Smart homes - Snjall heimili

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 441
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf hagur » Fös 02. Feb 2018 00:29

Skari skrifaði:
hagur skrifaði:
marinop skrifaði:..... Dýrasta útgáfan af þessari bjöllu (og floodcamið) er með annars konar motion kerfi og er ég forvitinn að vita hvernig það mun reynast.


Ég er bæði með original V1 bjölluna (við bakdyrnar) og svo Pro módelið við aðalinnganginn og motion detection-ið í Pro er miklu betra. Það byggir ekki á PIR skynjara heldur er "alvöru" pixel change detection og cameran er alltaf að taka upp í buffer. Um leið og hreyfing er skynjuð, þá spólar hún til baka um c.a 5 sek og byrjar að vista. Þannig sér maður alltaf hvað triggeraði upptökuna, í raun áður en hreyfingin átti sér stað.
Hvernig er hún þegar það er mikil snjókoma og almennt slæmt veður, er hún þá ekki alltaf að skynja hreyfingu?

Sent from my Mi A1 using Tapatalk


Nei, hef ekki lent í því. Hún er reyndar staðsett þannig hjá mér að úrkoma stendur sjaldnast upp á hana að einhverju ráði.




Gislinn
FanBoy
Póstar: 769
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 01:07
Reputation: 50
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf Gislinn » Fös 02. Feb 2018 10:05

Skari skrifaði:
hagur skrifaði:
marinop skrifaði:..... Dýrasta útgáfan af þessari bjöllu (og floodcamið) er með annars konar motion kerfi og er ég forvitinn að vita hvernig það mun reynast.


Ég er bæði með original V1 bjölluna (við bakdyrnar) og svo Pro módelið við aðalinnganginn og motion detection-ið í Pro er miklu betra. Það byggir ekki á PIR skynjara heldur er "alvöru" pixel change detection og cameran er alltaf að taka upp í buffer. Um leið og hreyfing er skynjuð, þá spólar hún til baka um c.a 5 sek og byrjar að vista. Þannig sér maður alltaf hvað triggeraði upptökuna, í raun áður en hreyfingin átti sér stað.
Hvernig er hún þegar það er mikil snjókoma og almennt slæmt veður, er hún þá ekki alltaf að skynja hreyfingu?

Sent from my Mi A1 using Tapatalk


Ég er líka með svona Ring bjöllu, aðalega stórir bílar sem gefa falskt trigger, þótt að það sé töluvert mikil snjókoma þá er hún ekki að gefa notification. Ég er rosalega sáttur með þessa græju. Eina sem mér finnst vanta er PoE, bæði þannig að þú fáir stabílla net í vélina og svo þú fáir strauminn. Get reyndar tengt snúru í mína dyrabjöllu til að fá rafmagn (og sloppið við að hlaða hana þá) en PoE væri klárlega meira elegant lausn (ég held að Elite sé eina sem er með PoE)


common sense is not so common.

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3754
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 121
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf Pandemic » Fös 02. Feb 2018 23:24

Var að kaupa Tado hitastýringar. Passa ekki alveg 100% á ofnlokana hjá mér sem eru 32mm útgáfur af Danfoss RAV en ég gat reddað því með þrengja adapterinn með pappaspjaldi.
Mynd



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 441
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf hagur » Lau 03. Feb 2018 13:54

Hvar fæst svona og virkar þetta t.d með SmartThings eða er þetta alveg lokað kerfi?



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3754
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 121
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf Pandemic » Lau 03. Feb 2018 17:02

hagur skrifaði:Hvar fæst svona og virkar þetta t.d með SmartThings eða er þetta alveg lokað kerfi?


Keypti þetta á Amazon.co.uk og náði að tengja þetta strax við Home Assistant hjá mér. Svo ég býst við því að þetta virki með SmartThings.
Ég er reyndar ekki með réttu lokana í þetta, er með FJVR loka sem ég hélt að væru RAV/L. Veit ekki hvort ég sé að gera einhvern skandall með að nota þetta á FJVR lokum þar sem þeir stýra hitastreyminu á útttakinu.




marinop
Græningi
Póstar: 29
Skráði sig: Sun 22. Ágú 2010 15:41
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf marinop » Mán 05. Feb 2018 10:55

Pandemic skrifaði:Keypti þetta á Amazon.co.uk og náði að tengja þetta strax við Home Assistant hjá mér. Svo ég býst við því að þetta virki með SmartThings.
Ég er reyndar ekki með réttu lokana í þetta, er með FJVR loka sem ég hélt að væru RAV/L. Veit ekki hvort ég sé að gera einhvern skandall með að nota þetta á FJVR lokum þar sem þeir stýra hitastreyminu á útttakinu.


