Síða 1 af 1
(ÓE) Kassatölvu ekki of dýrri
Sent: Lau 30. Mar 2013 23:49
af lyfsedill
Hæ er að oska eftir sem fyrst kassatölvu. Tölvan min var að bila á páskum !! þoli ekki þannig. og mig vantar því kassa tölvu
helst 2 til 4 gb í minni
og vel nothæfa í alla netvinnslu og færslu efnis af hörðum diskum.
sendið hér ef þið hafið eitthvað til sölu sem fyrst
kv
Re: (ÓE) Kassatölvu ekki of dýrri
Sent: Mán 01. Apr 2013 06:33
af lyfsedill
upp
Re: (ÓE) Kassatölvu ekki of dýrri
Sent: Þri 02. Apr 2013 07:38
af lyfsedill
upp
Re: (ÓE) Kassatölvu ekki of dýrri
Sent: Þri 02. Apr 2013 18:56
af lyfsedill
er bara engin að selja tölvu

?
Re: (ÓE) Kassatölvu ekki of dýrri
Sent: Mið 03. Apr 2013 12:18
af lyfsedill
upp
Re: (ÓE) Kassatölvu ekki of dýrri
Sent: Fim 11. Apr 2013 08:55
af Frosinn
Jú lyfsedill, hér eru margir til í að selja tölvur, en ástæða þess að menn hafa ekki samband við þig (veit um nokkra) er kannski að leita í því að verðhugmyndir þínar ekki alveg í takt við annarra (eins og marg oft hefur komið í ljós, bæði hér á forums og í spjalli milli vaktara). Þar á ég bæði við ofurlág verðtilboð í dót annarra, sem og verulegt ofmat verða í sölu á eigin dóti. Það er enginn að banna þér að reyna að svínsveigja verðin upp í sölu, og keyra verðtilboð niður úr öllu valdi í kaupum, enda eðli frjálsra markaða á þann veg að hlutir hafa mismunandi virði í augum neytenda. En þú verður þá líka að gera þér grein fyrir að fólk hættir smám saman að nenna að bjóða þér hluti til kaups eða versla af þér dót, a.m.k. þeir sem ekki eru nýkomnir á vaktina og vita ekki betur.
Re: (ÓE) Kassatölvu ekki of dýrri
Sent: Fim 11. Apr 2013 15:53
af Hnykill
viewtopic.php?f=11&t=44739 hérna er ein.. og hann er líka með aðra.
AMD64 3000+
512MiB
Geforce 6800 ultra
120GB HDD
Re: (ÓE) Kassatölvu ekki of dýrri
Sent: Fim 11. Apr 2013 18:37
af lukkuláki
Frosinn skrifaði:Jú lyfsedill, hér eru margir til í að selja tölvur, en ástæða þess að menn hafa ekki samband við þig (veit um nokkra) er kannski að leita í því að verðhugmyndir þínar ekki alveg í takt við annarra (eins og marg oft hefur komið í ljós, bæði hér á forums og í spjalli milli vaktara). Þar á ég bæði við ofurlág verðtilboð í dót annarra, sem og verulegt ofmat verða í sölu á eigin dóti. Það er enginn að banna þér að reyna að svínsveigja verðin upp í sölu, og keyra verðtilboð niður úr öllu valdi í kaupum, enda eðli frjálsra markaða á þann veg að hlutir hafa mismunandi virði í augum neytenda. En þú verður þá líka að gera þér grein fyrir að fólk hættir smám saman að nenna að bjóða þér hluti til kaups eða versla af þér dót, a.m.k. þeir sem ekki eru nýkomnir á vaktina og vita ekki betur.
Það er ekki mikil sanngirni í því sem lyfsedill er að bjóða hvort sem það er kaup eða sala og svo er bara rifið kjaft ef maður setur eitthvað út á það.
Ég geri mér vonir um að þetta sé eitthvað að lagast hjá honum annars verður þetta bara þannig að enginn býður honum neitt og enginn selur honum neitt.
Hann hlýtur nú að sjá það á endanum að það gengur ekki.
Re: (ÓE) Kassatölvu ekki of dýrri
Sent: Fim 11. Apr 2013 21:35
af lyfsedill
ég er bara heimskur hálfviti takk það. Er ekkert mikið í tölvum. Oft veit ég ekkert hvað er rétt og rangt verð á þeim hlutum sem ég hef sett hér í sölu. Eg miða oft við hvað mörg gb í minni vél hefur og verð þá miðað við það. Og eðlilega reyna allir að fá sem mest fyrir sitt sem þeir selja og kaupa á sem lægsta verði. Sé ekkert athugavert við það. og að benda mér á link með 250 þús krona tölvu þegar það er langt frá því sem ég er að sækjast eftir er nátturulega tjah. hvað skal segja - ekki viturlegt. Svo er ekkert að því lukkuláki að koma fyrir mig vitinu í einkapóstum óþarfi að vera rakka mig niður meðal allra sjáandi.