Síða 1 af 2

Múrboltar

Sent: Mið 08. Júl 2020 21:05
af gutti
Er múrboltar langt best að festa hátalara festingar lítur
svon https://www.amazon.com/gp/product/B01HZ ... UTF8&psc=1 ? er fara láta festa á https://ormsson.is/product/klipsch-atmo ... sa-svartur

Re: Múrboltar

Sent: Mið 08. Júl 2020 21:16
af Konig
Þeir myndu klárlega halda þessu en tappar og skrúfur eru feikinóg og svo rósetta í gips eða létta veggi :)

Re: Múrboltar

Sent: Mið 08. Júl 2020 21:17
af gutti
gleymdi minna á þetta fer í loft steypu ;) vissa með múrbolta þegar benda á þegar áður en lét setja á vegg með tv með 70 tommu tæki mar er fara að treysta á múrbolta

Re: Múrboltar

Sent: Mið 08. Júl 2020 21:20
af Dúlli
Það er overkill, getur notað 6-8mm tappa og góðar skrúfur, 4-5mm haus og flott að hafa skinnu undir, skella upp 4x stk.

Re: Múrboltar

Sent: Fim 09. Júl 2020 07:04
af MrIce
8" múrboltar, að lágmarki 20mm á þykkt allgjört minimum! :P

6-8mm tappar og góðar skrúfur eins og Dúlli segir ætti að vera overkill.

Re: Múrboltar

Sent: Fim 09. Júl 2020 09:57
af Kristján Gerhard
MrIce skrifaði:8" múrboltar, að lágmarki 20mm á þykkt allgjört minimum! :P

6-8mm tappar og góðar skrúfur eins og Dúlli segir ætti að vera overkill.


Til gamans má geta að múrboltinn sem þú lýsir hér að ofan myndi bera 20,8 kN eða ~2,1 tonn með öryggisstuðul 3 m.v. átak í stefnu boltans. Ef álagið væri í skerstefnu myndi sami bolti þola 28,6 (~2,9 tonn) með sama öryggi.

Re: Múrboltar

Sent: Fim 09. Júl 2020 10:36
af Tbot
hátalarnir eru 2,7 kg, festingarnar hugsanlega 1 kg hvort.

Það er overkill að nota múrbolta. Ásamt því að það er ekki hægt að ná þeim á einfaldan hátt í burtu

Re: Múrboltar

Sent: Fim 09. Júl 2020 13:10
af MrIce
Kristján Gerhard skrifaði:
MrIce skrifaði:8" múrboltar, að lágmarki 20mm á þykkt allgjört minimum! :P

6-8mm tappar og góðar skrúfur eins og Dúlli segir ætti að vera overkill.


Til gamans má geta að múrboltinn sem þú lýsir hér að ofan myndi bera 20,8 kN eða ~2,1 tonn með öryggisstuðul 3 m.v. átak í stefnu boltans. Ef álagið væri í skerstefnu myndi sami bolti þola 28,6 (~2,9 tonn) með sama öryggi.


Okey, þannig að 10" bolti til að vera allveg öruggur með að halda þessu! :guy

Re: Múrboltar

Sent: Fim 09. Júl 2020 18:09
af Gunnar
Ég hef komist að þeirri niðustöðu að múrboltar eru ekki nógu öflugir i þetta verk.
Bora þarf 12 mm gat i gegnum vegginn á 4 punktum fyrir festinguna og setja bolta i gegnum vegginn með 5mm þykkri stálplötu hinumeginn við til stuðnings.
Festa þetta með skinnum beggja megin við og lásró.

Re: Múrboltar

Sent: Fim 09. Júl 2020 18:32
af arons4
Hef fest upp alskonar í mínu starfi og það eina sem hefur nokkurntímann dottið er hátalari festur með rekskrúfum. Þrátt fyrir að hátalarinn sé ekki þungur og rekskrúfur/tappar haldi helling, þá getur 50W af víbringi losað um helling. Myndi festa þetta með góðum múrboltum og bora gatið með góðum bor(sem gerir það ekki allt of vítt). Ef steypan er léleg myndi ég meira að segja nota teinalím.

Ef steypan er léleg þá getur verið verra hald í múrboltum heldur en góðum tappa með skrúfu í yfirstærð.

Ef þú notar múrbolta borgar sig samt að bora gatið dýpra en heildar lengdin á boltanum svo það sé hægt að reka hann inní loftið og sparsla yfir þegar þetta verður tekið úr notkum.

Re: Múrboltar

Sent: Fim 09. Júl 2020 18:35
af Emarki
Ég hef nú mestar áhyggjur af því að það sé verið að fara bora göt í hátalarana til að festa þá við þessa festingu.

