Síða 1 af 1

hvar og hvernig sjónvarp?

Sent: Mið 10. Apr 2019 03:18
af J1nX
Er að pæla í að farað koma sjónvarpinu hjá mér í nútímann og fá mér nýtt þannig ég þurfi ekki alltaf að tengja lappann við sjónvarpið til að komast á netflix og þess háttar vesen.. eru einhverjar tegundir sem mér ber að varast eða einhver sem standa uppúr í gæðum?

Hafði hugsað mér að fá mér eitthvað gott budget sjónvarp í 55"-65" , hverju mæliði með?

Re: hvar og hvernig sjónvarp?

Sent: Mið 10. Apr 2019 07:48
af audiophile
Samsung, LG og Sony eru allir með góð sjónvörp á breiðu verðbili og eru flest ef ekki öll með allavega Netflix, Youtube og Prime Video. Myndgæði fara eftir hvað þú ert tilbúinn að borga.

Re: hvar og hvernig sjónvarp?

Sent: Mið 10. Apr 2019 10:04
af J1nX
nú er ég ekki vel að mér í þessum sjónvarpsmálum, hverju er ég að leita að, ég veit ekkert muninn á uhd, led, oled og öllu þessu dæmi :D hafði ekki hugsað mér að fara yfir 150kallinn

Re: hvar og hvernig sjónvarp?

Sent: Fös 12. Apr 2019 00:27
af J1nX
bömp :P

Re: hvar og hvernig sjónvarp?

Sent: Fös 12. Apr 2019 08:30
af emil40
Ég er með enox 49 tommu þu færð 55-65 innan við 150 kallinn

Re: hvar og hvernig sjónvarp?

Sent: Fös 12. Apr 2019 09:42
af mercury
eru að koma inn 2019 módel þessa dagana. bara stökkva á einhvað ágætis 18 módel á niðursettu verði myndi helst skoða samsung lg og sony tæki

Re: hvar og hvernig sjónvarp?

Sent: Fös 12. Apr 2019 10:37
af davidsb
J1nX skrifaði:Er að pæla í að farað koma sjónvarpinu hjá mér í nútímann og fá mér nýtt þannig ég þurfi ekki alltaf að tengja lappann við sjónvarpið til að komast á netflix og þess háttar vesen.. eru einhverjar tegundir sem mér ber að varast eða einhver sem standa uppúr í gæðum?

Hafði hugsað mér að fá mér eitthvað gott budget sjónvarp í 55"-65" , hverju mæliði með?


Ég var í svipuðum pælingum en ákvað að skella mér á Chromecast til að prófa áður en ég fengi mér nýtt sjónvarp.

Nota bara símann til að henda netflix, youtube,spotify, á sjónvarpið núna, ferlega þægilegt. Svo geturu castað öllu nánast úr Google Chrome frá lappanum.

Bara að benda á þennan möguleika ef þú ert með "dumb tv" og vantar bara smart tv eiginleikana.

Re: hvar og hvernig sjónvarp?

Sent: Fös 12. Apr 2019 10:56
af 2ndSky
emil40 skrifaði:Ég er með enox 49 tommu þu færð 55-65 innan við 150 kallinn


Plís ekki mæla með Enox ...

Re: hvar og hvernig sjónvarp?

Sent: Fös 12. Apr 2019 17:25
af emil40
Enox eru flott tæki

Re: hvar og hvernig sjónvarp?

Sent: Fös 12. Apr 2019 17:56
af Theraiden
2ndSky skrifaði:
emil40 skrifaði:Ég er með enox 49 tommu þu færð 55-65 innan við 150 kallinn


Plís ekki mæla með Enox ...


Ertu með slæma reynslu af enox? Var sjálfur að hugsa mér að kaupa 55" 4K enox tæki..... Mátt endilega segja mér afhverju ég ætti ekki að kaupa enox :baby

Re: hvar og hvernig sjónvarp?

