Reynsla af Amazon fire tv


Höfundur
GBG86
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Mán 26. Nóv 2018 07:09
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Reynsla af Amazon fire tv

Pósturaf GBG86 » Mán 26. Nóv 2018 07:57

Góðan daginn vaktarar!

Ég hef verið að horfa í kringum mig í dágóðann tíma eftir launs þar sem ég gæti losað mig við myndlykilinn og sparað mér þennan 1900kr á mánuði sem leigan á honum kostar.

Augljósa svarið væri Apple Tv, en mér finnst það heldur dýrt og svo er ég ekki mikill Apple maður.

En núna sé ég að Amazon er komið með nýtt Fire TV Stick 4K https://www.amazon.com/dp/B079QHML21/ref_=fs_ods_fs_smp_ms á djók verði.

En ég sé ekki nein íslensk sjónvarps öpp í app store hjá þeim. Þannig að mig langaði að athuga hvort að einhver hér hefði reynslu af fire tv og gæti svarað nokkurum spurningum?

1. Vitiið þið um einhver öpp fyrir íslenst sjónvarp í fire tv?

2. Nú keyrir fire tv á android. hefur einhver prófað að sideloda einhverjum af íslensku sjónvarps öppunum? hver er reynslan af því?

3. Hefur einhver prófað að sideloda Steam link? :D

4. Nú selur Amazon ekki fire tv græjur til íslands. gæti það valdið einhverjum vandræðum? (einhverskonar region lock á amazon account?)

Annars er ég líka opinn fyrir einhverjum öðrum launsum. Ég er núna með Roku streaming stick+ og er mjög ánægður með hann, fyrir utan að geta ekki horft á opnu íslensku sjónvarpsstöðvanar.



Skjámynd

zetor
spjallið.is
Póstar: 452
Skráði sig: Sun 17. Júl 2011 23:12
Reputation: 77
Staða: Ótengdur

Re: Reynsla af Amazon fire tv

Pósturaf zetor » Mán 26. Nóv 2018 10:17

Reynsla mín á Fire Tv er mjög góð.

1. Oz tv appið er í amazon store og nota ég það mest. Ekkert sjónvarp símans þar en vod-ið er þokkalegt.

2. Ég hef prófað að side-loada öðrum íslenskum sjónvarpsöppum og það hefur ekki komið vel út, að því leyti að viðmótið snýr á hlið
og takkar virka ekki. Aftur á móti hef ég notað silk browser til að opna bæði sarpinn/oztv/stöð2app vafraútgáfur. Hefur það
reynst mér mjög vel. Svo er til íslenskt app fyrir rúv kallað Uxinn hef ekki prófað það reyndar.

3. Hef ekki prófað að sideload steam-link.


4. Sum öpp sem ég nota t.d. þýskt app sem er með vod frá nokkrum sjónvarpsstöðvum þar þarf þýska ip tölu til að nálgast efnið. Ég er staddur erlendis
og sideloadaði openvpn connect appi til að tengjast íslenskri iptölu svo ég gæti séð lokaefni frá rúv. Þar sidelodaðist það app mjög vel.


Ég mæli eindregið með amazon fire stick, og sérstaklega þetta sem er nú nýkomið á markað. Ég nota þetta mjög mikið




Höfundur
GBG86
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Mán 26. Nóv 2018 07:09
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Reynsla af Amazon fire tv

Pósturaf GBG86 » Mán 26. Nóv 2018 10:51

Takk fyrir skjót og góð svör :)

Ég var alveg búinn að gleyma OZ appinu!

Ég hugsa að ég skelli mér þá bara á þetta.

Takk!