Kv. Einar

Re: Múrboltar

Sent: Fös 10. Júl 2020 08:12
af Funday
talaðu við strákana í ísól þeirra vit um bolta og skrúfur er ótrúlegt þeir eru mitt fyrsta stopp ef ég er ekki viss um einhvað

Re: Múrboltar

Sent: Fös 10. Júl 2020 09:01
af jonsig
Hvað er ég að lesa? Múrbolti overkill, svo talað um einhver tonn en samt virka ekki múrboltar og þarf plötu gegnum veggin .. hahaha þið eruð ruglaðir

Re: Múrboltar

Sent: Fös 10. Júl 2020 12:06
af Viktor
Ertu ekki að leita að einhverju svona?

Re: Múrboltar

Sent: Fös 10. Júl 2020 12:43
af Tbot
jonsig skrifaði:Hvað er ég að lesa? Múrbolti overkill, svo talað um einhver tonn en samt virka ekki múrboltar og þarf plötu gegnum veggin .. hahaha þið eruð ruglaðir


Þetta heitir kaldhæðni hjá sumum.


Þetta snýst alltaf um þyngd á móti fjölda festipunkta. Ásamt stærð á festingum.
Miðað við hvað sumir hafa póstað hérna þá má skilja á þeim að þeir noti múrbolta til að festa upp ljós heima hjá sér. :megasmile

Re: Múrboltar

Sent: Fös 10. Júl 2020 13:46
af MrIce
Tbot skrifaði:Miðað við hvað sumir hafa póstað hérna þá má skilja á þeim að þeir noti múrbolta til að festa upp ljós heima hjá sér. :megasmile


There's no kill like overkill :guy :guy

Re: Múrboltar

Sent: Fös 10. Júl 2020 13:52
af Hizzman
Ég held að það sé best að láta sérsmíða stálstópla, sem hátalarnir geta staðið á. Hugsanlega þarf að styrkja burðarvirki hússins að auki.

Re: Múrboltar

Sent: Mán 13. Júl 2020 23:47
af gutti
Þá er búið setja upp hátarlar :happy eftir kaupa rennur og snúru

Re: Múrboltar

Sent: Þri 14. Júl 2020 12:16
af Gunnar
jonsig skrifaði:Hvað er ég að lesa? Múrbolti overkill, svo talað um einhver tonn en samt virka ekki múrboltar og þarf plötu gegnum veggin .. hahaha þið eruð ruglaðir

:lol: :lol: :lol: varstu virkilega ekki að lesa kaldhæðnina? :snobbylaugh
8mm tappar með réttu skrúfunum eða jafnvel 6mm tappar með réttu skrúfunum hefði verið allveg nóg.
tappar halda auðveldlega öllu i steypuvegg upp að 25kg. og þarna er x4.

Re: Múrboltar

Sent: Þri 14. Júl 2020 12:51
af gutti
þetta komið má læsa þráðinn !!

Re: Múrboltar

Sent: Þri 14. Júl 2020 14:01
af Dúlli
:lol: :lol: :lol: :lol:


Notaðir þú virkilega múrbolta, vorkenni þeim sem þarf að ganga frá þessari vitleysu.

Allavega er sett fyrir rólu eða súlu burðalega sé :lol:

Re: Múrboltar

Sent: Þri 14. Júl 2020 23:56
af Uncredible
Sammála Dúlla, þetta er svaka overkill haha.

Re: Múrboltar

Sent: Mið 15. Júl 2020 21:54
af arons4
Dúlli skrifaði::lol: :lol: :lol: :lol:


Notaðir þú virkilega múrbolta, vorkenni þeim sem þarf að ganga frá þessari vitleysu.

Allavega er sett fyrir rólu eða súlu burðalega sé :lol:

Ef götin eru dýpri en heildar lengdin á boltanum er vinnan við að ganga frá því jafn mikil og með tappa, bara reka þá í botn og spartla yfir.

Re: Múrboltar

Sent: Mið 15. Júl 2020 21:58
af Cascade
Þarf ekki að skera þá með slípirokk til að taka þá í burtu?

Re: Múrboltar

Sent: Mið 15. Júl 2020 22:13
af Dúlli
arons4 skrifaði:
Dúlli skrifaði::lol: :lol: :lol: :lol:


Notaðir þú virkilega múrbolta, vorkenni þeim sem þarf að ganga frá þessari vitleysu.

Allavega er sett fyrir rólu eða súlu burðalega sé :lol:

Ef götin eru dýpri en heildar lengdin á boltanum er vinnan við að ganga frá því jafn mikil og með tappa, bara reka þá í botn og spartla yfir.


Það er líka slæm hugmynd, þú vilt aldrei bora meira dýpra en þeir eru gerðir fyrir, alveg sniðug pæling að reka hann í en tapar styrk og meira að segja til að ná að reka þetta í þarftu sleggju ef það er búin að þenja vel úr tappanum.

Cascade skrifaði:Þarf ekki að skera þá með slípirokk til að taka þá í burtu?

yup