Hljóðherbergi

Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Tengdur

Hljóðherbergi

Pósturaf appel » Fös 06. Mar 2020 23:44

Ég er með lítið herbergi þar sem ég er með tölvuna og stúdíó hátalara. Mig langar að hljóð-proofa herbergið doldið, í dag er það doldið bert, bara tölvan, skrifborð, stóll og málaðir veggir. En var að hugsa um að gera eitthvað skemmtilegt rými þar sem ég get hækkað vel í hátölurum án þess að það komi svona bergmál sem fylgir tómum rýmum. Aukkreistis vil ég að nágrannar verði ekki fyrir ónæði þar sem ég er að hlusta seint fram á kvöld.

Hvað er smekklegt og ódýrt? Ég vil helst ekki eyða 100-200 þús í svona eða vera með einhvern svamp á veggjum :)


*-*


Sporður
has spoken...
Póstar: 199
Skráði sig: Mán 22. Okt 2018 09:06
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Re: Hljóðherbergi

Pósturaf Sporður » Fös 06. Mar 2020 23:52

Nú er það ekki mitt vandamál hvort þú haldir heyrn eða ekki en ég hefði nú haldið að við það að auka hljómbærni herbergis að þá þyrfti ekki að hækka botnlaust í græjunum.

Þess utan þá virðistu ætla að útiloka þau tvö atriði sem myndu skila þér bestri niðurstöðu.

a) Svampinum á veggina

b) Kostnaðinum við að hljóðeinangra herbergið.



Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Tengdur

Re: Hljóðherbergi

Pósturaf appel » Lau 07. Mar 2020 00:16

Sporður skrifaði:Nú er það ekki mitt vandamál hvort þú haldir heyrn eða ekki en ég hefði nú haldið að við það að auka hljómbærni herbergis að þá þyrfti ekki að hækka botnlaust í græjunum.

Þess utan þá virðistu ætla að útiloka þau tvö atriði sem myndu skila þér bestri niðurstöðu.

a) Svampinum á veggina

b) Kostnaðinum við að hljóðeinangra herbergið.


Neinei, ég er ekki að hugsa um að hækka þannig að það skemmi heyrn. Ég vil bara að hljóðið í herberginu verði sem best. Einstaka sinnum vill maður hækka aðeins en er alltaf innan "safe levels".


Hver selur svona "acousting foam" flísar hérna á Íslandi? Þetta virðist vera rándýrt þar sem ég hef skoðað.
Síðast breytt af appel á Lau 07. Mar 2020 00:19, breytt samtals 1 sinni.


*-*

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6419
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 280
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hljóðherbergi

Pósturaf gnarr » Lau 07. Mar 2020 00:54

það er alltaf að fara að kosta mjög mikinn pening að hljóðeinangra herbergi. Það er rosalega flókið og erfitt vandamál og krefst þess yfirleitt að byggja herbergi úr þungum efnum inni í öðru herbergi úr þungum efnum.

Að gera herbergið þannig að það hljómi vel er hinsvegar miklu auðveldara vandamál. Bassagildrur og hljóðdreifarar eru bestu verkfærin í það. Bassagildra getur verið hvað sem er sem er stórt, þungt og mjúkt, tildæmis eins og sófi, grjónapúði eða sérhannaðar bassagildrur. Það er mesta bassa "build up" í hornum, svo að það getur verið sniðugt að hafa eitthvað í hornunum til þess að koma í veg fyrir það.

Hljóðdreifarar (diffuser) eru svo hlutir sem að hjálpa við að koma í veg fyrir bergmál og endurkast. Það er hægt að gera þeð með því að setja mjúka hluti á veggina eins og teppi eða plötur sem eru hannaðar í þetta.

Ég myndi annars byrja á hornunum, því að það eru svæðin sem valda mestu veseninu, og oft er nóg að setja bara bassagildrur og gera ekkert fleira.


"Give what you can, take what you need."


einarn
Gúrú
Póstar: 538
Skráði sig: Mán 15. Mar 2010 06:06
Reputation: 25
Staða: Ótengdur

Re: Hljóðherbergi

Pósturaf einarn » Lau 07. Mar 2020 02:03

Einn kunningi minn hljóðeinagraði kjallarann heima hja sér með eggjabökkum. Veit að margir aðrir gerðu þetta back in the day.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6419
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 280
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hljóðherbergi

Pósturaf gnarr » Lau 07. Mar 2020 04:12

einarn skrifaði:Einn kunningi minn hljóðeinagraði kjallarann heima hja sér með eggjabökkum. Veit að margir aðrir gerðu þetta back in the day.


