Síða 1 af 1
LG sjónvarp og Sjónvarp Símans
Sent: Þri 05. Nóv 2024 18:43
af SneezeGuard
Sæl/ir
Ég var að fá mér nýtt LG sjónvarp og samkvæmt frétt á siminn.is frá 12. maí 2023 á Sjónvarp Símans appið að vera aðgengilegt í því. Mér tekst hins vegar engan veginn að finna það.
Tækið er þetta hér:
https://ht.is/lg-75-qd-nanocell-uhd-sma ... arp-1.htmlÞar er meira að segja tekið fram að það ætti að ná Sjónvarpi Símans. Ég fann NovaTV app, en mér sýnist ég þurfa að vera þá með áskrift í gegnum Nova en ekki símann.
Upplýsingar um sjónvarp:
[LG] webOS TV QNED756RA
webOS TV Version: webOS23 / 8.4.0-2001
Eina sem ég sé er að í auglýsingu stendur webOS24, en tækið virðist vera með webOS23
Ég er búinn að uppfæra sjónvarpið og setja region á Iceland.
Getur einhver leiðbeint mér með hvað ég er að gera rangt?
Re: LG sjónvarp og Sjónvarp Símans
Sent: Þri 05. Nóv 2024 20:38
af TheAdder
Ertu búinn að endurræsa tækið eftir að þú stilltir það á Ísland?
Re: LG sjónvarp og Sjónvarp Símans
Sent: Þri 05. Nóv 2024 20:41
af SneezeGuard
TheAdder skrifaði:Ertu búinn að endurræsa tækið eftir að þú stilltir það á Ísland?
Ég stillti það á Ísland í upphafi, og síðan þá hef ég endurræst það nokkrum sinnum vegna uppfærslu og til að samþykkja uppfærða skilmála.
Re: LG sjónvarp og Sjónvarp Símans
Sent: Mið 06. Nóv 2024 03:12
af Opes
Þú gætir þurft að sækja á LG síðunni, setja á USB lykil og uppfæra þannig.
Skoðaðu
þetta og byrjaðu á TV Software Update Guide, þarft að ganga úr skugga um að þetta sé pottþétt firmware fyrir rétt model.
Re: LG sjónvarp og Sjónvarp Símans
Sent: Mið 06. Nóv 2024 21:13
af svanur08
Ég fékk webOS24, þó mitt TV væri webOS23, mæli með að uppfæra í það, ef þú ert ekki búinn að því.
Re: LG sjónvarp og Sjónvarp Símans
Sent: Mið 06. Nóv 2024 21:18
af svanur08
Færð FILMMAKER MODE í Dolby Vision.
Re: LG sjónvarp og Sjónvarp Símans
Sent: Sun 15. Des 2024 21:10
af T-bone
Aðeins að hijacka þræðinum.
Var að fá mér LG sjónvarp með WebOS og ég finn vissulega sjónvarp símans en ég finn ekki RÚV eða Stöð 2 öspin.
Ég var alveg viss um að þau ættu að vera aðgengileg. Er það bull í mér?
Ef engin "eðlileg" leið til að setja þau upp, hefur einhver fundið apk file-ana fyrir þessi öpp og náð að setja þau upp af usb?
Kv. Anton
Re: LG sjónvarp og Sjónvarp Símans
Sent: Sun 15. Des 2024 22:49
af Enokfanndal
Ég breytti staðsetningu í spán þá fann ég siminn appið.
Kannast ekki við að það sé hægt að vera með RÚV eða stöð 2 appið enn það er hægt að vera með Nova tv
Einnig ef maður er með siminn móttakara þá hef ég stundum þurft að breyta um land til að synca magic remote vip hann.
Re: LG sjónvarp og Sjónvarp Símans
Sent: Mið 18. Des 2024 22:57
af Sinnumtveir
Hei, hættið að kaupa þetta "lock-in" drasl, webOS, Tizen, Titan osfrv.
TCL, Sony og sennilega fleiri bjóða Android-TV og Google-TV, þeas ekkert vesen og allir sáttir.
Re: LG sjónvarp og Sjónvarp Símans
Sent: Fim 19. Des 2024 01:56
af Manager1
Sinnumtveir skrifaði:Hei, hættið að kaupa þetta "lock-in" drasl, webOS, Tizen, Titan osfrv.
TCL, Sony og sennilega fleiri bjóða Android-TV og Google-TV, þeas ekkert vesen og allir sáttir.
