Síða 2 af 2

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Mán 29. Júl 2019 16:19
af Hjaltiatla
Er mér einum að finnast góð hugmynd að versla bursta á skrúfuvél til að þurfa ekki að þjösnast við þrifin?
https://www.amazon.com/Holikme-Attachments-Scrubber-Attachment-Automobile/dp/B07P7NFV1F/ref=sr_1_4?keywords=drill+brush&qid=1564416954&s=gateway&sr=8-4
Sjálfum finnst mér allt í lagi að rykmoppa og skúra en öll þrif sem tengist flísum,eldavél,sturtuklefa og klósetti not so much.

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Þri 30. Júl 2019 10:02
af JapaneseSlipper
Hjaltiatla skrifaði:Er mér einum að finnast góð hugmynd að versla bursta á skrúfuvél til að þurfa ekki að þjösnast við þrifin?
https://www.amazon.com/Holikme-Attachments-Scrubber-Attachment-Automobile/dp/B07P7NFV1F/ref=sr_1_4?keywords=drill+brush&qid=1564416954&s=gateway&sr=8-4
Sjálfum finnst mér allt í lagi að rykmoppa og skúra en öll þrif sem tengist flísum,eldavél,sturtuklefa og klósetti not so much.

Ég á svona skrúfvél sem ég hef notað og hún er mjög fín í suma hluti, t.d. er algjör snilld að taka felgur á bílnum með þessu.

Ég á iRobot 960 sem ég er búinn að eiga í 18 mánuði og nota nánast daglega. Ég hef ryksugað 2-3 síðan ég fékk hana. Ókosturinn er að heima hjá mér er 1 horn sem hún kemst illa í en ég hef bara þurrkað þar. Svo er hinn ókosturinn að rykið virðist setjast ofan á golflistana þannig í þessi skipti sem ég hef ryksugað þarf ég sérstaklega að ryksuga ofan á golflistunum. Þetta hefur samt sem áður sparað mér gríðarlega vinnu. Ég er með hund á heimilinu og því þarf ég að hreinsa vélina í svona annað hvert til þriðjahvert skipti.

En víst þú minnist á þessa bursta til að setja á borvélar þá fékk ég svona í gjöf

https://www.youtube.com/watch?v=HvFVWc4_a7k

Þetta er algjör snilld til að þrífa allsskonar og virkar betur en burstarnir til að þrífa allskonar.

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Þri 30. Júl 2019 11:49
af rapport
JapaneseSlipper skrifaði:
En víst þú minnist á þessa bursta til að setja á borvélar þá fékk ég svona í gjöf

https://www.youtube.com/watch?v=HvFVWc4_a7k

Þetta er algjör snilld til að þrífa allsskonar og virkar betur en burstarnir til að þrífa allskonar.

Er ekki hægt að nota þetta sem gufugæja líka til að ná krumpum úr fötum?

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Mið 31. Júl 2019 11:12
af JapaneseSlipper
Það á að vera hægt en ég hef samt ekki notað það sjálfur.

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Fim 21. Nóv 2019 15:42
af Addinnn
norex94 skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:
norex94 skrifaði:
svavaroe skrifaði:Ég keypti hjá RENMAX (https://www.renmax.is)
Muuun ódýrari græja en styður allt, og gott betur. Hún er frábær þessi elska.

btw, til hvers að borga 120þkr fyrir vélmenni ef þú getur fengið sambærilega á 45þkr (en sú er ekki með nafnið iRobot)

Renmax er rebrand á kínverskum ryksugum. Það er betra að fara á aliexpress og kaupa bara eitthvað þar en að hafa millilið.

T.d ef þú googlar Renmax þá kemur aðeins upp heima síða Renmax. :-k

29.145 kr :)
https://www.aliexpress.com/i/32864583456.html

Nákvæmlega :sleezyjoe
Hérna líka: https://www.eufylife.com/uk/products/va ... 1/T2102221
Nákvæmlega eins nema heitir "eufy"
edit:
Mynd
Mynd

Renmax er mesta drasl sem þú getur fengið! sóun á pening, myndi frekar kaupa Roomba... hún er mun dýrari en hún virkar að minnsta kosti og er ekki gerð úr klósettpappír og er ekki með lélega kortlagningu eins og Renmax!

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Mán 30. Ágú 2021 16:37
af chaplin
Smá revive, núna hef ég verið að skoða eufy RoboVac 15C (35.000 kr), ILIFE V5s (40.000 kr) og Roborock S5 Max (90.000 kr) en ég er alveg blank. Hvaða vélar eru menn að nota, hvað er snilld og hvað er glatað? :)

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Mán 30. Ágú 2021 16:48
af ElvarP
chaplin skrifaði:Smá revive, núna hef ég verið að skoða eufy RoboVac 15C (35.000 kr), ILIFE V5s (40.000 kr) og Roborock S5 Max (90.000 kr) en ég er alveg blank. Hvaða vélar eru menn að nota, hvað er snilld og hvað er glatað? :)

Ég fékk mér þessa: https://www.mii.is/vara/mi-robot-vacuum-mop-essential/

Er frekar ánægður með robba minn, kalla hann robba útaf róbot = robbi.