Eggjabakkar hlóðeinangra nákvæmlega ekki neitt, hinsvegar geta þeir verið ágætis hljóðdreifarar.


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Squinchy
FanBoy
Póstar: 773
Skráði sig: Mið 05. Maí 2010 15:23
Reputation: 40
Staðsetning: Grafarholt
Staða: Ótengdur

Re: Hljóðherbergi

Pósturaf Squinchy » Lau 07. Mar 2020 08:05

Viðar rammi, steinull og þykkt efni utan um allt saman, er sjálfur með svona 20.stk af 40x30x3 foam gaurum, en ætla bæta við nokkrum steinullar römmum á næstunni


Fractal Design R4 White | MSI Z270 Gaming Pro Carbon | i7 7700K @4.5GHz | Noctua NH-D15 | 32GB Corsair DDR4 @3200MHz | MSI GTX 1080 Gaming X+ 8GB | 250GB Samsung 850 EVO SSD | Corsair RM750x | 27" ASUS PG279Q | Presonus 22VSL | M-Audio BX5a

Fractal Design R5 Black | FreeNAS | Gigabyte M3 Sniper | i7 3770K @3.9GHz | Noctua NH-U12s | 24GB DDR3 | 10TB | Eaton 5SC 1000i UPS

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6773
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 934
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hljóðherbergi

Pósturaf Viktor » Lau 07. Mar 2020 09:38

Nágrannarnir þínir eru ekki að fara að taka eftir neinni breytingu fyrir 100-200 þúsund.

Þyrftir að eyða nokkrum milljónum áður en þeir fara að finna fyrir minni hávaða.

Það að innrétta herbergið að innan fyrir einhverja tíuþúsundkalla gerir herbergið þó hljóðvænna fyrir þann sem er inn í því.

Ef þú vilt slá tvær flugur í einu höggi geturðu gert svokallað "acoustic art" úr viði eða svampi. Þá ertu kominn með góða hljóðdreifara og mjög flott herbergi. Þetta er til dæmis gert í Hörpu, ef þið skoðið veggina þar þá eru svona misstórir viðarbútar sem ná upp alla veggina í öllum sölunum sem dreifa hljóðinu.

Harpa, Kaldalón: https://www.harpa.is/harpa/salir-og-rymi/kaldalon/

https://woodblocks.design/acoustic-panels/
Viðhengi
acousticart.jpeg
acousticart.jpeg (172.45 KiB) Skoðað 7229 sinnum
woody.jpg
woody.jpg (48.88 KiB) Skoðað 7229 sinnum
wood.jpg
wood.jpg (172.89 KiB) Skoðað 7229 sinnum
Síðast breytt af Viktor á Lau 07. Mar 2020 09:46, breytt samtals 2 sinnum.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


Sam
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 302
Skráði sig: Mið 03. Des 2014 18:50
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Hljóðherbergi

Pósturaf Sam » Lau 07. Mar 2020 12:26

MOMENTUM-On-Ear.jpg
MOMENTUM-On-Ear.jpg (236.53 KiB) Skoðað 7170 sinnum


https://pfaff.is/momentum-m3-wireless




einarn
Gúrú
Póstar: 538
Skráði sig: Mán 15. Mar 2010 06:06
Reputation: 25
Staða: Ótengdur

Re: Hljóðherbergi

Pósturaf einarn » Lau 07. Mar 2020 17:22

gnarr skrifaði:
einarn skrifaði:Einn kunningi minn hljóðeinagraði kjallarann heima hja sér með eggjabökkum. Veit að margir aðrir gerðu þetta back in the day.


Eggjabakkar hlóðeinangra nákvæmlega ekki neitt, hinsvegar geta þeir verið ágætis hljóðdreifarar.


Einmitt. Kunningji minn gerði þetta með kjallaraherbergi sem hann var með og það var nóg fyrir hann að segja bakkana á loftið sem leiddi uppí íbúðina fyrir ofan og það varð til þess að bassinn sem læddist i gegn hvarf alveg.



