Síða 1 af 1

Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 17:07
af falcon1
Ég er að velta fyrir mér hvernig ég geti tengt stúdíóhátalara við sjónvarpið mitt til að fá sem bestu gæði. Hátalarnir eru með XLR-tengi en sjónvarpið með Digital Audio Out og svo RCA tengi. Sem stendur er ég bara með 2x hátalara en langar í subwoofer síðar.
Þarf ég að kaupa eitthvað millibox?

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 17:16
af Fletch
Ég er að gera þetta, er með audio interface (motu m2), tengi stereo minijack í TRS input á motu, tengi svo XLR í subwoofer, og XLR úr subwoofer í stúdíó hátalarana

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 17:26
af falcon1
Fletch skrifaði:Ég er að gera þetta, er með audio interface (motu m2), tengi stereo minijack í TRS input á motu, tengi svo XLR í subwoofer, og XLR úr subwoofer í stúdíó hátalarana
Ertu þá að tengja minijack'inn í þetta headphone Out?

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 17:28
af Fletch
Já, eða það er port á sjónvarpinu sem er merki line out/Headphone, vel svo line out sem output í sjónvarpinu (LG CX)

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 17:31
af falcon1
Fletch skrifaði:Já, eða það er port á sjónvarpinu sem er merki line out/Headphone, vel svo line out sem output í sjónvarpinu (LG CX)

Hver er munurinn á line out/headphone og svo svona Digital Audio Out tengjum? Sýnist það vera jafnvel optical tengi.

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 17:33
af falcon1
Ég vil líka geta stjórnað volume á hljóðinu. :D

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 17:33
af SolidFeather
falcon1 skrifaði:
Fletch skrifaði:Já, eða það er port á sjónvarpinu sem er merki line out/Headphone, vel svo line out sem output í sjónvarpinu (LG CX)

Hver er munurinn á line out/headphone og svo svona Digital Audio Out tengjum? Sýnist það vera jafnvel optical tengi.


Það fyrra er analog en hitt er... digital.

Annars er best að fá það á hreint hvaða tenglar eru á TV, jafnvel bara að fá að vita hvaða TV er og hvaða studíóhátalarar þetta eru.

Þú gætir þessvegna fengið þér mini jack yfir í XLR splitter til að tengja þetta.

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 17:40
af Fletch
falcon1 skrifaði:Ég vil líka geta stjórnað volume á hljóðinu. :D

Það er volume takki á audio interface inputinu, svo getur þú hækkað og lækkað í sjónvarpinu

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 17:52
af appel
Er ekki best að þetta sé digital yfir í DAC og svo í studio monitorana með XLR? Ég persónulega hefði viljað taka út sem flesta analog middle-man tengi þar sem gæði tapast myndi ég halda. En ef þetta er bara til að horfa á rúv fréttir skiptir það varla máli :)

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 17:58
af falcon1
appel skrifaði:Er ekki best að þetta sé digital yfir í DAC og svo í studio monitorana með XLR? Ég persónulega hefði viljað taka út sem flesta analog middle-man tengi þar sem gæði tapast myndi ég halda. En ef þetta er bara til að horfa á rúv fréttir skiptir það varla máli :)

Iss... nenni ekki að horfa á RÚV fréttir. :D Ég er dáldið dottinn í Netflix áhorf þar sem ég fékk sinaskeiðarbólgu og þarf að spara smá tímann sem fer í tölvuvinnslu og þá er gott að henda sér í hægindastólinn og taka þætti á Netflix. :D

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 18:00
af appel
Hérna er box sem ég hefði alveg viljað fá í jólagjöf

https://www.tpdz.net/productinfo/398244.html

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 18:08
af falcon1
appel skrifaði:Hérna er box sem ég hefði alveg viljað fá í jólagjöf

https://www.tpdz.net/productinfo/398244.html

Svaka freistandi :D - fæst þetta hérlendis?

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 18:15
af appel
falcon1 skrifaði:
appel skrifaði:Hérna er box sem ég hefði alveg viljað fá í jólagjöf

https://www.tpdz.net/productinfo/398244.html

Svaka freistandi :D - fæst þetta hérlendis?

No idea. Annars er ég voða lítið inni í þessum audio græjuheimi, þyrftir kannski að tala betur við einhvern sem þekkir þetta.

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 18:19
af worghal
appel skrifaði:
falcon1 skrifaði:
appel skrifaði:Hérna er box sem ég hefði alveg viljað fá í jólagjöf

https://www.tpdz.net/productinfo/398244.html

Svaka freistandi :D - fæst þetta hérlendis?

No idea. Annars er ég voða lítið inni í þessum audio græjuheimi, þyrftir kannski að tala betur við einhvern sem þekkir þetta.

stal einum svona á ebay ónotuðum um daginn
https://www.audiophonics.fr/en/dac-with ... 12599.html
ekki Pro útgáfan en helvíti fínt, á eftir að prufa þetta við sjónvarpið samt ;)

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 18:43
af Viktor
Færð svona snúru í RÍN grensásvegi og tengir þá við headphone tengið á sjónvarpinu :-"

Ef þú vilt flækja þetta og nota annan DAC þarftu að taka hljóðið út um digital tengi á sjónvarpinu.

