Síða 1 af 1
Öryggismyndavélar - heimili
Sent: Mið 12. Mar 2025 09:26
af blitz
Hæ.
Langar að setja upp einfalt myndavélakerfi heima.
Hugsa 2-3 myndavélar að utan.
Vill helst sleppa við batterí og mánaðarlega áskrift. Ekki nema ég sé að horfa á það að hlaða vélarnar afskaplega sjaldan - það er auðvitað kostur að losna við að koma köplum að vélunum.
Möguleiki á snjalldyrabjöllu kostur.
Er ég ekki á réttri leið að telja að:
Ubiquiti CloudKey+
G5 Dome
PoE switch
Sé málið? Hef ekki fundið annað á minni vegferð.
Re: Öryggismyndavélar - heimili
Sent: Mið 12. Mar 2025 10:26
af olihar
Er það ekki bara þessi.
https://eu.store.ui.com/eu/en/category/ ... ateway-maxPOE switch / injector
Og velja camerur.
Re: Öryggismyndavélar - heimili
Sent: Mið 12. Mar 2025 10:39
af jericho
Ég keypti kit með 6 myndavélum og 2TB hörðum disk hjá Alla frænda árið 2019. Svínvirkar ennþá og var alls ekki dýrt. Get notað app til að skoða live streymi eða upptökur. Ef þú þarft ekkert fancy, þá get ég mælt með svona lausn.
Re: Öryggismyndavélar - heimili
Sent: Mið 12. Mar 2025 10:54
af olihar
jericho skrifaði:Ég keypti kit með 6 myndavélum og 2TB hörðum disk hjá Alla frænda árið 2019. Svínvirkar ennþá og var alls ekki dýrt. Get notað app til að skoða live streymi eða upptökur. Ef þú þarft ekkert fancy, þá get ég mælt með svona lausn.
Og allur heimurinn getur horft með þér…
Re: Öryggismyndavélar - heimili
Sent: Mið 12. Mar 2025 11:26
af Maniax
blitz skrifaði:Hæ.
Langar að setja upp einfalt myndavélakerfi heima.
Hugsa 2-3 myndavélar að utan.
Vill helst sleppa við batterí og mánaðarlega áskrift. Ekki nema ég sé að horfa á það að hlaða vélarnar afskaplega sjaldan - það er auðvitað kostur að losna við að koma köplum að vélunum.
Möguleiki á snjalldyrabjöllu kostur.
Er ég ekki á réttri leið að telja að:
Ubiquiti CloudKey+
G5 Dome
PoE switch
Sé málið? Hef ekki fundið annað á minni vegferð.
Þessar Dome vélar eru forljótar og of dýrar- Cloudkey er gamalt, hægt og leiðinlegt og líklega dettur út hjá þeim bráðlega
Dream Machine SE - 475€ (Innbyggt POE 180w á 8 portum)
3x G5 Turrets - 80€
+ Diskur
Re: Öryggismyndavélar - heimili
Sent: Mið 12. Mar 2025 11:36
af dori
Ég er með unifi netbúnað og fékk mér einhverja G3 instant (tengd í rafmagn en wifi) sem ég nota til að fylgjast með hundinum mínum þegar ég er ekki heima. Svo fékk ég mér bjölluna þeirra (G4, ekki pro) sem tengist kerifnu með wifi en fær rafmagn með bjölluspenni og hringir líka gamalli mekanískri bjöllu.
Þetta virkar allt bara stórkostlegt og ég hef ekki yfir neinu að kvarta. Nota þetta mest til að sjá "hvað er að gerast núna" í gegnum mobile appið en ekki beint sem "öryggismyndavél" nema mögulega einu sinni þegar ég notaði þetta til að sækja nokkra klukkutíma af myndefni nokkra daga aftur í tímann fyrir nágranna til að sjá umferð hjá bílskúrnum þeirra sem sést smá í bakgrunni hjá mér í dyrabjöllumyndavélinni. Mér fannst bara voðalega fínt að vinna með þetta viðmót til að sækja þær klippur.
Re: Öryggismyndavélar - heimili
Sent: Mið 12. Mar 2025 12:11
af TheAdder
Einfaldasta leiðin er Cloud Gateway Max með ssd, og svo WiFi myndavélarnar hjá UniFi, G4 instant. Þarf að koma spennu að þeim, en ekki netlögn.
