Síða 1 af 2

Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Mán 21. Jan 2019 02:29
af Tyler
Samkvæmt þessu þá virðist Ikea að vera koma með rúllugardínur sem hægt verður að tengja við Alexu, Homekit o.fl. Verður áhugavert að sjá.

https://youtu.be/Znqs3qeylho

https://www.activejr.com/ikea-smart-blinds-availability-uk-us-europe/

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Mán 21. Jan 2019 11:27
af sigxx
Ég er mjög spenntur fyrir þessu, Ég hef einmitt verið að skoða gardínur með mótor

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Mán 21. Jan 2019 12:11
af ZiRiuS
195cm lengd er samt svolítið langt miða við að það er ekki hægt að stytta þær...

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Mán 21. Jan 2019 12:17
af arons4
ZiRiuS skrifaði:195cm lengd er samt svolítið langt miða við að það er ekki hægt að stytta þær...

Síddin er 195, rúllast bara styttra niður og restin af gardínunni er þá bara upprúlluð. Nokkrar breyddir í boði.

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Mán 21. Jan 2019 12:19
af worghal
þetta finnst mér óþarflega spennandi og mig langar allt of mikið í svona! :lol:

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Mán 21. Jan 2019 12:30
af akarnid
Bögg samt fyrir okkur sem erum með stofuglugga sem eru 2,5 m á breidd að standard Ikea breiddir passa ekki í það. En neat lausn, er bara með USB hlaðið batterí sem ætti að endast ansi lengi, miðað við að þetta yrði nú aldrei notað mörgum sinnum á dag.

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Mán 21. Jan 2019 13:01
af littli-Jake
Er að fara að mæla gluggana um leið og ég kem heim

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Mán 21. Jan 2019 13:23
af Blues-
https://www.activejr.com/ikea-smart-bli ... us-europe/

Confirmed European sizing for IKEA smart blinds are;
100x195xm
120x195cm
140x195cm
60×195cm
80×195cm

IKEA says that neither smart blind cannot be shortened, so you are stuck with the 195cm drop.

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Mán 21. Jan 2019 13:24
af Tbot
Eru menn orðnir svona fótafúnir að geta ekki staðið upp og dregið fyrir!

:megasmile

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Mán 21. Jan 2019 13:42
af rbe
Eins og sagt var í Englum Alheimsins "Kleppur er víða"

menn að tapa sér í neyslubrjálæði ?

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Mán 21. Jan 2019 15:23
af hagur
rbe skrifaði:Eins og sagt var í Englum Alheimsins "Kleppur er víða"

menn að tapa sér í neyslubrjálæði ?


Afhverju er þetta eitthvað klikkað? Er þetta eitthvað meira rugl en annað home automation dæmi? Afhverju standa menn ekki bara upp og slökkva ljósin eða opna dyrnar (svona sem dæmi)?

Mér finnst þetta kúl og mun eflaust fá mér svona.

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Mán 21. Jan 2019 15:29
af worghal
rbe skrifaði:Eins og sagt var í Englum Alheimsins "Kleppur er víða"

menn að tapa sér í neyslubrjálæði ?

þetta snýst nú ekki um leti eða neyslubrjálæði, þetta er bara ógeðslega cool og minnir mann á það sem maður sér í bíómyndum :D

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Mán 21. Jan 2019 15:40
af Tosmeister
rbe skrifaði:Eins og sagt var í Englum Alheimsins "Kleppur er víða"

menn að tapa sér í neyslubrjálæði ?


Sama og einhver sagði þegar fyrstu sjónvörpin með fjarstýringum komu

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Mán 21. Jan 2019 15:43
af Viktor
Tosmeister skrifaði:
rbe skrifaði:Eins og sagt var í Englum Alheimsins "Kleppur er víða"

menn að tapa sér í neyslubrjálæði ?


Sama og einhver sagði þegar fyrstu sjónvörpin með fjarstýringum komu


...og rennandi vatn í hús? Þvottavélar? Uppþvottavélar?

