Síða 1 af 1

Hvað er besta TV í boði núna 300k?

Sent: Fös 01. Des 2017 13:21
af verba
Getið þið bent mér á hvað væru bestu kaupin á sjónvarpi í dag fyrir hámark 300.000 krónur. Einu kröfurnar er að það sé 65”

Re: Hvað er besta TV í boði núna 300k?

Sent: Fim 14. Des 2017 16:06
af tomas52
Èg ætla bumpa þessa vantar líka að vita :baby

Re: Hvað er besta TV í boði núna 300k?

Sent: Fös 15. Des 2017 02:06
af rickyhien
https://elko.is/lg-65-sjonvarp (200 Hz, fjarstýring með bendli)
eða
https://elko.is/philips-55-oled-sjonvarp-55pos9002 (besta myndgæði, skemmtileg LED ljós, Android TV)..ekki 65"
eða
https://elko.is/samsung-65-sjonvarp (200 Hz, one connect box)

EDIT: tek Samsung út af, þetta er ekki lengur í boði hjá Elko vegna galla

Re: Hvað er besta TV í boði núna 300k?

Sent: Fös 15. Des 2017 05:44
af verba
rickyhien skrifaði:https://elko.is/lg-65-sjonvarp (200 Hz, fjarstýring með bendli)
eða
https://elko.is/philips-55-oled-sjonvarp-55pos9002 (besta myndgæði, skemmtileg LED ljós, Android TV)..ekki 65"
eða
https://elko.is/samsung-65-sjonvarp (200 Hz, one connect box)


Þetta er frekar erfitt val. Eftir að hafa átt 50” í nokkur ár langar manni rosslega í 65” en svo les maður að OLED sé langbestu tv í dag en þau eru aðeins of dýr miðað við budgetið. Kannski væri hægt að réttláta það ef ég fyndi eitt í max 400k

Re: Hvað er besta TV í boði núna 300k?

Sent: Fös 15. Des 2017 14:26
af Tyler
Mæli alveg hiklaust með LG Oled tækjunum, á eitt 65" og get ekki verið ánægðri. Hérna er eitt á tilboði hjá Raflandi https://www.rafland.is/product/65-ultra-hd-oled-sjonvarpnvarp-lg-oled65c7v, það fylgir svo soundbar með samkvæmt auglýsingunni. Svo fylgir einnig áskrift að 365 miðlum https://www.rafland.is/page/365-tilbod.

Re: Hvað er besta TV í boði núna 300k?

Sent: Fös 15. Des 2017 15:35
af tomas52
Hafiði eitthvað vit á superkaup.is ?

http://superkaup.is/products/sjonvorp-hljomtaeki-

Þeir eru alveg með ódýr sjónvörp en maður veit svosem ekkert hvort maður á að treysta svona fyrirtæki..


http://superkaup.is/product/samsung-ue-65ku6079-led-tv. Til dæmis þetta er eitthvað vit í þessu?

Re: Hvað er besta TV í boði núna 300k?

Sent: Fös 15. Des 2017 18:50
af audiophile
tomas52 skrifaði:Hafiði eitthvað vit á superkaup.is ?

http://superkaup.is/products/sjonvorp-hljomtaeki-

Þeir eru alveg með ódýr sjónvörp en maður veit svosem ekkert hvort maður á að treysta svona fyrirtæki..


http://superkaup.is/product/samsung-ue-65ku6079-led-tv. Til dæmis þetta er eitthvað vit í þessu?


Þetta eru allt gömul tæki. K-serían frá Samsung er 2016 lína meðan núverandi tæki eru M-sería og svo Q-serían sem er Qled.

Myndi bara halda mig við stærri og stöðugri aðila eins og Elko, Heimilistæki, Ormsson og Nýherja þegar kemur að sjónvarpskaupum.

Re: Hvað er besta TV í boði núna 300k?

Sent: Lau 16. Des 2017 21:43
af halldorjonz
Mynd

sá þetta auglýst á facebook og datt þessi þráður í hug þetta hlýtur að vera helvíti solid, QLED og 65" :D

Re: Hvað er besta TV í boði núna 300k?

Sent: Lau 16. Des 2017 21:46
af Predator
Sjálfur eltist ég mest við stærð og tæki annað þessara: https://elko.is/lg-75-snjallsjonvarp-uhd-hdr-75uj675v eða https://elko.is/samsung-75-sjonvarp

Re: Hvað er besta TV í boði núna 300k?

Sent: Mið 03. Jan 2018 17:02
af tomas52
Screenshot 2018-01-03 16.48.29.png
Screenshot 2018-01-03 16.48.29.png (339.37 KiB) Skoðað 2199 sinnum
Screenshot 2018-01-03 16.57.49.png
Screenshot 2018-01-03 16.57.49.png (491.33 KiB) Skoðað 2199 sinnum
Screenshot 2018-01-03 16.57.54.png
Screenshot 2018-01-03 16.57.54.png (547.51 KiB) Skoðað 2199 sinnum


Jæja núna eru útsölurnar byrjaðar hvað mynduði segja að væru bestu kaupin af 65" tækjum í dag setti hérna inn nokkur tæki sem eru frekar girnileg en sé svo að rafland er með 2 LG tæki sýnist eini munurinn vera 1200hz og 1700hz svo er annað LG tæki í Elko sem er merkt 100hz hvernig stendur á þessu?

Re: Hvað er besta TV í boði núna 300k?

Sent: Fim 04. Jan 2018 09:40
af audiophile
Elko er að gefa upp raunveruleg Hz í skjánum (Native panel Hz) sem er það sem skiptir máli. Öll sjónvörp í dag eru annaðhvort með 50Hz eða 100Hz skjái og 100Hz er oftast í aðeins dýrari og vandaðri sjónvörpum.

Þegar þú sérð svona háar tölur eins og 1000Hz er það myndvinnslan í tækinu sem er að gera mjúku hreyfingarnar með allskonar trickum eins og black frame insertion og hver framleiðandi kallar þetta einhverju flottu nafni eins og Motionflow eða Trumotion. Þessar háu Hz tölur eru má segja eitthvað sem þeir draga út úr rassgatinu á sér :)

Semsagt, þetta eru leiðbeinandi tölur hjá framleiðendum um hversu góð hreyfingin er í þeirra tækjum milli týpa og er einungis eitthvað marka að bera saman innan hvers framleiðanda.