Re: Öryggismyndavélar - heimili
Sent: Mið 12. Mar 2025 12:38
af Skari
Ajax
Re: Öryggismyndavélar - heimili
Sent: Mið 12. Mar 2025 17:07
af ColdIce
Ég er mjög ánægður með Eufy kerfið mitt. Bætti við það hitaskynjara og hitastilli í garðhúsinu og get fengið dyrabjöllu við það
Re: Öryggismyndavélar - heimili
Sent: Fim 13. Mar 2025 14:10
af nidur
Held að þú sért alveg á réttri leið með unifi í þessu.
Re: Öryggismyndavélar - heimili
Sent: Fös 21. Mar 2025 09:41
af blitz
Mjög gagnlegt - takk!
Planið er þá núna að kaupa:
- Cloud gateway MAX
- G4 Doorbell Pro (Wifi - sýnist hún virka með mekanísku chime)
- nokkrar G4 instant.
Tengja þetta við núverandi Asus router og athuga seinna með að setja AP inni í hús.
Hvar er best að versla þetta - beint af EuroDK eða ui.com?
Re: Öryggismyndavélar - heimili
Sent: Fös 21. Mar 2025 10:17
af hagur
blitz skrifaði:Mjög gagnlegt - takk!
Planið er þá núna að kaupa:
- Cloud gateway MAX
- G4 Doorbell Pro (Wifi - sýnist hún virka með mekanísku chime)
- nokkrar G4 instant.
Tengja þetta við núverandi Asus router og athuga seinna með að setja AP inni í hús.
Hvar er best að versla þetta - beint af EuroDK eða ui.com?
En að fara bara í UDM Pro/UDM Pro SE og sleppa Cloud gateway max og sleppa þessum Asus router? Bara pæling.
Re: Öryggismyndavélar - heimili
Sent: Fös 21. Mar 2025 10:27
af blitz
hagur skrifaði:blitz skrifaði:Mjög gagnlegt - takk!
Planið er þá núna að kaupa:
- Cloud gateway MAX
- G4 Doorbell Pro (Wifi - sýnist hún virka með mekanísku chime)
- nokkrar G4 instant.
Tengja þetta við núverandi Asus router og athuga seinna með að setja AP inni í hús.
Hvar er best að versla þetta - beint af EuroDK eða ui.com?
En að fara bara í UDM Pro/UDM Pro SE og sleppa Cloud gateway max og sleppa þessum Asus router? Bara pæling.
Ég er alveg grænn - er Gateway MAX ekki router? Sem myndi duga fyrir afskaplega einfalt heimanet? Asus myndi bara lifa þangað til að ég myndi fá mér 1 eða 2 AP.
Re: Öryggismyndavélar - heimili
Sent: Fös 21. Mar 2025 10:31
af hagur
blitz skrifaði:hagur skrifaði:blitz skrifaði:Mjög gagnlegt - takk!
Planið er þá núna að kaupa:
- Cloud gateway MAX
- G4 Doorbell Pro (Wifi - sýnist hún virka með mekanísku chime)
- nokkrar G4 instant.
Tengja þetta við núverandi Asus router og athuga seinna með að setja AP inni í hús.
Hvar er best að versla þetta - beint af EuroDK eða ui.com?
En að fara bara í UDM Pro/UDM Pro SE og sleppa Cloud gateway max og sleppa þessum Asus router? Bara pæling.
Ég er alveg grænn - er Gateway MAX ekki router? Sem myndi duga fyrir afskaplega einfalt heimanet? Asus myndi bara lifa þangað til að ég myndi fá mér 1 eða 2 AP.
Jú það er rétt, misskildi aðeins. Hélt þú ætlaðir að nota Asus-inn sem router.
Re: Öryggismyndavélar - heimili
Sent: Fös 21. Mar 2025 10:42
af russi
[
blitz skrifaði:
Hvar er best að versla þetta - beint af EuroDK eða ui.com?
Ég hef pantað frá báðum stöðum. Hef samt haldið mig við ui.com þegar kemur að Ubiquiti/UniFibúnaði. Snöggir að senda og allt uppá 10.
Held að þetta sé alveg sama verðið þegar uppi er staðið