Síða 1 af 1

Snjallheimili - Perur eða rofar?

Sent: Fim 03. Jan 2019 13:44
af Viktor
Fór að spá í þetta varðandi lýsingu fyrir snjallheimili, og hef verið að velta þessu fyrir mér.

Meikar einhvern sense að vera að skipta út öllum perum fyrir snjallperur? Svo þegar peran er "búin/springur" þá er allur "smart" búnaðurinn farinn á haugana og það þarf að byrja allt klabbið upp á nýtt, kaupa nýja peru með radióbúnaði, para aftur, tengja fjarstýringu og vesen. Þetta er IKEA leiðin. Er þetta ekki algjört rugl?

Á maður ekki frekar að kaupa smart-wall switches og nota venjulegar perur? Skipta út rofunum fyrir rofa sem tengjast í höbb? Geta slökkt bæði á veggnum með rofanum og í appinu/höbbinum?

Hjá mér eru til dæmis oft 2-6 perur á hverjum rofa. Dýrt spaug. Kannski sniðugra að kaupa snjallperu ef það er bara ein pera sem hver rofi kveikir á.

Nota bene þá hef ég engan áhuga á lituðum perum sem láta íbúðina mína líta út eins og hóruhús.

Er ég alveg úti á þekju? Bara pæling.

Re: Snjallheimili - Perur eða rofar?

Sent: Fim 03. Jan 2019 13:58
af wicket
Ert bara að hugsa þetta nokkuð rétt finnst mér.

Ég hef farið hybrid leiðina. Er með allskonar ljós og lampa sem henta ekkert fyrir snjallperur, hef sett snjalla rofa þar. Svo nota ég snjallperur, bæði Hue og Tradfri í önnur ljós þar sem það hentar betur, t.d. í lampa hjá krökkunum, í innfelld halogen stæði í lofti og annað.

Notast ekkert við litina, finnst það ljótt eins og þér :) En nota þetta mikið allt saman til að stilla senur, dimma ljós, láta ákveðin ljós fara on/off ef ég er að gera ákveðið þegar ég kveiki á sjónvarpinu, útiljós sem fara on/off eftir sólargangi og allskonar fleira.

Re: Snjallheimili - Perur eða rofar?

Sent: Fim 03. Jan 2019 14:05
af Viktor
Ah, hugsaði ekki út í lampa og svoleiðis. Útiljós eflaust líka sniðug í svona snjallperulausn.
En þá komum við að stóra vandamálinu, fólk má ekki slökkva með takkanum á lampanum eða útiljósinu, þá hættir snjallperan að virka.

Ætla allavega að fara að skoða eitt stykki SmartThings rofa fyrir þessi 6 ljós í loftinu.

Re: Snjallheimili - Perur eða rofar?

Sent: Fim 03. Jan 2019 14:09
af hagur
Sammála Wicket. Það eru kostir og gallar við bæði. Ég er með mix af þessu tvennu. Helling af Hue perum og Hue compatible perum (Tradfri og InnR). Líka með nokkra Z-Wave modules inn í rofadósum, sem eru tengdir Smartthings.

Helsta vandamálið við svona snjallrofa er að það þarf að vera búið að draga núll niður í rofadósina, sem er kannski normið í dag? Var a.m.k ekki hjá mér (c.a 40 ára gamalt húsnæði). Ég þurfti að græja það í þá rofa sem ég setti svona module í.

Re: Snjallheimili - Perur eða rofar?

Sent: Fim 03. Jan 2019 14:28
af braudrist
Endast perurnar ekki í 20 - 25.000 klst.? Miðað við 5 klst. notkun á dag þá ætti hver pera að endast í ca. 14 ár. Er þetta það mikill kostnaður miðað við endinguna á þessu? Ég ætti kannski ekki að segja mikið, ég er í svo lítilli íbúð :D

Re: Snjallheimili - Perur eða rofar?

Sent: Fim 03. Jan 2019 14:40
af wicket
ég er einmitt líka með SmartThings og innbyggða gaura í dósunum sem voru fyrir, skipti ekki út tökkunum sem fyrir voru.

Er reyndar líka með Fibaro The Button fyrir krakkana í sínum herbergjum.

Re: Snjallheimili - Perur eða rofar?

Sent: Fim 03. Jan 2019 14:48
af Viktor
hagur skrifaði:Helsta vandamálið við svona snjallrofa er að það þarf að vera búið að draga núll niður í rofadósina, sem er kannski normið í dag? Var a.m.k ekki hjá mér (c.a 40 ára gamalt húsnæði). Ég þurfti að græja það í þá rofa sem ég setti svona module í.


Lost me att núll :?:

https://manuals.fibaro.com/content/manu ... pdf#page=7

Re: Snjallheimili - Perur eða rofar?

