Airpods 2gen battery drain

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16267
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1991
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Airpods 2gen battery drain

Pósturaf GuðjónR » Sun 07. Jún 2020 18:47

Er með Airpods 2gen keypta síðasta haust, lenti svo í því í vikunni að annar þeirra (R) var í 0% hleðslu úr boxinu en hinn í 100%
Hlóð þá aftur en tek eftir því að hægri tæmist hraðar en vinstri, ákvað að gera tilraun og full hlóð þá og tók úr boxinu áður en ég fór að sofa. Í morgun þegar ég ætlað að prófa þá voru báðir í 0% þrátt fyrir enga notkun í nótt.

Er búinn að prófa að resetta þá, slökkva á bluetooth í símanum en samt tæmast þeir um svona 5%-10% prósent á klukkutíma þrátt fyrir að vera ekki í notkun. Er það normal?




Bourne
Ofur-Nörd
Póstar: 220
Skráði sig: Þri 20. Jan 2009 17:19
Reputation: 47
Staða: Ótengdur

Re: Airpods 2gen battery drain

Pósturaf Bourne » Sun 07. Jún 2020 19:40

Ég held þetta sé smá happa glappa. Ég er búin að eiga mín Airpods í ca. 2 ár núna og þau halda enþá góðri hleðslu og gera það nokkuð jafnt.
Hinsvegar virðist batteríið í hleðsluboxinu vera orðið þreytt.

Spurning hvort þeir séu "On" alltaf þegar þeir fara úr boxinu? Ertu með iPhone?



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16267
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1991
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Airpods 2gen battery drain

Pósturaf GuðjónR » Sun 07. Jún 2020 20:09

Bourne skrifaði:Ég held þetta sé smá happa glappa. Ég er búin að eiga mín Airpods í ca. 2 ár núna og þau halda enþá góðri hleðslu og gera það nokkuð jafnt.
Hinsvegar virðist batteríið í hleðsluboxinu vera orðið þreytt.

Spurning hvort þeir séu "On" alltaf þegar þeir fara úr boxinu? Ertu með iPhone?

Já er með iPhone, er hægt að stilla þá þannig að þeir fari í sleep mode ef þeir eru ekki í boxinu og ekki í notkun?




Bourne
Ofur-Nörd
Póstar: 220
Skráði sig: Þri 20. Jan 2009 17:19
Reputation: 47
Staða: Ótengdur

Re: Airpods 2gen battery drain

Pósturaf Bourne » Mán 08. Jún 2020 19:26

Ég veit ekki til þess að það sé hægt að stilla það. Ég hefði haldið að það sé þannig by default.
Var bara að pæla hvort þú værir með eitthverja aðra græju sem væri stöðugt að pinga inn á þau.

Spurning að skella sér til ábyrgðaraðila og heimta ný!
Síðast breytt af Bourne á Mán 08. Jún 2020 19:29, breytt samtals 1 sinni.




guacamolas
Nýliði
Póstar: 2
Skráði sig: Mið 16. Sep 2020 10:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Airpods 2gen battery drain

Pósturaf guacamolas » Mið 16. Sep 2020 10:18

Ég er með fjögurra mánaða 2gen airpods og vinstri gaurinn er með massíft drain (dauður meðan hinn er enn í 70%).

Fór með þá í nova og poddarnir voru sendir á verkstæði Viss í athugun. Fékk eftirfarandi svar og mynd:

''Apple eru mjög specific á hvað sé innan ábyrgðar og hvað ekki. Eins og sést á myndinni þá er dökkur “klístur” hringur á tólunum vinstra megin (þetta er ekki á hlustunarsvæði og því ólíklegt að þetta sé eyrnamergur) og Apple flokkar það utan ábyrgðar þar sem að þetta er utanaðkomandi vökvi/klístur sem hefur komist í ristarnar og jafnvel eitthvað upp í tólið sjálft og hefur þar með áhrif á virkni tólsins.
Þetta er mjög viðkvæmt svæði á heyrnartólunum og erfitt að þrífa án þess að skemma heyrnartólin endanlega. Það er því aðgerð sem við bjóðum ekki uppá í þessu tilviki, því miður.''

thumbnail_klístur 1.jpg
thumbnail_klístur 1.jpg (89.02 KiB) Skoðað 3297 sinnum


Þessi heyrnartól hafa aldrei lent í bleytu svo best ég veit. Hef í raun ekki hugmynd hvaða klístur þetta gæti verið. Jafnvel bara lím sem er notað til að halda þessu saman innan frá?
Finnst líka frekar hæpið að þetta smotterí sé að valda þessu draini? Þetta op á tólinu er 2-3 millimetrar og þetta klístur er kannski 1,5mm max. Ætti það að ná upp í batterýið og valda svona skemmd á því?

Á ég bara að sucka þetta upp og sætta mig við þessar getgátur um meinta skemmd? Get ég gert nokkuð annað? Langaði amk að venta um þetta frekar pirrandi mál.



Skjámynd

GullMoli
Stjórnandi
Póstar: 2465
Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
Reputation: 219
Staðsetning: NGC 3314.
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Airpods 2gen battery drain

Pósturaf GullMoli » Mið 16. Sep 2020 10:28



Main -> || Windows 11 || Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || RTX 3070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 || 34" IPS 3440x1440 180Hz ||

NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||

"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"


guacamolas
Nýliði
Póstar: 2
Skráði sig: Mið 16. Sep 2020 10:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Airpods 2gen battery drain

Pósturaf guacamolas » Mið 16. Sep 2020 11:23

GullMoli skrifaði:https://old.reddit.com/r/apple/comments/dz9hb9/psa_tip_for_those_experiencing_diminished_airpods/


Takk fyrir! Prófa þetta :)