Sent: Fös 12. Apr 2019 18:27
af 2ndSky
Theraiden skrifaði:
2ndSky skrifaði:
emil40 skrifaði:Ég er með enox 49 tommu þu færð 55-65 innan við 150 kallinn


Plís ekki mæla með Enox ...


Ertu með slæma reynslu af enox? Var sjálfur að hugsa mér að kaupa 55" 4K enox tæki..... Mátt endilega segja mér afhverju ég ætti ekki að kaupa enox :baby


Til að hafa þetta stutt og laggot þá er þetta ekki vel gerð sjónvörp og myndgæðin arfaslök . ef þú ferð einvherntiman í IKEA þá geturu séð "prop" sjónvörpin hjá þeim og myndgæðin í þeim eru í samanburð við Enox

Re: hvar og hvernig sjónvarp?

Sent: Fös 12. Apr 2019 18:35
af pegasus
Sjálfur myndi ég ekki kaupa mér sjónvarp nema frá þessum stærstu og þekktustu merkjum eins og Sony, LG, Philips og Samsung, kannski TCL ef ég væri í budget pælingum. Mæli með að lesa aðeins almennt um hvað merkin eru góð og léleg í hér: https://www.rtings.com/tv/reviews/best/brands.

J1nX skrifaði:hafði ekki hugsað mér að fara yfir 150kallinn


Þá kannski bara low-end Samsung sjónvarp?
* NU7105 í ELKO (134.994 kr.)
* Rtings review

Sjálfur myndi ég allan daginn eyða meiri pening og fá betra sjónvarp í staðinn. Fyrir mér er of mikið af compromises á þessu verði fyrir þetta stórt sjónvarp til að tíma því. Ég myndi frekar fá mér 55" LG B8 OLED sjónvarp sem er komið niður í 199.990 kr. í Rafland (Rtings review).

Re: hvar og hvernig sjónvarp?

Sent: Fös 12. Apr 2019 23:02
af kornelius
Hér er eitt flott á afslætti sem passar við þínar kröfur og er með Android TV - er sjálfur með sama taki bara aðeins minna og er mjög ánægður.

https://elko.is/kd55xf8505bae-sony-55-s ... onvarp-uhd

Re: hvar og hvernig sjónvarp?

Sent: Lau 13. Apr 2019 12:03
af J1nX
Þakka aðstoðina, held ég spreði aðeins meira og fari í lg sjónvarpið sem pegasus mælti með :happy

Re: hvar og hvernig sjónvarp?

Sent: Lau 13. Apr 2019 12:12
af svanur08
J1nX skrifaði:Þakka aðstoðina, held ég spreði aðeins meira og fari í lg sjónvarpið sem pegasus mælti með :happy


Rétt ákvörðun, OLED er málið. :happy

Re: hvar og hvernig sjónvarp?

Sent: Lau 13. Apr 2019 13:41
af DJOli
pegasus skrifaði:Sjálfur myndi ég ekki kaupa mér sjónvarp nema frá þessum stærstu og þekktustu merkjum eins og Sony, LG, Philips og Samsung, kannski TCL ef ég væri í budget pælingum. Mæli með að lesa aðeins almennt um hvað merkin eru góð og léleg í hér: https://www.rtings.com/tv/reviews/best/brands.

J1nX skrifaði:hafði ekki hugsað mér að fara yfir 150kallinn


Þá kannski bara low-end Samsung sjónvarp?
* NU7105 í ELKO (134.994 kr.)
* Rtings review

Sjálfur myndi ég allan daginn eyða meiri pening og fá betra sjónvarp í staðinn. Fyrir mér er of mikið af compromises á þessu verði fyrir þetta stórt sjónvarp til að tíma því. Ég myndi frekar fá mér 55" LG B8 OLED sjónvarp sem er komið niður í 199.990 kr. í Rafland (Rtings review).


Eftir reynslu af 1x Philips túbutæki, 2x Philips LCD skjám og 2x Philips LCD sjónvörpum, þar af öðru þeirra 4k, þá gæfi ég versta óvini mínum ekki Philips sjónvarp.