Ef þú notar line out í RCA þá ertu ennþá að nota DAC-inn í sjónvarpinu svo það kemur út á því sama og að nota headphone-tengið :)

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 21:49
af falcon1
Sallarólegur skrifaði:Færð svona snúru í RÍN grensásvegi og tengir þá við headphone tengið á sjónvarpinu :-"

Ef þú vilt flækja þetta og nota annan DAC þarftu að taka hljóðið út um digital tengi á sjónvarpinu.

Ef þú notar line out í RCA þá ertu ennþá að nota DAC-inn í sjónvarpinu svo það kemur út á því sama og að nota headphone-tengið :)

Takk, er ekki mikill munur á að taka hljóðið út með digital tengið á sjónvarpinu eða line out?

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 22:24
af appel
Bara spurning um peninga. Hvað viltu eyða miklum pening í sem besta hljóð? Það er alltaf einhver munur.

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 22:35
af falcon1
appel skrifaði:Bara spurning um peninga. Hvað viltu eyða miklum pening í sem besta hljóð? Það er alltaf einhver munur.

haha... já ég veit, maður getur svo sem endalaust eytt pening í meiri gæði. :)

Ég er að leitast eftir að geta verið sem mest í digital og notað XLR-tengi (þar sem hátalarnir eru með XLR) sem ég held að skili betri hljóðgæðum en RCA eða venjulegt Line-Out. :)

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 23:08
af appel
Getur prófað þennan DAC sem ég vísaði á. Ef hann virkar ekki þá kaupi ég hann af þér á 30% afslætti :)

Djók.

Nei annars þá þá myndi ég ekki nota RCA eða Line out eða eitthvað þannig drasl. Ég er með USB í utanáliggjandi hljóðkort/dac í XLR, það kostaði um 25 þús. Virkar fínt. En ég hef ekki séð slíkt tæki í þeim verðflokki með digital in og XLR out. Það gæti hafa breyst eitthvað, myndi bara googla það. En þú ert aldrei að finna neina lausn á 5 þús eða 20 þús, það er miklu nær 100 þús sem væri baseline og 300 þús, það er bara svona basic græjur.

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Mán 29. Mar 2021 23:39
af worghal
falcon1 skrifaði:
appel skrifaði:Bara spurning um peninga. Hvað viltu eyða miklum pening í sem besta hljóð? Það er alltaf einhver munur.

haha... já ég veit, maður getur svo sem endalaust eytt pening í meiri gæði. :)

Ég er að leitast eftir að geta verið sem mest í digital og notað XLR-tengi (þar sem hátalarnir eru með XLR) sem ég held að skili betri hljóðgæðum en RCA eða venjulegt Line-Out. :)

þessi sem ég linkaði er líka með allt sem þú þarft og kostar minna en DX7 pro en það þarf að kaupa fjarstýringuna sér en er þó með support fyrir það.
https://www.audiophonics.fr/en/dac-with ... 12599.html

fann minn á ebay á aðeins minna verði en getur samt reiknað með allt að 70þ heim komið.

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Þri 30. Mar 2021 07:07
af Viktor
falcon1 skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Færð svona snúru í RÍN grensásvegi og tengir þá við headphone tengið á sjónvarpinu :-"

Ef þú vilt flækja þetta og nota annan DAC þarftu að taka hljóðið út um digital tengi á sjónvarpinu.

Ef þú notar line out í RCA þá ertu ennþá að nota DAC-inn í sjónvarpinu svo það kemur út á því sama og að nota headphone-tengið :)

Takk, er ekki mikill munur á að taka hljóðið út með digital tengið á sjónvarpinu eða line out?


Byrjaðu bara á því að prófa svona XLR snúru.

Fæstir myndu taka eftir muninum, og eins og hefur komið fram, þeir sem myndu eftir honum myndu þá kaupa DAC fyrir ekki minna en 100K.

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Þri 30. Mar 2021 08:23
af Dropi
Tek undir með Sallarólegur, ég er með tvo Kef Chorale II tengda við 42" 4k dell skjá sem ég nota eins og sjónvarp. Tek 3.5mm jackinn beint inn á kraftmagnara sem ég smíðaði í rafeindavirkja náminu fyrir 14 árum og þaðan með lampasnúru inn á hátalarana. Smá brúmm í magnaranum en annars ekkert sem heyrist yfir lætin í Netflix og ég hef notað þetta í nokkur ár með köflum, þegar ég er bý á landinu. Reyndar stefni ég á að skipta "sjónvarpinu" og magnaranum út þegar ég er búinn að gera íbúðina upp og kominn með stofu aftur. Á skrifborðinu er ég með dual DAC setup og tvo active monitora sem ég hef krukkað endalaust í (skipt um spenna og þétta) til að losna við noise, þar er ég mikið viðkvæmari.

TDLR notaðu bara analog snúruna sem Sallarólegur benti á, þú þyrftir að vera algjört hljóðnörd til að finna fyrir mun. Eina hættan er að þú fáir leiðindar brúmm af groundinu.

Re: Tengja stúdíóhátalara við sjónvarp

Sent: Þri 30. Mar 2021 15:17
af falcon1
Takk, ég prófa þessa snúru og sé hversu mikill hljóðnörd ég er. ;) :D