Að mínu mati skiptir mestu máli fyrir skólatölvu að hún sé létt og með góða rafhlöðuendingu, auk þess sem þú færð þér auðvitað ekki tölvu sem er ekki með SSD disk

Sjálfur myndi ég alveg skoða tölvur niður í 13,3". Í háskólanum flakkaði ég á milli 4 tölva, 14", 12", 2x 13,3", 14" fannst mér full stór og hlunkaleg, 12" var of lítið, 13,3" var mátulegt.
Góð upplausn í skjá er stór kostur, þ.e. svo það sé temmilega þægilegt að vinna með tvö skjöl hlið við hlið á skjánum.
Að því sögðu, þá myndi ég skoða eftirfarandi tölvur:
Tölvutækni - 134.900kr. - Lenovo IdeaPad i5, 8GB, 256GB SSD, 1,2kg og 8klst rafhlaða
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=3222Ef hún bilar, þá heyrirðu bara í Dr. Gunna.
Computer.is - 126.900kr. - Asus Zenbook Core M, 8GB, 512GB SSD, 1,3kg og 12klst rafhlaða
https://www.computer.is/is/product/fart ... -256ssd-siATH. gæti verið með US lyklaborði... sem væri dealbreaker fyrir mér
EF hún er með US, þá myndi ég skoða næsta bæ við hjá Att:
https://www.att.is/product/zenbook-ux31 ... d-skja-ssdSjálfur tæki ég Lenovo framyfir Asus, þar sem ég geri ráð fyrir að Lenovo færi í ábyrgðarviðgerð hjá Nýherja ef eitthvað kemur upp á, sem eru með alveg fyrirtaks verkstæði, Asus viðgerð tæki nokkuð örugglega lengri tíma (einhverjar vikur).
Svo ef þú átt nóg af pening, þá geturðu skoðað þessa, svona af því bara:
https://www.computer.is/is/product/fart ... b-512-w10p