Ég er algjörlega sammála, ég keypti LG sjónvarp fyrir 3 árum og sé eftir því að hafa ekki skoðað betur hvaða íslensku öpp voru í boði. Næst verður þetta það fyrsta sem ég skoða.
Re: LG sjónvarp og Sjónvarp Símans
Sent: Fim 19. Des 2024 08:29
af T-bone
Manager1 skrifaði:Sinnumtveir skrifaði:Hei, hættið að kaupa þetta "lock-in" drasl, webOS, Tizen, Titan osfrv.
TCL, Sony og sennilega fleiri bjóða Android-TV og Google-TV, þeas ekkert vesen og allir sáttir.
Ég er algjörlega sammála, ég keypti LG sjónvarp fyrir 3 árum og sé eftir því að hafa ekki skoðað betur hvaða íslensku öpp voru í boði. Næst verður þetta það fyrsta sem ég skoða.
Ég hélt í einfeldni minni að ég hefði kynnt mér þetta þegar afgreiðslumaðurinn sem virkaði eins og alvöru nörd á mig (sem er 100% jákvætt bara svo það komi fram) fullyrti að öll íslensku öppin virkuðu á WebOS....
Ég klárlega skoða þetta betur næst því að það fer ekkert eðlilega í taugarnar á mér að maður sé að kaupa SMART sjónvarp en þurfi svo að kaupa eitthvað andskotans sjónvarpsbox með auka fjarstýringu og fleiri snúrum til þess að fá almennilegan smart fídus.
Ég fræsti fyrir tengli á vegginn hjá mér fyrir sjónvarpið þegar ég tók allt í gegn til þess að geta haft ekki eina einustu snúru frá sjónvarpinu
Re: LG sjónvarp og Sjónvarp Símans
Sent: Fim 19. Des 2024 11:21
af kornelius
Manager1 skrifaði:Sinnumtveir skrifaði:Hei, hættið að kaupa þetta "lock-in" drasl, webOS, Tizen, Titan osfrv.
TCL, Sony og sennilega fleiri bjóða Android-TV og Google-TV, þeas ekkert vesen og allir sáttir.
Ég er algjörlega sammála, ég keypti LG sjónvarp fyrir 3 árum og sé eftir því að hafa ekki skoðað betur hvaða íslensku öpp voru í boði. Næst verður þetta það fyrsta sem ég skoða.
Ég er algjörlega ósammála, ég keypti mér LG sjónvarp fyrir þremur árum og valdi OLED vegna myndgæðanna, það eru jú LG sem framleiða alla þessa OLED panela. Varðandi RÚV í WebOS að þá nota ég einfaldlega Sjónvarp Símans appið sem gerir manni kleyft að horfa á allt það sem Android og Apple öppin veita manni, þannig að ég skil ekki þessa kvörtun um að það vanti RÚV app í WebOS + að þú þarft ekki að borga Símanum krónu fyrir þessa þjónustu, loggar þig bara inn með GSM skilríkjum, búinn að hafa þetta svona í ein 2 ár. Þessu til viðbótar að þá getur maður horft á eldri þætti í gegn um Sjónvarp Símanns appið.
K.
Re: LG sjónvarp og Sjónvarp Símans
Sent: Fim 19. Des 2024 14:19
af Viggi
Tengdi google tv stick við mitt sjónvarp sem virkar oftast fínt en getur verið voða sluggish oft og þarf að bíða eftir að það ræsi sig alveg. og að þessi tæki eru oftast bara með 2gb ram er stórfurðulegt
Re: LG sjónvarp og Sjónvarp Símans
Sent: Fim 19. Des 2024 14:34
af kizi86
Er með 65" LG B8, nota bara Kodi fyrir allar mínar áhorfsþarfir (þurfti að sideload-a appinu) Sarpurinn fyrir rúv (þegar konan vill horfa á eurovision eða skaupið, nánast einu tilfellin sem sett er á rúv á þessu heimili

) svo er ég með addon fyrir netflix og prime, og svo crew/seren fyrir allt sem er ekki á prime eða flixinu, hef alltaf fílað einfaldleikan í notendaviðmótinu í Kodi, svo er ég með trakt.tv addon til að halda utanum hvað ég sé búinn að sjá eða ekki. eitt notendaviðmót, fyrir allt sem ég horfi á, gerist ekki þæginlegra