Sent: Fim 03. Jan 2019 14:58
af blitz
Sallarólegur skrifaði:
hagur skrifaði:Helsta vandamálið við svona snjallrofa er að það þarf að vera búið að draga núll niður í rofadósina, sem er kannski normið í dag? Var a.m.k ekki hjá mér (c.a 40 ára gamalt húsnæði). Ég þurfti að græja það í þá rofa sem ég setti svona module í.


Lost me att núll :?:

https://manuals.fibaro.com/content/manu ... pdf#page=7


Hann er væntanlega að tala um neutral.

Re: Snjallheimili - Perur eða rofar?

Sent: Fim 03. Jan 2019 18:28
af arons4
Myndi alltaf fara í rofa frekar en perur, og svo fyrir lampa eða annað fara í eitthvað eins og þetta. Færi sammt aldrei í rofa eins og þú linkaðir í fyrsta póstinum þar sem tenglaefnið passar ekki við restina af húsinu.
https://www.vesternet.com/z-wave-aeon-l ... tch-6-gen5

Margir þessara rofa virka án núll en annars er minnsta mál í heimi að bæta núllinu við. Gallin við z-wave sammt er hversu dýrt það er, zigbee eða wifi er mun ódýrara. Hef sammt ekki fundið góð zigbee relay sem passa inní rofadósir

1stk z-wave £40.00 https://www.vesternet.com/z-wave-fibaro ... tch-2-gen5
4stk wifi €39.00 https://shelly.cloud/product/shelly-1-open-source/

Þó það fari sammt ekki á milli mála að z-wave búnaðurinn sé nánast alltaf vandaðri.

Re: Snjallheimili - Perur eða rofar?

Sent: Fim 03. Jan 2019 18:37
af kjartanbj
Ég er með Hue og Tradfri í bland í öllum ljósum í íbúðinni svo nota ég Sonoff basic á lampa og ljósin í innréttinguna í eldhúsinu , svo er lítið hvítt teip yfir rofunum þannig það sé ekki fiktað í þeim , Hreyfiskynjari stýrir ljósunum á baðinu en Hue fjarstýring stýrir ljósunum í stofunni og almenna rýminu, svefnherbergin eru síðan með Xiaomi Aqara takka , tölvuherbergið er með takka en líka skynjari á hurðinni sem kveikir ljósið þegar maður opnar hurðina. Ég er líka með Samsung family hub ískáp sem er tengdur Smartthings, þannig þegar ég opna hurðina á honum á kvöldin/nóttinni þá kveiknar led borði undir eldhús skápunum til að lýsa manni. Síðan er að sjálfsögðu hægt að nota Alexa til að stýra ljósunum líka

Annað með munin á að vera með rofa eða perur er að það er alveg sparnaður að vera með Led í öllum ljósum í stað þessarar hefðbundu peru sem er kannski 60w þó menn spái kannski lítið í því hér á íslandi

Re: Snjallheimili - Perur eða rofar?

Sent: Fim 03. Jan 2019 18:40
af hagur
Sallarólegur skrifaði:
hagur skrifaði:Helsta vandamálið við svona snjallrofa er að það þarf að vera búið að draga núll niður í rofadósina, sem er kannski normið í dag? Var a.m.k ekki hjá mér (c.a 40 ára gamalt húsnæði). Ég þurfti að græja það í þá rofa sem ég setti svona module í.


Lost me att núll :?:

https://manuals.fibaro.com/content/manu ... pdf#page=7


Núll eða Neutral. Táknað með N á þessu wiring diagrami sem þú póstar.

Re: Snjallheimili - Perur eða rofar?

Sent: Fim 03. Jan 2019 20:45
af izelord
Þetta er líklega eitt aðal vandamálið í dag. Við erum að færast nær snjall-lausnum en við erum bundin bæði af búnaði og vana.

Hvað varðar upphaflegu pælinguna með rofar vs perur og mögulegt vandamál þegar peran væri dauð, þá er það í raun ekki vandamál. Perurnar lifa það lengi að það litla ómak sem það er að para upp á nýtt verður í heildina minna vandamál en að skipta í sífellu út gamla glóþræðinum.

Ég tel helsta vandamálið snúast um það hvaða "kerfi" menn binda sig. Sum kerfi geta talað við önnur á meðan önnur geta verið ansi lokuð og þal. með færri möguleika. Fleiri möguleikar bjóða upp á frekara flækjustig en það getur valdið skerðingu á þjónustu þegar og ef kerfin frjósa. Þá eru sum kerfin aðeins í boði með cloud aðgangi og þá getur verið ansi fúlt þegar samband glatast við netþjón sem veldur því að heimilið er dautt.