Er þetta með einhvern central hitanema? Eða er hitaneminn í græjunni sem fer á ofninn?



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3754
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 121
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf Pandemic » Mán 05. Feb 2018 12:21

Hitanemar í lokunum svo er hægt að vera með centrral hitanema.



Skjámynd

Kristján
Of mikill frítími
Póstar: 1738
Skráði sig: Sun 02. Jan 2011 12:37
Reputation: 39
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf Kristján » Mán 05. Feb 2018 14:59

Daginn.

Hvernig er öryggið á bakvið þetta allt saman?
Núna hef ég verið að skoða það aðeins og það er til, veit ekki hvað á að kalla það (snjall öryggisbúnaður)

t.d. allir þessir:
https://homealarmreport.com/cujo-dojo-vs-keezel/

Er þetta algjörlega óþarfi með öryggið í routerum í dag eða er þetta eitthvað sem einhverjir eru að skoða líka?

sorry ég las ekki allann þráðinn ef þetta hefur komið fram áður

Væri til í að fá smá input í þetta

Takk kærlega.



Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3838
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf Tiger » Mán 05. Feb 2018 15:20

Pandemic skrifaði:
hagur skrifaði:Hvar fæst svona og virkar þetta t.d með SmartThings eða er þetta alveg lokað kerfi?


Keypti þetta á Amazon.co.uk og náði að tengja þetta strax við Home Assistant hjá mér. Svo ég býst við því að þetta virki með SmartThings.
Ég er reyndar ekki með réttu lokana í þetta, er með FJVR loka sem ég hélt að væru RAV/L. Veit ekki hvort ég sé að gera einhvern skandall með að nota þetta á FJVR lokum þar sem þeir stýra hitastreyminu á útttakinu.


Hvað varstu að borga fyrir þetta?

Eirberg er með svona sem passar (án pappa sem ég myndi ekki þora :) ) fyrir 10þús, https://eirberg.is/productdisplay/eve-t ... itastyring


Mynd


mainman
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 369
Skráði sig: Sun 08. Jan 2006 15:40
Reputation: 64
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf mainman » Fim 08. Feb 2018 19:09

Sælir vaktarar.

Ég er búinn að skoða helling.
Er eitthvað sem mælir á moti Nest búnaðinum ?
https://nest.com/
Vitið þið hvort þetta gengur við öll kerfi eða hvort ég verði síðan bara fastur við nest búnaðinn ?



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf dori » Fös 09. Feb 2018 11:48

Eruð þið búnir að lesa þetta og hver er ykkar skoðun á persónuverndarmálum tengdum þessum vörum?

https://gizmodo.com/the-house-that-spie ... 1822429852



Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf urban » Fös 09. Feb 2018 11:54

dori skrifaði:Eruð þið búnir að lesa þetta og hver er ykkar skoðun á persónuverndarmálum tengdum þessum vörum?

https://gizmodo.com/the-house-that-spie ... 1822429852


Ég allavega hef rosalega takmarkaðan áhuga á vörum einsog amazon echo og google mini eða hvað sem að þetta heitir allt.

Finnst alveg nóg að vita af því að síminn minn hlust á mig, en ég get skilið hann eftir í öðru herbergi ef að þannig er. (geri það svo sem aldrei)
Langar ekkert að kaupa mér tæki sem að er sérstaklega stillt til þess að hlusta á mig og heyra hvað ég segi.


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf dori » Fös 09. Feb 2018 12:10

urban skrifaði:
dori skrifaði:Eruð þið búnir að lesa þetta og hver er ykkar skoðun á persónuverndarmálum tengdum þessum vörum?

https://gizmodo.com/the-house-that-spie ... 1822429852


Ég allavega hef rosalega takmarkaðan áhuga á vörum einsog amazon echo og google mini eða hvað sem að þetta heitir allt.

Finnst alveg nóg að vita af því að síminn minn hlust á mig, en ég get skilið hann eftir í öðru herbergi ef að þannig er. (geri það svo sem aldrei)
Langar ekkert að kaupa mér tæki sem að er sérstaklega stillt til þess að hlusta á mig og heyra hvað ég segi.

Mér finnst líka mjög áhugavert hvernig þú kaupir þér tæki en virknin á því byggist nær 100% á því að einhver þjónusta hjá framleiðandanum hangi uppi. Í greininni er minnst á kaffivél sem reyndi 2000 sinnum yfir daginn að "hringja heim" af því að þjónustan sem átti að taka við kallinu var niðri og þá var alltaf bara reynt aftur (líklegast ekki mikið álag á netið en samt rosalega mikill óþarfi).