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Mán 30. Ágú 2021 22:34
af GullMoli
chaplin skrifaði:Smá revive, núna hef ég verið að skoða eufy RoboVac 15C (35.000 kr), ILIFE V5s (40.000 kr) og Roborock S5 Max (90.000 kr) en ég er alveg blank. Hvaða vélar eru menn að nota, hvað er snilld og hvað er glatað? :)

Held þú sjáir ekki eftir auka krónunum í Roborock. Við höfum átt S6 í 1.5 ár rúmlega og hún hefur ekkert klikkað. Hefur fengið nokkra nýja fídusa með firmware updates, m.a. "no mop zone", multi map support ef þú ert með 2-4 hæða íbúð ofl. LIDAR skanninn gerir svo mikið, kortleggur allt og keyrir 100% yfir allt og sýnir þér í appinu hvað er búið og hvernig síðasta umferð var. 110% meðmæli héðan.

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Mán 30. Ágú 2021 23:58
af Pandemic
Ég er með IRobot i7 og hún er alveg skelfileg. Ratar ekki neitt og helvíti hávær.
Hefur bilað algjörlega einu sinni og öllu ryksugu apparatinu var skipt út. Burstarnir í henni eru úr einhverskonar gúmmíi og endast í 2 vikur án þess að rifna. Sé eftir því að hafa valið iRobot haldandi að það væri betra að vera með eitthvað "merki".
Hef smá reynslu af Roborock S5 og það er snilldar græja. Mikið lágværari og ratar vel.

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Fös 29. Okt 2021 17:25
af GuðjónR

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Fös 29. Okt 2021 17:35
af ElvarP
GuðjónR skrifaði:Og þá vitum við það...
https://www.ruv.is/frett/2021/10/29/ryk ... n-ryksugur

Róbót sem bara sópar > ég sem nenni því aldrei

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Fös 29. Okt 2021 23:47
af daremo
GuðjónR skrifaði:Og þá vitum við það...
https://www.ruv.is/frett/2021/10/29/ryk ... n-ryksugur

Höfum alltaf vitað þetta. Hefurðu kíkt á búnaðinn inni í þessu?
Þetta er klárlega sópur, ekki ryksuga :)

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Lau 30. Okt 2021 21:39
af danniornsmarason
GuðjónR skrifaði:Og þá vitum við það...
https://www.ruv.is/frett/2021/10/29/ryk ... n-ryksugur

Ég held að flestir sem hafa keypt sér svona ryksugu hafa vitað af þessu, segir sig sjálft að svona lítið tæki er ekki að fara koma alveg í stað ryksugu á flestum heimilum, en þetta getur létt heldur betur mikið á að taka dýrahár og mylsnur af gólfum, ég keypti eitthvað ryksugu og skúringar combo vélmenni frá MII á 30k sirka, þetta er allt annað líf, gólfið alltaf hreint. Eina sem ég þarf að gera er að taka allt dót af gólfinu og setja stólana upp á borð og þegar ég kem heim úr vinnunnni er gólfið hreint

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Mán 01. Nóv 2021 11:55
af linked
Ég er með Roborock S6 MaxV - hverrar krónu virði. Ég læt hana ryksuga nokkrum sinnum í viku, og skúra 1-2svar í viku.

Svínvirkar.

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Mán 01. Nóv 2021 13:08
af Lexxinn
linked skrifaði:Ég er með Roborock S6 MaxV - hverrar krónu virði. Ég læt hana ryksuga nokkrum sinnum í viku, og skúra 1-2svar í viku.

Svínvirkar.

Hvernig hafa þær verið að taka á ef t.d. sokkar eru á gólfum eða ef stólar eru í uppað borðstofuborði aðeins öðruvísi uppraðað en þegar hún mappaði húsið?

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Mán 01. Nóv 2021 15:05
af dori
Lexxinn skrifaði:
linked skrifaði:Ég er með Roborock S6 MaxV - hverrar krónu virði. Ég læt hana ryksuga nokkrum sinnum í viku, og skúra 1-2svar í viku.

Svínvirkar.

Hvernig hafa þær verið að taka á ef t.d. sokkar eru á gólfum eða ef stólar eru í uppað borðstofuborði aðeins öðruvísi uppraðað en þegar hún mappaði húsið?

