Komið þið sæl,
Hvernig get ég náð AppleTV+ á Íslandi. Skv. heimasíðu Apple er Ísland ekki til í Evrópu en ég held ég megi segja ÖLL önnur lönd Evrópu utan Íslands geta skráð sig í þjónustu AppleTV+. Meiri skúrkarnir.
Að þessu sögðu vitið þið hvort það er leið til að skrá sig fyrir AppleTV+ verandi staddur á Íslandi og með íslenska IP tölu? Ráð vel þegin.
Kveðja,
Ingólfur
Apple TV+ á Íslandi
-
- Nýliði
- Póstar: 19
- Skráði sig: Mið 23. Sep 2020 10:16
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Re: Apple TV+ á Íslandi
Þarft bara að stofna Apple reikning i einhverju öðru landi en Íslandi, er með reikning skráðan í BNA, ekkert ves
Síðast breytt af rafn_daniel á Fim 01. Maí 2025 22:20, breytt samtals 1 sinni.
Re: Apple TV+ á Íslandi
Þarf bara Apple reikning í öðru landi t.d. USA þarf ekkert að VPN-a eða slíkt.
Þú getur svo keypt Apple inneignarkort beint á Apple.com.
Þú getur svo keypt Apple inneignarkort beint á Apple.com.
-
- FanBoy
- Póstar: 784
- Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
- Reputation: 194
- Staðsetning: Terran Empire
- Staða: Ótengdur
Re: Apple TV+ á Íslandi
olihar skrifaði:Þú getur svo keypt Apple inneignarkort beint á Apple.com.
Er það hægt? Mér hefur ekki tekist að gera það með mínu korti, aftur á móti man ég ekki hvort ég loggaði mig inn til þess.
Kaupi þau bara af Apple í gegnum Amazon í staðinn
Re: Apple TV+ á Íslandi
Já var opnað á þetta fyrir einhverjum 4-5 árum. Var alltaf lokað á þetta nema þú værir með USA kredit Kort.
Setur bara nafn og email hjá þér í báða reitina (s.s. Ert að gefa sjálfum þér kortið) færð svo kortið yfirleitt innan 5 mín, lengsta sem ég hef þurft að bíða var kannski korter.
https://www.apple.com/shop/buy-giftcard/giftcard

Ég gafst uppá að vera með allar þessar streymisveitur og fá bara brotabrot af efni , þetta region dæmi er alveg frekar þreytt, svo kannski er maður í miðju áhorfi á einhverja seríu þegar það er bara tekið út af veitunni allt í einu. nota bara Stremio með realdebrid í dag. horfi á allt þar í fullum gæðum.
Ekkert jafn glatað og að horfa á þætti eða myndir á Sjónvarpi símans sem dæmi í Stereo tveggja rása útsendingu í Dolby Atmos heimabíó kerfi þegar efnið er til í Dolby Atmos.
Ekkert jafn glatað og að horfa á þætti eða myndir á Sjónvarpi símans sem dæmi í Stereo tveggja rása útsendingu í Dolby Atmos heimabíó kerfi þegar efnið er til í Dolby Atmos.