Síða 1 af 1

Erlendar fótbolta rásir.

Sent: Mán 15. Jan 2018 20:57
af benony13
Er kominn með nóg af 365 appinu sem og háa C-inu á öllum lýsendum stöð 2 sport :mad . Er að leita mér af áskrifarleið sem er nokkuð idiot proof en helst með þessum enskum þulum. Horfði mikið á BeIn sports úti á Kanarí yfir jólin og þótti það fínt en annars er sky einnig alltaf solid.

Er búinn að lesa um Mag box en veit ekki alveg hvernig það virkar. Er jafnvel hægt að nýta sér eitthverja áskrift í gegnum snjallsjónvarp?

Re: Erlendar fótbolta rásir.

Sent: Mán 15. Jan 2018 21:00
af hagur
fabiptv.com

Kostar smotterí.

Hægt að horfa í nánast hvaða mediaspilara sem er.

Re: Erlendar fótbolta rásir.

Sent: Mán 15. Jan 2018 21:24
af benony13
hagur skrifaði:fabiptv.com

Kostar smotterí.

Hægt að horfa í nánast hvaða mediaspilara sem er.

Hvar er hægt að sjá stöðvalistann, sé hann ekki í fljótu bragði.

Re: Erlendar fótbolta rásir.

Sent: Mán 15. Jan 2018 23:52
af Manager1
Ég hef verið áskrifandi að ntv.mx í nokkuð langan tíma, er nokkuð sáttur fyrir utan frekar mikið vesen að finna út á hvaða rásum leikurinn sem mig langar að sjá er, en það á aðallega við um aðrar íþróttir en fótbolta, þar eru SkySports og BT sport nokkuð solid valkostur.

Re: Erlendar fótbolta rásir.

Sent: Þri 16. Jan 2018 00:04
af kassi
benony13 skrifaði:
hagur skrifaði:fabiptv.com

Kostar smotterí.

Hægt að horfa í nánast hvaða mediaspilara sem er.

Hvar er hægt að sjá stöðvalistann, sé hann ekki í fljótu bragði.



https://pastebin.com/raw/0B5fw7h3

Re: Erlendar fótbolta rásir.

Sent: Þri 16. Jan 2018 10:25
af Hauxon
imbakassinn/iview IPTV virkar (oftast) fínt. Bæði notað það í GoogleTV boxi og nú á Amazon Firestick.

Re: Erlendar fótbolta rásir.

Sent: Þri 03. Apr 2018 20:42
af Tiger
Þeir sem eru með NTV.mx...... eru þið að lenda í því í dag og gær að straumurinn frís eftir c.a. mínútu. Hvort sem þið horfið á ntv síðunni eða í gegnum MAG eða annað?

Re: Erlendar fótbolta rásir.

Sent: Mið 04. Apr 2018 00:05
af Skari
Ég nota acestream, bæði í pc tölvu og sem app við android tölvu sem er líka tengd við sjónvarp..

Hef fundið linkana á streamin svo á r/soccerstreams

Þetta er eins og torrent svo þú uploadar alltaf einhverju frá þér en þetta eru lang bestu gæðin og besti stöðugleiki

Var með áskrift hjá vader streams en þeir voru bara með 720p og átti til að bufferast of mikið

Sent from my Mi A1 using Tapatalk

Re: Erlendar fótbolta rásir.

Sent: Mið 04. Apr 2018 08:52
af Haukursv
Skari skrifaði:Ég nota acestream, bæði í pc tölvu og sem app við android tölvu sem er líka tengd við sjónvarp..

Hef fundið linkana á streamin svo á r/soccerstreams

Þetta er eins og torrent svo þú uploadar alltaf einhverju frá þér en þetta eru lang bestu gæðin og besti stöðugleiki

Var með áskrift hjá vader streams en þeir voru bara með 720p og átti til að bufferast of mikið

Sent from my Mi A1 using Tapatalk


Sama hér, gömul fartölva tengd við sjónvarpið, reddit.com/r/ nbastreams , soccerstreams og mmastreams parað við acestream og ég er aldrei í vanda