthvað sem ég þarf að koma yfir á nútímalegra form.
Var að senda þér PM með símanr hringdu bara við reddum þessu
Re: [ÓE] 5.25" floppy drif
Sent: Þri 23. Apr 2013 21:05
af Krissinn
Getur athugað í Fjölsmiðjunni í Kópavogi. Ég hef keypt annað slagið tölvudót af þeim og stundum fengið gefins. Þeir eru með fullt fullt af tölvutengdu dóti, bæði nýju og gömlu