Afhverju gerum við þetta ekki bara með höndunum ](*,)

Það sem mér finnst sexy við þetta er þessi "Scifi" upplifun. Eins og maður sé í húsi úr framtíðinni :japsmile

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Mán 21. Jan 2019 15:50
af kelirina
spennandi. Bara ef þær væru breiðari og lengdin meiri.

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Mán 21. Jan 2019 15:58
af Hauxon
Þessi þráðu minnir mig á:

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Mán 21. Jan 2019 17:02
af rbe
Vaktin.is er eitt stórt neyslubrjálæði :)

Þú kaupir ekki hamingjuna ?

ps. verð vonandi bannaður fyrir þetta innlegg.

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Mán 21. Jan 2019 17:24
af ZiRiuS
Tbot skrifaði:Eru menn orðnir svona fótafúnir að geta ekki staðið upp og dregið fyrir!

:megasmile


Ég er bókstaflega í hjólastól svo já.

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Mán 21. Jan 2019 21:06
af vesi
ZiRiuS skrifaði:
Tbot skrifaði:Eru menn orðnir svona fótafúnir að geta ekki staðið upp og dregið fyrir!

:megasmile


Ég er bókstaflega í hjólastól svo já.



Þetta hlítur að vera besta svar síðustu ára. :face

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Þri 22. Jan 2019 11:33
af russi
Það kemur pottþétt hack á þetta svo hægt sé að stytta þær, fyrirfram ætti það að vera tiltölulega einfald en er án efa hundleiðinlegt

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Þri 22. Jan 2019 11:46
af GullMoli
russi skrifaði:Það kemur pottþétt hack á þetta svo hægt sé að stytta þær, fyrirfram ætti það að vera tiltölulega einfald en er án efa hundleiðinlegt


Af hverju að stytta þær? Þær stoppa væntanlega þegar þær snerta gluggasylluna eða álíka.

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Þri 22. Jan 2019 11:49
af russi
GullMoli skrifaði:Af hverju að stytta þær? Þær stoppa væntanlega þegar þær snerta gluggasylluna eða álíka.


Þegar átt er við styttingu á gardingum er yfirleit verið að tala um styttingu á breidd en ekki á sídd.

Líklega stoppa þær þegar snerta gluggasylluna eða það er stillt af

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Þri 22. Jan 2019 11:57
af Daz
russi skrifaði:Þegar átt er við styttingu á gardingum er yfirleit verið að tala um styttingu á breidd en ekki á sídd.

Líklega stoppa þær þegar snerta gluggasylluna eða það er stillt af

Þegar þú minnkar breidd einhvers er venjulega talað um að ... minnka breidd eða mjókka. Að stytta vísar til lengdar eða síddar.

Aaaaaah besservisserun dagsins komin.

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Þri 22. Jan 2019 12:01
af Viktor
Daz skrifaði:
russi skrifaði:Þegar átt er við styttingu á gardingum er yfirleit verið að tala um styttingu á breidd en ekki á sídd.

Líklega stoppa þær þegar snerta gluggasylluna eða það er stillt af

Þegar þú minnkar breidd einhvers er venjulega talað um að ... minnka breidd eða mjókka. Að stytta vísar til lengdar eða síddar.

Aaaaaah besservisserun dagsins komin.


Orðið "að stytta" hefur ekkert með áttir að gera. Getur stytt hluti í allar áttir.

Gardínur eru oftast bara teknar nógu eða of síðar fyrir gluggann, svo hættir maður að skrúfa þegar gardínan er komin nægilega neðarlega. En það er auðvitað yfirleitt hægt að stytta í báðar áttir, en ekki á þessum :-"

Re: Ikea trådfri rúllugardínur

Sent: Þri 22. Jan 2019 12:31
af blitz
Það hlýtur að vera einhver misskilningur í fréttinni, þeir tala bara um að það sé ekki hægt að stytta hana þannig að þú ert fastur með gardínu sem er 195cm að sídd. Ekkert talað um breiddina.

Finnst þó líklegra að IKEA hafi átt við að það sé ekki hægt að stytta þær á breiddina.