Síða 1 af 1

Að uppfæra steríógræjur

Sent: Lau 08. Des 2018 20:28
af pegasus
Kæru Vaktarar,

Ég er með hátt í fimmtán ára gamlar steríógræjur (sjá myndir neðst) í stofunni hjá mér sem ég nota aðallega til að hlusta á Spotify tónlist úr símanum mínum en stundum líka sem hefðbundið útvarp. Ég er ánægður með hljóðið en er orðinn dauðþreyttur á öllu umstanginu sem fylgir græjunum þegar ég vil hlusta á tónlist. Fyrst þarf ég að kveikja á þeim, næsta tengja símann með AUX snúru, síðan hækka bæði í símanum og græjunum (því það heyrist hærra í útvarpinu) og eftir á þarf ég að muna eftir að lækka aftur (til að ég hrökkvi ekki við ef ég nota útvarpið næst) og svo náttúrulega slökkva á græjunum.

Nú er ég ekki mikill hljóðkall og því mig langar að spyrja hér: Er hægt að uppfæra miðjugræjuna í eitthvað always-on Bluetooth/Wi-Fi dót en nota áfram sömu hátalara?

Ég var fyrst að heyra af svokölluðum AVR tækjum (Audio Video Receivers) sem gæti verið það sem ég er að leita eftir? (Hvernig veit ég hvort að eitthvað þannig tæki virki með hátölurunum mínum?) Speccarnir fyrir græjurnar mínar eru hér en þar segir m.a. að hátalararnir mínur séu 12 Ω og 2 x 50 W MPO / 2 x 25 W RMS.

Læt tvær myndir sem sýna hvernig hátalarnir eru tengdir við miðjutækið fylgja.

Mynd
Mynd

Svona líta græjurnar út
Mynd

Re: Að uppfæra steríógræjur

Sent: Sun 09. Des 2018 00:33
af gunnji
Auðveldasta lausnin er að kaupa bluetooth móttakara og tengja bara í Aux tengið. Hefur svo bara alltaf kveikt á bluetooth móttakaranum. Að ætla kaupa nýjan receiver fyrir þessa hátalara væri hálfgert overkill. Ekki nema að þú kannski skoðir svona Desktop amplifiers með innbyggðu Bluetooth. Þeir hafa verið að koma frekar vel út og eru einstaklega auðveldir í notkun.

Re: Að uppfæra steríógræjur

Sent: Sun 09. Des 2018 01:34
af Squinchy
Ég er með þennan fyrri geymslu hátalarana, mjög fín græja fyrir þennan pening
https://www.aliexpress.com/item/2016-La ... 5695045a4e

Re: Að uppfæra steríógræjur

Sent: Sun 09. Des 2018 12:14
af pegasus
gunnji skrifaði:Auðveldasta lausnin er að kaupa bluetooth móttakara og tengja bara í Aux tengið. Hefur svo bara alltaf kveikt á bluetooth móttakaranum. Að ætla kaupa nýjan receiver fyrir þessa hátalara væri hálfgert overkill. Ekki nema að þú kannski skoðir svona Desktop amplifiers með innbyggðu Bluetooth. Þeir hafa verið að koma frekar vel út og eru einstaklega auðveldir í notkun.

BT móttakari væri skref í rétta átt, en það myndi ekki losa mig við það sem ég kalla "leiðinlega umstangið" að kveikja/slökkva og hækka/lækka á græjunum í hvert sinn sem ég vil hlusta á tónlist.

Squinchy skrifaði:Ég er með þennan fyrri geymslu hátalarana, mjög fín græja fyrir þennan pening
https://www.aliexpress.com/item/2016-La ... 5695045a4e

Þetta finnst mér áhugaverður vinkill, sérstaklega í ljósi þess að ég myndi spara gríðarlegt pláss í hillunni með því að skipta út miðjugræjunni fyrir þessari. En hvernig er það, slekkurðu á græjunni milli þess sem þú hlustar á tónlist eða fer það bara í "sleep mode" eins og önnur snjalltæki?

Svo var ég eitthvað að reyna að gúggla þetta sjálfur í gær og rakst á græjur eins og Sony STR DH190 (~ €150) og Denon PMA-60 (~ €500). En fyrir þennan pening gæti ég allt eins keypt nýja aktíva hátalara með innbyggðu BT eða jafnvel eitthvað eins og Sonos PLAY með AirPlay og Spotify Connect stuðning.

Hversu langt á maður að ganga í að endurnýta gamalt dót áður en maður hendir því og kaupir nýtt?

Re: Að uppfæra steríógræjur

Sent: Sun 09. Des 2018 14:42
af russi
Farðu bara beint í Sonos, þú endar sem sáttur gaur fyrir vikið

Re: Að uppfæra steríógræjur

Sent: Þri 25. Des 2018 23:13
af marinop
Ég er með húsið hálf teppalagt með google home græjum, en við gömlu stereo græjurnar er ég með chromacast audio. Þegar ég er að hlusta á þær er ég oftast meira "aktívt" að hlusta svo það fer ekki í taugarnar á mér að þurfa að kveikja og mögulega hækka/lækka (eitthvað hægt að hækka/lækka í gegnum software). Finnst einhver sjarmi að vera með gamla dótið, en við þær eru líka tengdur plötuspilari og ég er til í að hætta með hann strax.

Tjekkaðu á chromecast audio =)