Síða 1 af 1

Margmiðlunartæki - Roku 4 eða annað?

Sent: Mán 23. Júl 2018 14:53
af Richter
Hæ.

Er búinn að velta fyrir mér slíkum tækjum fyrir sjónvarpið mitt. Er einhver með reynslu á Roku 4 spilaranum og eða mælir með einhverju öðru tæki?

Svo annað - hvernig er auðveldast að nálgast slík tæki. Maður sér þetta á flest öllum Topp 10 listum yfir margmiðl. tæki en get ekki fundið það til sölu á Íslandi?

bkv

Re: Margmiðlunartæki - Roku 4 eða annað?

Sent: Mán 23. Júl 2018 15:40
af AntiTrust
Persónulega myndi ég mæla með Android TV tæki (Fire TV t.d.) eða Apple TV. Bæði með mikið fallegri UI en Roku-ið.

Re: Margmiðlunartæki - Roku 4 eða annað?

Sent: Mán 23. Júl 2018 16:03
af Richter
AntiTrust skrifaði:Persónulega myndi ég mæla með Android TV tæki (Fire TV t.d.) eða Apple TV. Bæði með mikið fallegri UI en Roku-ið.


Hvað af Android tækjunum sem þú mælir með er fáanleg hér á landi? Væri best að vera með eitthvað sem styður 4k upplausn og í raun bara hugsað sem upgrade fyrir "Snjall-lausa" sjónvarpið mitt. Fæst Fire-Tv á Íslandi?

Re: Margmiðlunartæki - Roku 4 eða annað?

Sent: Mán 23. Júl 2018 17:02
af AntiTrust

Re: Margmiðlunartæki - Roku 4 eða annað?

Sent: Mán 23. Júl 2018 22:18
af Televisionary
Eftir að hafa haft að hafa prófað ansi mikið af tækjum/hugbúnaði í gegnum tíðina þá ákvað ég að fara í eins umhverfi í öll rými með sjónvarpi hjá mér í húsinu. Setti upp 4 stykki í húsinu hjá mér. Roku var ekki að gera neitt fyrir mig.

Ástæða þess að Xbox var tekið er sú að ég er með fullt hús af börnum sem vilja spila tölvuleiki og með Xbox Game Pass og Electronics Arts Access Club þá fæ ég leiki í áskrift og losna þá við þetta kvabb að fara í búðir og kaupa leiki allir leikir downloadaðir. Með réttri uppsetningu er hægt að nota leikina á öllum vélum þó ekki öllum í einu. Profile uppsetningar hjá MS þarf aðeins að laga þegar kemur að stærri heimilum.

Þú hefur stuðning við Plex, Amazon Primevideo, Hulu, Microsoft Leiguna, Netflix, VLC, Kodi. Einnig Blu Ray Afspilun. Það heyrist lítið í þeim.

En ég er ekki að sjá neitt svona smart þegar kemur að leikjum. Bind þó töluverðar vonir við Shadow leikjaþjónustuna sem lætur þig hafa Windows tölvu með 12 GB ram og því sem á að samsvara 1080 skjákorti og þú streymir leikjunum þínum yfir netið.

Ég greiddi 157-220 EUR fyrir One S vélarnar og eitthvað meira fyrir One X vélina.

Ef ég hefði ekki farið í það að setja upp leikjatölvur í öll rými hefði ég sjálfsagt skoðað Nvidia Shield eða möguleika 4K Apple TV.

Þegar ég ferðast þá tek ég með mér Fire TV Stick (eina græjan sem styður auðkenningu á vefsíðum á hótelum) eða Chromecast. Er á ferðalagi núna og það er merkilega gott að notast við Chromecast í svo gott sem netlausu svæði út í sveit.
- Videocaster fyrir Chrome er alveg frábært.
- Að casta tölvuleikjum af símum hefur verið ágætis skemmtun hérna fyrir ungviðið.
- Hef notað þetta fyrir hljóðið hérna hjá mér í túrnum þetta "castar" öllu hljóði úr Windows yfir á Chromecast:https://github.com/acidhax/chromecast-audio-stream

Hef verið með:

- Xbox (Fyrsta útgáfa) með XBMC
- MythTV
- Popcorn
- Mac Mini
- PC vélar af ýmsum gerðum
- Chromecast
- Fire TV Stick
- Fire TV 2K og 4K útgáfur
- Sky Now (Roku box í dulbúning)
- Nokia Symbian (Sími með Valmyndakerfi og HDMI útgangi)
- Amino A110/A130/A140/A120
- Xbox 360
- PS3
- PS Vita TV
- Raspberry Pi með OpenELEC

Ég er sjálfsagt að gleyma að setja eitthvað á listann.