Síða 1 af 1

Keyra Android (eða bara Android app) á Raspberry Pi 1?

Sent: Þri 13. Apr 2021 21:08
af DoofuZ
Ég á Raspberry Pi 1 Model B sem ég hef frekar lítið fiktað með en hef núna verið að skoða möguleikann á að keyra Android eða bara eitthvað sambærilegt stýrikerfi sem gæti keyrt Android öpp, en þar er ég reyndar aðallega bara að spá í Nova TV appið.

Ég veit að það er núna hægt að setja Android stýrikerfið inná Pi 3 og nýrra en er einhver möguleiki á því á Pi 1? Er búinn að gúgla allt vit frá mér og hef bara ekki tekist að finna neina lausn, efast um að þetta sé hægt en hvað veit maður svosem? 8-[

Re: Keyra Android (eða bara Android app) á Raspberry Pi 1?

Sent: Mið 14. Apr 2021 16:21
af Dropi
Rpi1 er svo ótrúlega hæg, ég get ekki mælt með að eyða miklum tíma í þetta nema þér finnist það ótrúlega gaman :)

Re: Keyra Android (eða bara Android app) á Raspberry Pi 1?

Sent: Mið 14. Apr 2021 16:46
af DoofuZ
Ég hef eiginlega ekkert annað að gera við þessa tölvu, finnst gaman að fikta og langar mjög mikið að fá þetta til að virka. Er að vísu búinn að eyða aðeins of miklum tíma í gúgl og prófarnir sem hafa ekki skilað neinu enn sem komið er og er ekki bjartsýnn á framhaldið.

Er enginn séns á að geta keyrt Nova TV appið á Pi 1? Get ég ekki sett eitthvað einfalt Linux kerfi upp á tölvunni og keyrt apk í einhverjum emulator þar eða eitthvað slíkt? :-k

Re: Keyra Android (eða bara Android app) á Raspberry Pi 1?

Sent: Mið 14. Apr 2021 19:38
af mjolkurdreytill
DoofuZ skrifaði:Ég hef eiginlega ekkert annað að gera við þessa tölvu, finnst gaman að fikta og langar mjög mikið að fá þetta til að virka. Er að vísu búinn að eyða aðeins of miklum tíma í gúgl og prófarnir sem hafa ekki skilað neinu enn sem komið er og er ekki bjartsýnn á framhaldið.

Er enginn séns á að geta keyrt Nova TV appið á Pi 1? Get ég ekki sett eitthvað einfalt Linux kerfi upp á tölvunni og keyrt apk í einhverjum emulator þar eða eitthvað slíkt? :-k

Er ekki einfaldasta svarið bara að prófa að fylgja leiðbeiningum fyrir Raspberry 3 og sjá hvað kemur út úr því?

Í versta falli virkar þetta ekki. En þó svo að þetta virki. Mun þessi tölva geta streymt sjónvarpsefni?

Re: Keyra Android (eða bara Android app) á Raspberry Pi 1?

Sent: Mið 14. Apr 2021 21:56
af DoofuZ
mjolkurdreytill skrifaði:Er ekki einfaldasta svarið bara að prófa að fylgja leiðbeiningum fyrir Raspberry 3 og sjá hvað kemur út úr því?

Í versta falli virkar þetta ekki. En þó svo að þetta virki. Mun þessi tölva geta streymt sjónvarpsefni?

Ég prófaði einmitt að fara eftir leiðbeiningum fyrir uppsetningu á Android TV (LineageOS) fyrir Pi 3/4 en það virkaði bara ekki, þegar ég kveikti á tölvunni þá fékk ég bara svona regnbogakassa á skjáinn sem þýðir víst að tölvan er of léleg fyrir stýrikerfið :| Hélt líka fyrst að ég væri með Pi 3, opnaði svo boxið sem tölvan er í til að skoða betur og var þá viss um að þetta væri Pi 2 en komst á endanum að því að þetta sé víst bara Pi 1 model B :roll:

Ég hef prófað að vera með media center á þessu (var með XBMC) og það virkaði alveg svo tölvan ræður alveg við að spila myndefni.

Er enginn Pi sérfræðingur hérna sem getur sagt mér hvort þetta sé hægt eða ekki? Hefur kannski enginn séð ástæðu til þess að reyna við þetta á Pi 1 þar sem þetta er hægt á 3 og uppúr?

Re: Keyra Android (eða bara Android app) á Raspberry Pi 1?

Sent: Mið 14. Apr 2021 23:40
af hagur
Held þú getir gleymt þessu. Pi 1 hefur ekki afl til að keyra þetta, ef þú gætir yfir höfuð installað þessu.

Re: Keyra Android (eða bara Android app) á Raspberry Pi 1?

Sent: Fim 15. Apr 2021 11:47
af thrkll
Kannski frekar ólíklegt að það eitt sé vandamálið, en er spennubreytirinn sem þú ert að nota ekki örugglega með 1.2A eða hærra output (sem er það sem RPi 1 B krefst)?

Ef ég man rétt er regnbogakassinn yfirleitt til marks um vitlaust power supply.

Re: Keyra Android (eða bara Android app) á Raspberry Pi 1?

Sent: Fim 15. Apr 2021 14:29
af DoofuZ
thrkll skrifaði:Kannski frekar ólíklegt að það eitt sé vandamálið, en er spennubreytirinn sem þú ert að nota ekki örugglega með 1.2A eða hærra output (sem er það sem RPi 1 B krefst)?

Ef ég man rétt er regnbogakassinn yfirleitt til marks um vitlaust power supply.

Ég á ekki spennubreyti, hef bara notað usb snúru í rafmagn sem er bara 1A 8-[ Var einmitt að skoða það að kaupa spennubreyti en fann bara einn í Computer.is og hann er ekki til. Held ég verði þá að kaupa einn svoleiðis erlendis frá og verð þá bara að bíða með að prófa þetta meira í bili :|

Re: Keyra Android (eða bara Android app) á Raspberry Pi 1?

Sent: Fös 16. Apr 2021 08:03
af hagur
DoofuZ skrifaði:

Áttu ekki USB símahleðslutæki? Þau eru flest c.a 2 amper eða meira. Virka fínt með Raspberry Pi.

Re: Keyra Android (eða bara Android app) á Raspberry Pi 1?

Sent: Fös 16. Apr 2021 14:04
af DoofuZ
hagur skrifaði:Áttu ekki USB símahleðslutæki? Þau eru flest c.a 2 amper eða meira. Virka fínt með Raspberry Pi.

Jújú, á tvö svoleiðis, hef notað annað þeirra með tölvunni en það stendur á því 1A og á hinu stendur 1.8A, á ekkert aflmeira en það. Er þá ekki best fyrir mig að kaupa official spennubreytinn?

Re: Keyra Android (eða bara Android app) á Raspberry Pi 1?

Sent: Fös 16. Apr 2021 21:42
af Viktor
1.8A er nóg