Síða 1 af 2

Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 14:11
af oskar9
Góðan daginn vaktarar.
Maður er sífelt að breyta og bæta stofuna hjá sér og nu síðast skellti ég mér á heimabíó (stækkaði úr 2.0 kerfi) ég verslaði harman kardon 5.1 magnara, auk 5 hátalara og bassabox.
Ég tengdi með Hdmi úr skjakortinu (GTX-1070) í nýtt Samsung sjónvarp, úr sjónvarpinu tók ég síðan optical snúru niður í magnarann.
Á þessum tímapunkti fæ ég hljóð úr öllum hátölurunum og sub. En magnarinn er bara að fá 2.0 signal frá sjónvarpinu og notar eitthvað Logic7 til að "uppmixa" í 5.1 og það hljómar pínu furðulega.
Þegar ég opna Windows audio settings þá segir tölvan mér að ég sé bara að senda 5.1 hljóð frá skjákorti yfir í sjónvarp, og ég get ekki breytt því.

Ég get hinsvegar tengt Hdmi úr skjákorti yfir í TV, og tengt síðan optical snúru úr optical tenginu á móðurborðinu mínu niður í magnarann. Þá notar tölvan realtek digital output sem er vissulega 5.1 sound
En það er einungis DTS sound, en ekki DTS HD eða dolby sem maður fær þegar hljóð er flutt með Hdmi

Þetta er að verða algjör langloka og geðheilsa mín er á þrotum við að reyna googla þetta og finna lausnir.
Kann einhver lausn á þessu, langar að fá besta mögulega hljóð úr myndunum með því að nota Hdmi fyrir mynd og hljóð.
Ps. Bæði sjónvarpið og magnarinn eru með Hdmi ARC tengjum, en það er ekki víst að þau styðji lossless 5.1

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 14:15
af worghal
hvaða magnari er þetta og af hverju ertu ekki að fara úr magnara í sjónvarpið og öll input inn í magnarann?

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 14:20
af hagur
Er ekki HDMI inn/út á magnaranum? Nota hann sem hub/switch. HDMI úr tölvu í magnara og svo bara HDMI úr magnaranum í sjónvarpið. Allt annað er fúsk :)

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 14:25
af SolidFeather
Sjónvarpið "kann" ekki að áframsenda 5.1 sound, hvað þá lossless og optical tengið styður heldur ekki lossless audio.

Gerðu það sem að worghal og hagur sögðu.

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 14:28
af oskar9
Hmm, eruð þið að meina að tengja hdmi úr skjákorti í hvaða HDMI tengi sem er á magnara og svo úr einhverju öðru hdmi aftan á magnaranum upp í sjónvarpið.
Þetta er Harman Kardon AVR 165, það eru 4 HDMI tengi á honum auk eins sem heitir "monitor out" og er merkt með ARC

https://images-na.ssl-images-amazon.com ... L1500_.jpg

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 14:29
af worghal
oskar9 skrifaði:Hmm, eruð þið að meina að tengja hdmi úr skjákorti í hvaða HDMI tengi sem er á magnara og svo úr einhverju öðru hdmi aftan á magnaranum upp í sjónvarpið.
Þetta er Harman Kardon AVR 165, það eru 4 HDMI tengi á honum auk eins sem heitir "monitor out" og er merkt með ARC

https://images-na.ssl-images-amazon.com ... L1500_.jpg

já, sjónvarpið fer í monitor out og ef sjónvarpið er með arc, þá kveikir magnarinn á sjónvarpinu þegar þú kveikir á magnaranum

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 14:35
af SolidFeather
ARC skiptir samt ekki máli í þessu samhengi, bara svona skjóta því inn.

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 14:46
af oskar9
Nú er ég lost, ég ég tengi skjákortið Í Hdmi 1 á magnaranum, tengi svo aðra snúru úr Hdmi 2 á magnaranum uppí sjónvarpið, en fæ allavega enga mynd né hljóð þannig

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 14:49
af SolidFeather
Þú tengir tölvuna í HDMI 1 og sjónvarpið í Monitor Out

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 14:52
af worghal
svona

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 15:04
af oskar9
Það virðist eitthvað annað vera að, ég tengdi tölvuna í Hdmi 1 og tengdi svo aðra snúru milli ARC tengjana a magnara og sjónvarpi, búinn að stilla magnara að leyfa ARC og sjónvarpið virðist vera stillt fyrir ARC sömuleiðis :dissed

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 15:24
af SolidFeather
Ertu með magnarann stiltann á HDMI 1?

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 15:44
af worghal
ertu að reyna að fá mynd og hljóð eða bara hljóð?

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 16:00
af Diddmaster
ég leisti þetta með því að fá mér sound blaster x-fi surround 5.1 pro usb og nota dolby digital life til að fá 5,1 alltaf https://us.creative.com/p/sound-blaster/sound-blaster-x-fi-surround-5-1-pro

er með hdmi úr skjákorti í magnara úr magnara í tv og hljô úr sb í magnara og stillt í magnara að nota það hljòð teingt með svona ljôsleiðara capli úr sb í magn allt hljòð úr tölvu kemur sem dolby digital sem er 5,1

þegar ég notaði hdmi hljòð kom bara 5,1 ef hljòð skráinn,dts og allt það, var 5,1 en ekki neit annað hljôð eiddi mörgum klukkutímum að ransaka þetta á google og dolby digital live er òdírasta lausninn til að fá alltaf 5,1 í gegnum svona ljòs kapall (man ekki rétta nafnið)

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 16:11
af SolidFeather
Diddmaster skrifaði:ég leisti þetta með því að fá mér sound blaster x-fi surround 5.1 pro usb og nota dolby digital life til að fá 5,1 alltaf https://us.creative.com/p/sound-blaster/sound-blaster-x-fi-surround-5-1-pro

Þetta er nú eitthvað svakalegt skítamix. Ef þú vilt láta magnarann mixa stereo efni í surround þá hefði líklegast verið nóg að láta skjákortið outputta stereo. Mín reynsla er sú að ef þú stillir skjákortið á surround en spilar stereo efni þá mixar magnarinn ekki hljóðið í surround með dolby logic eða hvað þetta nú heitir allt saman.

