Síða 1 af 1

Þráðlausir myndlyklar frá Símanum.

Sent: Mán 16. Júl 2018 12:32
af brynjarbergs
Sælir,

Ég rakst á eitt sem stakk mig í augun og leita ég því til ykkar ...

Finnst ykkur ekkert undarlegt að það telji af gagnamagninu ykkar ef þið ætlið að hafa myndlykilinn þráðlausan???

Mynd

https://www.siminn.is/forsida/adstod/sj ... myndlykill

Re: Þráðlausir myndlyklar frá Símanum.

Sent: Mán 16. Júl 2018 12:38
af kjartanbj
Nei, tengja beint við beini þá er þetta gegnum sér Vlan og telur ekki af notkun en gegnum wifi er þetta bara að nota internet tenginguna , annars telja allar betri internetveitur ekki gagnamagn þannig að fólk ætti ekki að þurfa hafa áhyggjur af þessu

Re: Þráðlausir myndlyklar frá Símanum.

Sent: Mán 16. Júl 2018 16:54
af appel
brynjarbergs skrifaði:Sælir,

Ég rakst á eitt sem stakk mig í augun og leita ég því til ykkar ...

Finnst ykkur ekkert undarlegt að það telji af gagnamagninu ykkar ef þið ætlið að hafa myndlykilinn þráðlausan???

Mynd

https://www.siminn.is/forsida/adstod/sj ... myndlykill


Þessi skilaboð birtast í hvert skipti sem þú kveikir á myndlykli yfir wifi, að að þetta geti talið í gagnamagni þar sem það er mælt.

T.d. gætir þú verið með hann tengdan yfir 4G, þannig að það er eðlilegt að taka það fram að þetta geti talið í gagnamagni.