Síða 1 af 1

Ground loop Isolator

Sent: Lau 17. Maí 2025 15:17
af Lego_Clovek
sælir vaktarar

er einhver staðar hægt að fá ground loop isolator hérna á landi?
er að reyna að fá hljóð úr snjónvarpi í mixer í gegnum jack svo ég heyri í sjónvarpinu og tölvuni á sama tíma og það er frekar mikið buzzing hljóð, er buinn að reyna að allt. sýnist þetta vera ein lausn á þessu.
eitthvað svipað þessu
https://www.amazon.com/BESIGN-Ground-Isolator-Stereo-System/dp/B06XQYN77L?th=1

Re: Ground loop Isolator

Sent: Lau 17. Maí 2025 19:37
af gnarr
Það er mjög líklegt að það sé rosalega lélegur formagnari í sjónvarpinu og það sé ástæðan fyrir suðina. Mögulega gæti verið sniðugra að taka hljóðið úr sjónvarpinu í gegnum optical og breyta því merki yfir í analog alveg við mixerinn.

Re: Ground loop Isolator

Sent: Lau 17. Maí 2025 19:49
af russi
Fyrir um það bil milljón árum fékk ég svona í Elnet, sé það ekki á síðunni þeirra, en ég veit að hún er ekki tæmandi.

Íhlutir eiga þetta mögulega til og jafnvel Computer.is, þeir eru duglegir að eiga allskonar.

Annars ertu að fara leita til Exton, Luxor og slikra gæja.

Þessi Ground Looper sem þú póstaðir er á óvenjugóðu verði, allavega miðað við hvað svona kostaði fyrir þessum milljón árum

Re: Ground loop Isolator

Sent: Lau 17. Maí 2025 20:03
af olihar
Ég keypti svona í Íhlutum í gamla daga, pottþétt til þar.

Re: Ground loop Isolator

Sent: Sun 18. Maí 2025 18:26
af Lego_Clovek
gnarr skrifaði:Það er mjög líklegt að það sé rosalega lélegur formagnari í sjónvarpinu og það sé ástæðan fyrir suðina. Mögulega gæti verið sniðugra að taka hljóðið úr sjónvarpinu í gegnum optical og breyta því merki yfir í analog alveg við mixerinn.


það er ekki optical á tækninu nefnilega, bara 3.5 jack, hdmi arc og bluetooth, gæti fundið einhverja lausn með bluetooth núna þegar ég hugsa út í það.