Síða 1 af 1

Hljóðeinangra bílskúr

Sent: Fös 14. Maí 2021 02:55
af BugsyB
Sælir ég var að breyta bílskúrnunm mínum í bíosal og það heyrist allveg fáranlega mikið útr frá honum enda með flott hljóðkerfi - er einvher sem sérhæfir sig í að hljóðeinangra og getur komið og gefið tilboð eða gefið góð ráð.

Re: Hljóðeinangra bílskúr

Sent: Fös 14. Maí 2021 08:54
af Squinchy
Kaupir tumbur, grindarefni 21x70 eða 34x70, vinnkla til að festa grindina við vegg, þétt steinull sem er 70x570x1200. Bil milli timburs er þá 57cm, treður steinullinni á milli og kaupir svo dökkt efni í metravís sem passar vel við bíósals þemað, heftar það við timbrið og tússar svo með svörtu á heftin svo þau sjáist ekki

Re: Hljóðeinangra bílskúr

Sent: Fös 14. Maí 2021 09:59
af Viktor
Hvernig lítur bílskúrinn út og hvert er budgetið?

Þú vilt líklega byrja á því að reyna að smíða eitthvað yfir hurðir og glugga.

En þetta gerir aldrei neitt af viti nema að þú sért til í að setja frekar góða summu í þetta.

Re: Hljóðeinangra bílskúr

Sent: Fös 14. Maí 2021 14:52
af Hizzman
ekki víst að þetta sé auðvelt verkefni, ef hljóðbylgjurnar láta steypuna nötra (ef þetta er steinhús) er ekki nóg að einangra veggina, loftið og gólfið taka líka við hávaða. annars veit ég ekkert um svona, er bara að fabúlera

Re: Hljóðeinangra bílskúr

Sent: Fös 14. Maí 2021 15:10
af Diddmaster
Er nýbúinn að horfa á þetta myndband fer vel yfir Hljóðeinangrun en það eru margar aðferðir til þess og ekki allir sammála um hvað sé best

https://youtu.be/ErGqRzzz_Vw