Það sem gaurinn á í dag er 8 ára gömul aldrei verið uppfærð DELL tölva og 23 "Samsung SyncMaster p2370 sem er náttúrulega glæpur útaf fyrir sig og er ég hissa að barnaverndarnefnd sé ekki búin að banka upp hjá mér

Var búin að kíkja í Kísildal þar sem mér leist nú nokkuð vel á ódýra leikjaturninn þeirra enn geri ráð fyrir að maður fái meira fyrir peninginn með því að kaupa þetta notað
Hef ekki mikið vit á Tölvum og óska því eftir að öll tilboð séu birt á þræðinum í von um að aðrir notendur aðstoði mig við að dæma hvað sé sanngjarnt og hvað ekki,ég veit þið hafið lúmskt gaman að því


Með von um hjálp og góð viðskipti
kveðja Lilja