Ódýrar og góðar snúrur


Höfundur
fhrafnsson
Ofur-Nörd
Póstar: 238
Skráði sig: Sun 26. Sep 2010 14:00
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Ódýrar og góðar snúrur

Pósturaf fhrafnsson » Þri 27. Júl 2021 08:21

Nú vantar mig góða HDMI snúru sem dugar fyrir Dolby vision og HDR (tengi TV -- Soundbar -- Shield) þar sem eina HDMI snúran mín sem dugar er allt of stutt. Eins og flestir vita er yfirleitt okrað vel á snúrum hér á landi og því langar mig að athuga hvar sé best að versla snúrur sem eru bæði nógu góðar en samt ekki allt of dýrar.

Einhver með góð ráð? :)




JReykdal
Tölvutryllir
Póstar: 695
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 18:59
Reputation: 154
Staða: Ótengdur

Re: Ódýrar og góðar snúrur

Pósturaf JReykdal » Þri 27. Júl 2021 12:43



Vinsamlegast athugið: Skoðanir mínar sem birtast hér eru mínar og mínar einar en ekki
vinnuveitenda minna,vina og vandamanna, gæludýra og húsgagna nema annað sé tekið fram.

Skjámynd

Zethic
spjallið.is
Póstar: 444
Skráði sig: Sun 05. Sep 2010 17:55
Reputation: 71
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Ódýrar og góðar snúrur

Pósturaf Zethic » Þri 27. Júl 2021 15:15

HDMI snúrur eiga að fylgja stöðlum. Allt annað er markaðssetning
Þú ert safe með HDMI 2.1 þar sem þú finnur ódýrast

https://en.wikipedia.org/wiki/HDMI#Main_specifications
https://en.wikipedia.org/wiki/HDMI#Refr ... dard_video
Síðast breytt af Zethic á Þri 27. Júl 2021 15:17, breytt samtals 1 sinni.




Höfundur
fhrafnsson
Ofur-Nörd
Póstar: 238
Skráði sig: Sun 26. Sep 2010 14:00
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: Ódýrar og góðar snúrur

Pósturaf fhrafnsson » Þri 27. Júl 2021 16:17

Já ég hélt það einmitt þangað til ég fékk flicker á sjónvarpið mitt þegar ég virkjaði Dolby vision. Ég fékk skilaboð um að snúran gæti verið verri og eftir að prufa tvær fann ég eina sem virkaði. Ef ég skipti snúrum (tek þessa úr tv -- soundbar og set í shield -- soundbar) þá fæ ég aftur flicker.

Eftir smá google leit virðist það einnig svoleiðis að aðrir séu að lenda í svipuðu.




TheAdder
Tölvutryllir
Póstar: 667
Skráði sig: Mið 09. Des 2020 11:22
Reputation: 187
Staða: Ótengdur

Re: Ódýrar og góðar snúrur

Pósturaf TheAdder » Þri 27. Júl 2021 16:55

Ultra High Speed HDMI er 2.1 speccuð snúra.
Ef hún hefur verið prófuð eftir staðlinum, ekki bara framleidd eftir honum, þá á að vera QR kóði á pakkningunni sem official appið getur skannað.


NZXT 710i - Ryzen 7 5800X - 32GiB 3200 M/T RAM - X570 Aorus Ultra - PowerColor Radeon RX 7900 XTX - 1TB Samsung 970 Pro, 2TB Samsung 970 Evo