Hvað gerist ef fyrirtækið sem þú kaupir tækið af hættir (eða hættir bara að styðja vöruna þína), þú ert bara shit out of luck og dýra dótið er allt í einu bara dýr bréfapressa.

Annað tengt þessu er að þú virðist aldrei eiga gögnin. Fyrirtækin áskilja sér alltaf rétt til að nota þau í hvað sem þeim sýnist og það virðist alltaf vera farið illa með þau og svo á endanum kemur gagnaleki.

Fullt af svona virkni er eitthvað sem mig langar í en af hverju er enginn að vinna í því að "taka þetta úr skýinu" og leyfa þér að eiga viðkvæmu gögnin þín sjálfur?




steinarorri
Gúrú
Póstar: 565
Skráði sig: Mán 25. Jan 2010 23:54
Reputation: 45
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf steinarorri » Lau 10. Feb 2018 19:10

Getur einhver aðstoðað mig við að skilja þetta allt.
Ég var að íhuga að kaupa Samsung smartthings frá UK ásamt hurðanemum og hreyfiskynjurum. Getið mælt með einhverjum hreyfiskynjurum með myndavél sem tengist smartthings kerfinu?




marinop
Græningi
Póstar: 29
Skráði sig: Sun 22. Ágú 2010 15:41
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf marinop » Mið 14. Feb 2018 08:42

steinarorri skrifaði:Getur einhver aðstoðað mig við að skilja þetta allt.
Ég var að íhuga að kaupa Samsung smartthings frá UK ásamt hurðanemum og hreyfiskynjurum. Getið mælt með einhverjum hreyfiskynjurum með myndavél sem tengist smartthings kerfinu?


Ég nota glugga/hurðanema og hreyfiskynjara sem ég kaupi frá kína (xiaomi sensors - fást á ali og gearbest). Ég er hins vegar ekki með myndavél innandyra sem er samhæfð smartthings og þarf því að fara í annað app til að sjá vídjóið. Sú myndavél fær rafmagn frá "snjallinnstungu" sem er þó tengd smartthings og er aðeins í gangi þegar allir heimilismeðlimir eru að heiman (ef einhver hakkar þessa vél þá nær sá hinn sami amk ekki vídjói af mér á nærbuxunum - sem hakkarar hljóta að vera að sækjast í ;) ).




skyttan5
Nýliði
Póstar: 13
Skráði sig: Fim 27. Okt 2016 12:46
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf skyttan5 » Mið 14. Feb 2018 12:16

Ég hef verið að reyna að lesa mér til um forrit eða stýrikerfi til að sjá um "home automation" og þá sérstaklega "openhab2" og "home assistant" og keyra þetta á pc eða rasperry pi. Báðar lausnirnar virðast krefjast nokkurrar forritunarþekkingu sem ég hef ekki svo mikill tími myndi fara í að lesa sér til og læra áður en ég gæti farið að nota þessar lausnir. Ég vil helst vera með notendaviðmót þar sem maður smellir á takka og velur stillingar af lista í stað þess að eiga við config skjöl eða forrita.

Er Smartthings besta lausnin fyrir hinn venjulegan mann sem langar að færa sig í Snjall heimili eða eru til aðrar lausnir sem mælt er með?




mainman
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 369
Skráði sig: Sun 08. Jan 2006 15:40
Reputation: 64
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf mainman » Mið 14. Feb 2018 22:29

Jæja. þá er ég kominn með smartthings frá bretlandi.
Skiptir einhverju máli hvaðan ég panta mér google home við þetta ?



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 441
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf hagur » Fim 15. Feb 2018 12:44

mainman skrifaði:Jæja. þá er ég kominn með smartthings frá bretlandi.
Skiptir einhverju máli hvaðan ég panta mér google home við þetta ?


Nei, það er allsstaðar eins.




frappsi
Nörd
Póstar: 141
Skráði sig: Lau 08. Jún 2013 16:11
Reputation: 39
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf frappsi » Fim 15. Feb 2018 13:46

Eruð þið að treysta SmartThings sem öryggiskerfi versus þessum sem eru dedicated?




marinop
Græningi
Póstar: 29
Skráði sig: Sun 22. Ágú 2010 15:41
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf marinop » Fös 16. Feb 2018 08:59

"Treysta" er teygjanlegt hugtak :) En ég hugsa mitt sem slíkt.