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3091
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 522
Staðsetning: ::1
Staða: Tengdur

Re: Hljóðherbergi

Pósturaf Hjaltiatla » Lau 07. Mar 2020 18:33

Mögulega falskir veggir og einangrun. Tók eftir þessu inná r/DIY
https://imgur.com/gallery/3VVGR2k


Just do IT
  √

Skjámynd

Squinchy
FanBoy
Póstar: 773
Skráði sig: Mið 05. Maí 2010 15:23
Reputation: 40
Staðsetning: Grafarholt
Staða: Ótengdur

Re: Hljóðherbergi

Pósturaf Squinchy » Lau 07. Mar 2020 23:15

Mikið svakalega eru menn að misskilja þennan þráð, svona er eingöngu gert til að bæta upplifun þess sem hlustar eða ef upptaka mun eiga sér staðar innan rýmis.

Kemur fram mjög skýrt hér að ofan að hann er ekki að leita eftir hljóðheldum klefa
Síðast breytt af Squinchy á Lau 07. Mar 2020 23:36, breytt samtals 1 sinni.


Fractal Design R4 White | MSI Z270 Gaming Pro Carbon | i7 7700K @4.5GHz | Noctua NH-D15 | 32GB Corsair DDR4 @3200MHz | MSI GTX 1080 Gaming X+ 8GB | 250GB Samsung 850 EVO SSD | Corsair RM750x | 27" ASUS PG279Q | Presonus 22VSL | M-Audio BX5a

Fractal Design R5 Black | FreeNAS | Gigabyte M3 Sniper | i7 3770K @3.9GHz | Noctua NH-U12s | 24GB DDR3 | 10TB | Eaton 5SC 1000i UPS


Sporður
has spoken...
Póstar: 199
Skráði sig: Mán 22. Okt 2018 09:06
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Re: Hljóðherbergi

Pósturaf Sporður » Sun 08. Mar 2020 00:38

Squinchy skrifaði:Mikið svakalega eru menn að misskilja þennan þráð, svona er eingöngu gert til að bæta upplifun þess sem hlustar eða ef upptaka mun eiga sér staðar innan rýmis.

Kemur fram mjög skýrt hér að ofan að hann er ekki að leita eftir hljóðheldum klefa


Appel skrifaði:Mig langar að hljóð-proofa herbergið doldið
[...}
Aukkreistis vil ég að nágrannar verði ekki fyrir ónæði þar sem ég er að hlusta seint fram á kvöld.


Ég kýs að skilja upphafsinnleggið eins og að hann vilji EINNIG draga úr hávaðanum út úr herberginu.

Hvernig þú last það að hann vildi taka upp líka veit ég ekki alveg. :sleezyjoe

Kannski er þessi þráður bara svona misskilinn. Gerist ef menn pósta á föstudagskvöldum.

Appel skrifaði:Hver selur svona "acousting foam" flísar hérna á Íslandi? Þetta virðist vera rándýrt þar sem ég hef skoðað.


Það hefur verið talað um þetta hérna áður. Þú getur notað handklæði í staðinn fyrir svampinn en þá þarft þú að láta smíða ramma fyrir handklæðin eða láta smíða hann fyrir þig. Þetta er besta og ódýrasta lausnin. Annars eru hljóðfærabúðirnar líklegast með svamp.

https://www.youtube.com/watch?v=pABvTWSxOes

Annars held ég að Gnarr hafi neglt þetta að öðru leyti.



Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2697
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Reputation: 149
Staða: Ótengdur

Re: Hljóðherbergi

Pósturaf SolidFeather » Sun 08. Mar 2020 00:57

Ég er með svipað setup. Ég var með 90cm rúm fyrir aftan skrifborðsstólinn sem ég fjarlægði og eftir það versnaði hljóðið til muna, ég bjóst svosem við því. Ég gat "lagað" hljóðið með því að lækka í lágu tíðnunum með EQ en pælingin var samt alltaf að fara í einhverskonar accoustic panela eða bassagildrur.

Nágrannarnir verða væntanlega alltaf fyrir ónæði sama hvað þú gerir varðandi hljóðið í rýminu,



Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Tengdur

Re: Hljóðherbergi

Pósturaf appel » Sun 08. Mar 2020 01:38

Ég vil bara að það verði gott hljóð í þessu litla herbergi mínu (7-8fm) og það er plús að ég þurfi ekki að það dragi úr hljóðmengun. Ekkert að pæla í einhverjum rokktónleikum í 150 desíbelum.

Vil ekki sjá einhvern foam svamp eða eggjabakka á veggnum, þarf að vera flott.

En já kannski er budgetið heldur of lítið, er að átta mig á því. Þannig að sennilegast er maður alveg ready að fara í 100 þús ef það er flott og virkar.