Sambærileg gerist t.d. þegar ég stillti amino myndlyklinn á Dolby. Fréttirnar voru t.d. sendar út í steroe og þá mixaði hann það ekki í surround

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 16:19
af Diddmaster
SolidFeather skrifaði:

nenni ekki að rífast við þig um þetta. rca eru bara 2 hljòð rásir coxial og optical eru með fleiri hljòð rásir<- staðreind -> skoðun hvernig þú eða eða aðrir leisið þetta gerir mitt ekki að skítamixi

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 16:22
af kizi86
oskar9 skrifaði:Það virðist eitthvað annað vera að, ég tengdi tölvuna í Hdmi 1 og tengdi svo aðra snúru milli ARC tengjana a magnara og sjónvarpi, búinn að stilla magnara að leyfa ARC og sjónvarpið virðist vera stillt fyrir ARC sömuleiðis :dissed

Arc skiptir ekki máli þarna.. Settu bara hdmi snúruna úr tölvunni í hdmi 1 tengið á magnaranum, og svo úr monitor out á magnara yfir í hdmi 1 á sjónvarpinu

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 16:29
af Diddmaster
kizi86 skrifaði:
oskar9 skrifaði:Það virðist eitthvað annað vera að, ég tengdi tölvuna í Hdmi 1 og tengdi svo aðra snúru milli ARC tengjana a magnara og sjónvarpi, búinn að stilla magnara að leyfa ARC og sjónvarpið virðist vera stillt fyrir ARC sömuleiðis :dissed

Arc skiptir ekki máli þarna.. Settu bara hdmi snúruna úr tölvunni í hdmi 1 tengið á magnaranum, og svo úr monitor out á magnara yfir í hdmi 1 á sjónvarpinu

og magnarinn þarf að vera stiltur á hdmi 1.ég þarf stundum að endur ræsa magnara ef kveikt er á tv á meðan teingt er í magnara og stundum að skifta um hdmi á tv þá með fjarstíriinguni ekki skifta um hdmi port að aftan en virkar oftast sem skildi

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 17:32
af oskar9
Hmm það er eitthvað að skýrast, nú er ég búinn að tengja skjákortið í Hdmi 1 á magnara
Svo fer önnur snúra úr ARC á magnara í arc á sjónvarpi.
Þegar ég kveiki á sjónvarpinu þá sér sjónvarpið að Hdmi reciver er tengdur og nú get ég hækkað og lækkað í magnaranum með sjónvarpsfjarstýringunni
En ég fæ enga mynd á skjáinn, ég er með Hdmi port 3 valið á sjónvarpinu sem er ARC portið
Magnarinn segir núna Multi-channel PCM/ No video

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 18:27
af worghal
oskar9 skrifaði:Hmm það er eitthvað að skýrast, nú er ég búinn að tengja skjákortið í Hdmi 1 á magnara

ef að það er spes arc port á sjónvarpinu þá ætti það annaðhvort að vera öll eða hdmi 1, finnst það meika lítið sense að hdmi 3 sé arc portið.
en arc skiptir ekki máli í þessu tilefni samt, arc er bara auka fítus sem þú þarf ekkert að spá í

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 18:38
af oskar9
worghal skrifaði:

Portin eru öll merk aftan á sjónvarpið, það eru 3 Hdmi port og bara HDMI 3 er með (ARC) í sviga, það gerðist ekkert þegar ég prófaði að nots hin Portin. Þetta er btw Samsung sjónvarp, yngra en 1 árs

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 18:40
af SolidFeather
Þarf eitthvað að stilla video output í nvidia control panel?

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 19:30
af worghal
þetta er orðið svo forvitnislegt að manni er farið að langa að kíkja í heimsókn :lol:

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fim 14. Feb 2019 23:06
af oskar9
Það að sjónvarpið sjá að það sé tengdur magnari sem ég ég get stjórnað í gegnum sjónvarpið hlýtur að þýða að það séu að koma einhverjar upplýsingar í gegnum ARC tengið.
Það hlýtur að vera eitt af þremur að núna
1. Ég keypti magnarann notaðan, kannski er ARC tengið bilað

2. Ég er að nota tvær mismunandi Hdmi snúrur, önnur er glæný og styður 4k@60hz,hin snúran er eldri og ég veit ekkert hvaða Hdmi staðal hún styður

3. Það eru einhverjar stillingar í GeForce control panel sem hafa áhrif á það af hverju kortið sendir ekki video í magnarann..

Re: Ná 5.1 hljóði úr PC yfir í AVR plús að fá mynd á TV

Sent: Fös 15. Feb 2019 07:12
af hagur
Hvaða upplausn er tölvan að outputta? Ef þetta er eldri magnari þá eru líkur á að hann taki max við 1080P. Þá þýðir ekkert að outputta t.d 4K úr tölvunni.