Núna á ég bara heimska S5 en ekki S6 MaxV. Allar Roborock ryksugurnar díla bara vel við það ef uppröðun á húsgögnum breytist. Reyndar þegar ég hef gert eitthvað "fáránlegt" eins og að setja hana í gang með dýnur útum allt á gólfinu sem lætur hana halda að herbergið sé allt öðruvísi í laginu og ætla að senda hana í eitthvað zone/room cleanup þá getur hún haldið að hún sé í öðru herbergi en hún er. Það er aldrei vesen í full cleanup.

Ef það eru sokkar eða slíkt á gólfinu þá borðar S5 það og lendir líklegast í veseni, stoppar og sendir villu. MaxV á að vera með "AI" myndavélakerfi til að fara framhjá sokkum og svoleiðis drasli en ég þekki ekki hversu vel það virkar.

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Mán 01. Nóv 2021 16:43
af Lexxinn
dori skrifaði:

Var akkurat búinn að skoða S4, S5, S5max, S6 og S7 en ekki S6maxv - sýnist það vera eina vélin með þennan fítus. Var næstum dottinn á S4 á amazon.de á 350evrur. Þetta fær mig samt til að efast hvort ég fari í S6maxv eða hvað ég geri.

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Mán 01. Nóv 2021 18:28
af steinarorri
Ég keypti S6 Maxv í haust og er hæstánægður. Keypti frá Þýskalandi í gegnum ebay, hingað komin 85-90 þús kr.
Hef ekki séð eftir krónu, hún fer mjög vel yfir og skipulega, fer framhjá skóm, flestum snúrum, fötum á gólfinu osfrv. Merkir aðskotahluti í appið og maður getur kennt henni hvað hún á að hunsa.
Notum hana daglega, fer yfir allt að morgni en oft látum við hana ryksuga og moppa eldhús og forstofu seinni partinn.
Auðvitað gerir hún þetta ekki jafn vel og að vera með almennilega ryksugu en áður en við keyptum hana vorum við að ryksuga ofangreind svæði daglega en nú tökum við bara upp það helsta sem lendir á gólfinu og sendum svo ryksuguna í eldhúsið.

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Fös 15. Júl 2022 09:21
af Bengal
Held að það megi með sanni segja að Roborock sé málið í dag þegar kemur að ryksuguvélmennum.

Keypti S7+ maxv um daginn og hún moppar og ryksugar virkilega vel. Appið er líka einfalt í notkun en samt hægt að gera svo ótrúlega margt í því t.d Velja á milli Full clean, rooms eða zones. Mér finnst routines valmöguleikinn geggjaður t.d eftir eldamennsku að geta sent vélmennið með einum takka inní eldhús í gólfþrif.
Einfalt að þrífa moppuna og fylla á vatnstankinn. Tæmir sig sjálf í poka en hefur samt valmöguleika að sleppa pokanum og þá tæmir hún sig í hólf sem þarf þá að þrífa á ca 1-2mán fresti.

Finnst samt skrítið að elko hefur ekki varahluta í þessar vélar eins og bursta, hliðarbursta, ryksugupoka ofl. en ég fann original hluti til sölu á aliexpress þannig ekkert mál að redda sér þar.

Gólfin heima hafa allavega aldrei haldist eins hrein fyrr en núna :happy

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Fös 15. Júl 2022 11:00
af Njall_L
Bengal skrifaði:Keypti S7+ maxv um daginn…

Fannstu hana hérna heima eða pantaðiru, hvar þá?

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Fös 15. Júl 2022 11:42
af Bengal
Njall_L skrifaði:
Bengal skrifaði:Keypti S7+ maxv um daginn…

Fannstu hana hérna heima eða pantaðiru, hvar þá?

Elko eru með hana.

Eiga líka S7 Ultra ef þú vilt fara allaleið.

Re: Kaup á ryksuguvélmenni

Sent: Fös 15. Júl 2022 14:11
af rapport
Bengal skrifaði:Finnst samt skrítið að elko hefur ekki varahluta í þessar vélar eins og bursta, hliðarbursta, ryksugupoka ofl. en ég fann original hluti til sölu á aliexpress þannig ekkert mál að redda sér þar.

Mii.is eru held ég að sinna öllu svona vel + þegar ég kíkti á vefinn þeirra núna þá er akkúerat verið að auglýsa aflslætti á ryksuguróbotum

https://www.mii.is/voruflokkur/ryksugur ... uvelmenni/

Svona "grunnunit" á 25þ. - https://www.mii.is/vara/mi-robot-vacuum ... uvelmenni/

Líklega heilalaust, ekkert app o.þ.h. en á móti kemur, einn takki en sami bursti og moppa og allir hinir róbotarnir eru með...