Doldið töff það sem Sallarólegur benti á, nota svona við.
Síðast breytt af appel á Sun 08. Mar 2020 01:42, breytt samtals 1 sinni.


*-*


Diddmaster
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 351
Skráði sig: Fös 19. Júl 2013 20:55
Reputation: 62
Staðsetning: Reykjanesbæ
Staða: Ótengdur

Re: Hljóðherbergi

Pósturaf Diddmaster » Sun 08. Mar 2020 04:24

Síðast breytt af Diddmaster á Sun 08. Mar 2020 04:31, breytt samtals 1 sinni.


Asus Z390-A Prime i7 9700k CPU Thermaltake 3.0 Extreme Corsair 16GB (2x8) 3000MHz CL15 500 GB Samsung 970 EVO Plus m.2 palit 2080 super seasonic 760w 80+ platinum


Stanman
Nýliði
Póstar: 23
Skráði sig: Sun 04. Sep 2011 19:57
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hljóðherbergi

Pósturaf Stanman » Sun 08. Mar 2020 18:10

Checkaðu í Bauhaus.. flott hljóðlausn ekki langt frá parketinu í búðinni. Einhverskonar filtplötur ca. 1cm klæddar með viðar renningum. Virkilega smart!



Skjámynd

Squinchy
FanBoy
Póstar: 773
Skráði sig: Mið 05. Maí 2010 15:23
Reputation: 40
Staðsetning: Grafarholt
Staða: Ótengdur

Re: Hljóðherbergi

Pósturaf Squinchy » Mið 11. Mar 2020 00:06

Sporður skrifaði:
Squinchy skrifaði:Mikið svakalega eru menn að misskilja þennan þráð, svona er eingöngu gert til að bæta upplifun þess sem hlustar eða ef upptaka mun eiga sér staðar innan rýmis.

Kemur fram mjög skýrt hér að ofan að hann er ekki að leita eftir hljóðheldum klefa


Appel skrifaði:Mig langar að hljóð-proofa herbergið doldið
[...}
Aukkreistis vil ég að nágrannar verði ekki fyrir ónæði þar sem ég er að hlusta seint fram á kvöld.


Ég kýs að skilja upphafsinnleggið eins og að hann vilji EINNIG draga úr hávaðanum út úr herberginu.

Hvernig þú last það að hann vildi taka upp líka veit ég ekki alveg. :sleezyjoe

Kannski er þessi þráður bara svona misskilinn. Gerist ef menn pósta á föstudagskvöldum.

Appel skrifaði:Hver selur svona "acousting foam" flísar hérna á Íslandi? Þetta virðist vera rándýrt þar sem ég hef skoðað.


Það hefur verið talað um þetta hérna áður. Þú getur notað handklæði í staðinn fyrir svampinn en þá þarft þú að láta smíða ramma fyrir handklæðin eða láta smíða hann fyrir þig. Þetta er besta og ódýrasta lausnin. Annars eru hljóðfærabúðirnar líklegast með svamp.

https://www.youtube.com/watch?v=pABvTWSxOes

Annars held ég að Gnarr hafi neglt þetta að öðru leyti.


Lestu þetta bara aftur, ég segi hvergi að hann sé að fara taka upp...


Fractal Design R4 White | MSI Z270 Gaming Pro Carbon | i7 7700K @4.5GHz | Noctua NH-D15 | 32GB Corsair DDR4 @3200MHz | MSI GTX 1080 Gaming X+ 8GB | 250GB Samsung 850 EVO SSD | Corsair RM750x | 27" ASUS PG279Q | Presonus 22VSL | M-Audio BX5a

Fractal Design R5 Black | FreeNAS | Gigabyte M3 Sniper | i7 3770K @3.9GHz | Noctua NH-U12s | 24GB DDR3 | 10TB | Eaton 5SC 1000i UPS


bjasi
Græningi
Póstar: 25
Skráði sig: Fös 10. Apr 2020 20:30
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Hljóðherbergi

Pósturaf bjasi » Sun 19. Apr 2020 20:07

Kannski svolítið seint innlegg. Hér var minnst á plötur í Bauhaus. Þær líta mjög vel út og virka líka vel, það er rými hjá þeim þar sem hægt er að upplifa dempunina. Fermeterinn kostar kr. 12.500 svo kostnaðurinn er fljótreiknaður. Ef þú bætir við grind+steinull á bakvið þá geturður verið nokkuð viss um að endurkast fer niður í ekki neitt.