Það er nánast ekkert til af þessu og öllu var hent á haugana.
EN Ef þú finnur bilað eintak eru verkstæðin enga stund að skipta um þétta og jafnvel jonsig hérna á vaktinni reiðubúinn að skipta um fyrir nokkra fimmara.
Ég hef skrifað það áður hérna og skrifa það aftur, ein stærsta ástæða fyrir því að CRT skjám var fleygt í gámavís var vegna þess að verkstæðin voru að rukka stjarnfræðilega háar upphæðir við að skipta um þétta. 50 þúsund kall fyrir 15-20 árum sem var náttúrulega bara glórulaus græðgi. Auðvitað hentu menn þessu bara og keyptu lcd
Ég átti syncmaster sem fór á haugana, fékk tilboð frá tveimur verkstæðum upp á 50 þúsund kall að skipta um þá. Við erum að tala um að í dag væri það kannski 150 þúsund kall, við að skipta um þétta............. Bíddu hvað varð um þessi verkstæði aftur ? uh já, fóru rakleitt á hausinn.
/rage

Ég myndi renna við í góða hirðinum og hjálpræðis og þessum sjoppum, það dúkka alveg oft upp svona hlutir