Sumir velja að fara þá leið að skipta rofunum út fyrir snjallrofa, sem eru í takmörkuðu framboði. Auðveldast væri ef þeir væru með rafhlöðu, eins og fjarstýringar þar sem oftast þarf að draga neutral í dósina sem gamli rofinn var í. Sumir eru tengdir þannig að þeir stjórna rafmagninu í peruna meðan aðrir senda aðeins boð og peran er sítengd. Mér hugnast frekar fyrri kosturinn þar sem slíkur búnaður virkar alltaf, hvort sem kerfið er í hönki eður ei.

Sjálfur er ég með zwave, wifi og zigbee perur, zwave skynjara og tengingu við skynjara öryggiskerfisins. Kerfið er umfangsmikið og flókið og stundum upplifir maður sig sem í starfi kerfisstjóra á eigin heimili. Vandamál númer eitt hefur verið skortur á framboði í snjallrofum. Ég hef beitt zwave dimmer module sem tengist á bak við hefðbundna rofa en sumar dósir eru einfaldlega það þröngar að sá kostur er ekki í boði. Þá vantar núllið í flestar dósir.

Þá er það spurning með virknina ef maður er með snjallrofa og peru. Það hefur áhrif á virknina þar sem gera þarf ráð fyrir virkni á rofanum áður en boð eru send í peruna. Sérstaklega ef peran er af "fire and forget" tegund sem gefur ekki stöðumeldingar frá sér.

tldr; Þetta er frumskógur en það þarf ekki að hafa áhyggjur af því að perurnar séu að deyja.

Re: Snjallheimili - Perur eða rofar?

Sent: Fim 03. Jan 2019 21:23
af Revenant
Það sem stendur í mér að fara útí þetta er:
  • Staðlar - Kerfi sem þú kaupir í dag getur verið "úrelt" eftir fáein ár ef þú veðjar á vitlausan staðal (zigbee, wifi etc) og getur ekki verið samhæft öðrum IoT hlutum.
  • Varahlutir - Ekkert er jafn pirrandi og kaupa "kerfi" og síðan eftir fáein ár fást ekki varahlutir þegar hlutirnir bila eða það er komin ný gerð sem er ekki backwards compatible.
  • Sala á eign - Þetta getur bæði verið plús og mínus þegar verið er að selja eign með svona kerfi (fer eftir kaupanda hvort hann fíli svona kerfi).
  • Bilanir - Ef miðlægir hlutar bila (s.s fjarstýring eða rofar) þá getur það tekið tíma að bilanagreina og laga það (með tilheyrandi ljósleysi mögulega).
  • Ávinningur - Hvaða "vandamál" er verið að leysa með því að fara útí svona ljósastýringar (með tilheyrandi kostnaði og umstangi) fyrir útan "kúl"-factorinn?

Re: Snjallheimili - Perur eða rofar?

Sent: Fim 03. Jan 2019 21:28
af kjartanbj
Zigbee staðallinn er ekkert að fara hverfa.. né Zwave

það góða við þessi "kerfi" er að þú ert ekki bundin við einn ákveðin framleiðanda þannig ólíklegt að þú fáir ekki varahlut , kaupir einfaldlega frá öðrum framleiðanda samskonar búnað ef hinn er hættur að framleiða þá

Ef ég sel íbúðina þá tek ég einfaldlega perurnar og skynjarana með mér í þá næstu, er ekkert stórmál

það er ekki verið að leysa neitt vandamál, bara auðvelda sér lífið, ég td ýti á einn takka í símanum þegar ég fer út að heiman og þá læsist íbúðin, öll ljós slokkna og þjófavarna kerfið fer á vörð , á miðnætti fer kerfið á vörð sjálfkrafa á ytri skynjara semsagt hurðum og gluggum, og útidyrahurðin læsist ef hún er ekki læst og svo framvegis, allskonar þægindi og hugmyndaflugið bara það eina sem stöðvar mann í rauninni

Re: Snjallheimili - Perur eða rofar?

Sent: Fim 03. Jan 2019 23:27
af Viktor
Ég held einmitt að þetta leysi allskonar vandamál.

Til dæmis ágætis ráð að prufa, gegn skammdegisþunglyndi, að allar perur fari á full blast kl. 7 á morgnanna alla daga.

Kaffið tilbúið þegar þú vaknar.

Slökkva öll ljós með einum takka í stað þess að þurfa að taka rúnt í hvert einasta herbergi.

Svo auðvitað bara þægindi, eins og að hlusta á Podcast í öllum herbergjum, láta það elta þig og svoleiðis stælar.

Öryggiskerfi líka. Kveikja randomly ljós og á tónlist þegar þú ert í útlöndum.

Ég er alveg seldur allavega.