Síða 1 af 1

Vandamál með að hengja upp Enox 40” TV

Sent: Mán 28. Jan 2019 18:54
af Krissinn
Ég er soldið lost með að hengja upp Enox sjónvarp, málið er að ég keypti veggfestingu með í tilboðinu. Ég veit samt ekki hvaða skrúfur á að nota í sjálft sjónvarpið :/ Kann einhver á þetta? ;)

3EDC1D3B-C9C0-491D-8BA8-0CB5E39A1A0C.jpeg
3EDC1D3B-C9C0-491D-8BA8-0CB5E39A1A0C.jpeg (2.7 MiB) Skoðað 1313 sinnum
BE71740E-4CD2-4DCC-9B48-A42E56E30FEC.jpeg
BE71740E-4CD2-4DCC-9B48-A42E56E30FEC.jpeg (2.79 MiB) Skoðað 1313 sinnum

Re: Vandamál með að hengja upp Enox 40” TV

Sent: Mán 28. Jan 2019 18:56
af ZiRiuS
Flötu skrúfurnar fara væntanlega í sjónvarpið og oddhvössu í vegginn.

Re: Vandamál með að hengja upp Enox 40” TV

Sent: Mán 28. Jan 2019 19:02
af Krissinn
ZiRiuS skrifaði:Flötu skrúfurnar fara væntanlega í sjónvarpið og oddhvössu í vegginn.



Jújú, en hvort þá silfurl. eða svörtu? Hvað með þessa svörtu plast tappa/hólka?

Re: Vandamál með að hengja upp Enox 40” TV

Sent: Mán 28. Jan 2019 19:12
af Black
flötu skrúfurnar fara í sjónvarpið, plast tapparnir eru "spacerar" fyrir skrúfurnar. en svo þarftu að vita hvernig vegg þú ætlar að bora festinguna í. skrúfurnar sem þú ert með þarna eru fyrir trévegg eins og er mikið af á norðurlöndunum. á íslandi er það í flestum tilfellum múr eða gips.

Re: Vandamál með að hengja upp Enox 40” TV

Sent: Mán 28. Jan 2019 19:29
af Krissinn
Black skrifaði:flötu skrúfurnar fara í sjónvarpið, plast tapparnir eru "spacerar" fyrir skrúfurnar. en svo þarftu að vita hvernig vegg þú ætlar að bora festinguna í. skrúfurnar sem þú ert með þarna eru fyrir trévegg eins og er mikið af á norðurlöndunum. á íslandi er það í flestum tilfellum múr eða gips.


Hugsa að þetta sé spónaplötur, en allavega,- hvað notar maður þessa ,,spacera’’ í?

Re: Vandamál með að hengja upp Enox 40” TV

Sent: Mán 28. Jan 2019 19:34
af Televisionary
Það koma oftast X mörg sett af skrúfum með veggfestingum mismunandi þvermál og eða lengd fer eftir gerð tækja. Þetta er oftast gert svona svo að þú getir uppfyllt að selja festinguna fyrir X margar tegundir af tækjum. Það er alveg pottþétt ekki sérframleidd veggfesting fyrir Enox.

Það hefur oft reynst mér vel að nota "spacera" að ofan en ekki að neðan til að fá smá halla á tækið ef að festingarnar sjálfar hafa ekki boðið upp á að halla fram á við.

Re: Vandamál með að hengja upp Enox 40” TV

Sent: Mán 28. Jan 2019 19:36
af arons4
Spacerarnir eru til þess að færa sjónvarpinu lengra frá veggnum. Það passar bara ein stærð af maskínuskrúfum, þessar silfruðu eru sennilega ef þú ætlar að nota spacerana og svörtu ef ekki. Annars ef þær lengdir henta ekki geturu farið í næstu byggingavöruverslun með eina skrúfuna og fengið skrúfur í sama skrúfgangi í hvaða lengd sem er.