Síða 1 af 1

Jæja, keypti 65" tæki hjá Tölvutek

Sent: Fös 01. Júl 2022 17:08
af netkaffi
89.990 kr.
Læt ykkur vita hvernig það er bráðum. (Undirbý mig undir skítkast :megasmile)

Re: Jæja, keypti 65" tæki hjá Tölvutek

Sent: Fös 01. Júl 2022 17:26
af mikkimás
Er þetta ekki bara fínt tæki ef þú ert ekki að missa þig yfir refresh rate?

Re: Jæja, keypti 65" tæki hjá Tölvutek

Sent: Fös 01. Júl 2022 17:57
af Hausinn
Efast að það verði mikið um að segja. Þessi ódýru LCD tæki eru öll frekar sambærileg; ómerklegt birtustig og grátt í stað svarts, annars mjög nothæft.

Re: Jæja, keypti 65" tæki hjá Tölvutek

Sent: Lau 02. Júl 2022 12:26
af falcon1
Ef það uppfyllir þínar væntingar þá er ekkert annað en gott um það að segja. :D

Re: Jæja, keypti 65" tæki hjá Tölvutek

Sent: Lau 02. Júl 2022 18:08
af svanur08
Til hamingju með nýja tækið, fínasta verð á svona stóru TV. Engin skot frá mér.

Re: Jæja, keypti 65" tæki hjá Tölvutek

Sent: Lau 02. Júl 2022 20:26
af Moldvarpan
Verður gaman að heyra hvað hann segir.

Þetta er á mjög góðu verði. Spurning með gæðin, en þetta er með HDR, svo það getur ekki verið svo slæmt..

En ég skil alveg hvað þú meinar netkaffi, það eru margir hérna sem lýta ekki á annað en top of the line hlutum.

Re: Jæja, keypti 65" tæki hjá Tölvutek

Sent: Lau 02. Júl 2022 20:42
af Dr3dinn
Hef keypt 2x 55" svona tæki til fyrir vini og vandamenn.... ef menn eru ekki í fótbolta áhorfi / teiknimyndir / 4K náttúrulífsmyndum / tölvuleikjum sér meðal maðurinn engan mun á þessu. Sé sjálfur mun á þessu og míni eign samsung/LG/panastonic en 70-90þ vs 200-400þ...

Fyrir netflix og bein tengja í PC vélar / plex... er þetta tæki mikið meira en nóg fyrir flesta.