Höfundur
kjartanbj
Tölvutryllir
Póstar: 676
Skráði sig: Fim 24. Sep 2009 12:42
Reputation: 128
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf kjartanbj » Fös 16. Feb 2018 18:04

Það virkar amsk ágætlega ef maður setur það upp rétt sem þannig , mun einmitt ætla vera með myndavélar sem eru bara virkar þegar engin er heima að innan, en svo munu vera myndavél/ar úti svosem í dyrabjöllu þegar ég flyt í íbúðina sem ég var að kaupa og það verða hreyfiskynjarar og hurða skynjarar



Skjámynd

Black
Vaktari
Póstar: 2388
Skráði sig: Fös 23. Okt 2009 22:21
Reputation: 124
Staðsetning: 64°59'11.4" N & 18°35'12.0" V.
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf Black » Lau 17. Feb 2018 11:24

Ég var að setja upp Panasonic Home Security hjá mér.Tók start pakka 1, bætti við auka hurða og gluggaskynjurum, 110db sirenu,keypad og batterypack.
Þægilegt í uppsetningu og bíður uppá að bæta fleiri skynjurum og dóti við.
Eina sem ég gæti sett útá er að appið er dáltið hægt og mætti vera betur hannað.
https://ht.is/search/smart#page=2


CPU:i9 10900k | MB:Asus Z490 A-Pro | GPU:3080ti | RAM: 64gb Corsair | PSU: Seasonic 1000w | Case:Corsair 275R |

Skjámynd

GullMoli
Stjórnandi
Póstar: 2462
Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
Reputation: 212
Staðsetning: NGC 3314.
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf GullMoli » Lau 17. Feb 2018 16:36

Þekki einn sem er með Blink myndavélar heima hjá sér. Þetta hljómar virkilega sniðugt og myndgæðin eru lygilega góð miðað við það að þetta er 100% þráðlaust, engin rafmagnssnúra eða annað.

Batterý sem á að duga í 2 ár.
Ein skrúfa per myndavél til að festa.
Hreyfi og hitaskynjari (tekur eingöngu upp ef það er hreyfing eða hitabreyting).
Nightvision.
Getur fengið alerts ef myndavélin pickar upp hreyfingu.
Getur opnað hverja einustu myndavél og horft á feedið.

Svo eru þeir að fara koma með dyrabjöllu líka.

https://blinkforhome.com

Amazon voru að kaupa fyrirtækið í Desember svo það verður áhugavert að sjá hvernig þetta þróast.


Main -> || Windows 11 || Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || RTX 3070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 || 34" IPS 3440x1440 180Hz ||

NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||

"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"


gorkur
Fiktari
Póstar: 51
Skráði sig: Mið 27. Feb 2013 21:35
Reputation: 7
Staða: Tengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf gorkur » Lau 17. Feb 2018 16:49

GullMoli skrifaði:Þekki einn sem er með Blink myndavélar heima hjá sér. Þetta hljómar virkilega sniðugt og myndgæðin eru lygilega góð miðað við það að þetta er 100% þráðlaust, engin rafmagnssnúra eða annað.

Batterý sem á að duga í 2 ár.
Ein skrúfa per myndavél til að festa.
Hreyfi og hitaskynjari (tekur eingöngu upp ef það er hreyfing eða hitabreyting).
Nightvision.
Getur fengið alerts ef myndavélin pickar upp hreyfingu.
Getur opnað hverja einustu myndavél og horft á feedið.

Svo eru þeir að fara koma með dyrabjöllu líka.

https://blinkforhome.com

Amazon voru að kaupa fyrirtækið í Desember svo það verður áhugavert að sjá hvernig þetta þróast.


Nova eru að selja Blink myndavélarnar á fínum prís. Er einmitt að spá í annað hvort Blink eða Arlo Pro, finnast Arlo bara vera frekar dýrar




Cascade
FanBoy
Póstar: 755
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 00:02
Reputation: 36
Staða: Ótengdur

Re: Smart homes - Snjall heimili

Pósturaf Cascade » Lau 17. Feb 2018 20:26

Er einhver hérna inni með RIng eða sambærilega dyrabjöllu?

Helst myndi ég vilja geyma video efnið á minum eiginn server, en Ring auðvitað býður ekki upp á það

edit:
Þeir sem hafa z-wafe og hurðaskynjara og hreyfiskynjara. Eruði að nota þetta sem öryggiskerfi?
Setiði inn í kerfið að þið séuð ekki heima og fáið tilkynningu ef einhver skynjari triggerast?