Síða 1 af 1

Xtreamer Wonder Pro margmiðlunarspilari ?

Sent: Lau 25. Nóv 2017 17:42
af Sera
Ég keypti svona spilara og var að fá í dag. Ég get með engu móti fundið RUV appið eða nein ísl. öpp í Google Play store á þessari græju. Ég ætlaði að nota hana í staðin fyrir afruglara af því ég horfi bara á fréttirnar og opnar rásir í þessu sjónvarpi. Er einhver sem veit hvernig ég kem RUV eða ísl. opnu rásunum inn í þessa græju ?

https://elko.is/xtreamer-wonder-pro-android-bo

Re: Xtreamer Wonder Pro margmiðlunarspilari ?

Sent: Lau 25. Nóv 2017 21:49
af hfwf
Þú getur hent inn OZ-appinu og fengið rásirnar, annars virkar líka sjónvarps símans appið líka.
Sarpurinn held ég er ekki til fyrir android , þori ekki að fullyrða það samt.

Re: Xtreamer Wonder Pro margmiðlunarspilari ?

Sent: Lau 25. Nóv 2017 22:29
af Sera
hfwf skrifaði:Þú getur hent inn OZ-appinu og fengið rásirnar, annars virkar líka sjónvarps símans appið líka.
Sarpurinn held ég er ekki til fyrir android , þori ekki að fullyrða það samt.


Ég hélt að OZ appið væri bara til fyrir iOS
http://help.oz.com/oz-a-islensku/er-hae ... android-tv

Ég finn ekki Sarpinn, né OZ Live, né nokkuð annað íslenskt app í Google Play store sem er á tækinu :/
náði að setja Sarpinn inn í gegnum Kodi.

Re: Xtreamer Wonder Pro margmiðlunarspilari ?

Sent: Sun 26. Nóv 2017 12:50
af JohnnyX
OZ appið er ekki komið fyrir Android TV

Re: Xtreamer Wonder Pro margmiðlunarspilari ?

Sent: Sun 26. Nóv 2017 13:30
af Cikster
Fría sjónvarp símans appið virkar en er bara með RUV og Sjónvarp Símans stöðvarnar (getur fundið það á netinu, heitir is.siminn.tv með .apk í endann) og er hannað fyrir snertiskjái (síma og spjaldtölvur) þannig að er pínu bögg að nota það með basic fjarstýringu.

Vodafone Play appið er með fleiri rásum en ég hef ekki fengið það til að virka vel og á sumum tækjum crashar það (heitir _is.vodafone.play.vodafone_play-2.apk sem ég fann á netinu)

OZ appið hef ekki prófað það en líklegt að það sé þess virði (heitir com.oz.eon eitthvað .apk (samt ekki oz365 sem er áskriftar app hjá 365))

Sarpurinn ... veiti ekki hef ekki prófað (heitir is.ruv.sarpurinn .apk)

Bara prófa finna þau á netinu, setja á usb stick og tengja við spilarann þinn. Opna file browser og installa frá usb kubnum og prófa hvað virkar best fyrir þig (þar sem þetta er flest hannað fyrir snertiskjái er mús jafnvel nauðsynleg). Mörg forrit koma ekki upp í play store því þeir sem gera appið eru ekki búnir að samþykkja að það virki 100% á þessu tæki sem gerir svona sideload eina möguleikann.

Re: Xtreamer Wonder Pro margmiðlunarspilari ?

Sent: Sun 26. Nóv 2017 13:34
af einarhr
Xtreamer Wonder Pro, það vantar ekki lýsingarorðin í vörunafnið :)

Re: Xtreamer Wonder Pro margmiðlunarspilari ?

Sent: Mið 06. Des 2017 22:17
af Gunnarulfars
Sæll,
Hvernig hefur tækið reynst þér?

Re: Xtreamer Wonder Pro margmiðlunarspilari ?

Sent: Fim 07. Des 2017 08:56
af Sera
Ég hef ekki haft mikinn tíma til að grúska í tækinu en mér sýnist það bjóða upp á mikið af möguleikum. Pínu glatað að hafa ekki aðgang að öllum öppum í Google Play - Hefði viljað geta sótt sjónvarp símans og rúv appið en það kemur ekki upp við leit. Það er Kodi og Plex, Netflix og hellingur af öppum. Eins hægt að spila beint af minnislykli/flakkara og nota airplay og miracast.
Hann er á 50% afslætti hjá Elko í kvöld 7.495 fyrir meðlimi í Elko klúbbnum

Re: Xtreamer Wonder Pro margmiðlunarspilari ?

Sent: Fös 08. Des 2017 11:17
af k0fuz
þetta er smá bömmer, þar sem ég var að hugsa um að kaupa þetta og skipta út myndlyklinum og nota þetta einungis fyrir allt.

Re: Xtreamer Wonder Pro margmiðlunarspilari ?

Sent: Fös 19. Jan 2018 19:39
af Sera
Ég gerði frábæra uppgötvun í kvöld með þetta tæki. Ef ég logga mig inn á Google Playstore í PC vélinni minni með sama google account og á Xtreamer spilaranum þá get ég installað öppum frá Playstore í tölvunni inn á tækið :) Svo ég er búin að setja inn öll öppin sem ég þurfti - Vodafone Play, Sjónvarp Símans, Sarpinn, 365 appið. Bara snilld.

Re: Xtreamer Wonder Pro margmiðlunarspilari ?

Sent: Mán 22. Jan 2018 20:24
af kjarrig
Sera skrifaði:Ég gerði frábæra uppgötvun í kvöld með þetta tæki. Ef ég logga mig inn á Google Playstore í PC vélinni minni með sama google account og á Xtreamer spilaranum þá get ég installað öppum frá Playstore í tölvunni inn á tækið :) Svo ég er búin að setja inn öll öppin sem ég þurfti - Vodafone Play, Sjónvarp Símans, Sarpinn, 365 appið. Bara snilld.


Hvernig virkar fjarstýring með þessu? án þess að nota lyklaborð eða mús? Í Vodafone Play app-inu, að þá þarf ég lyklaborð eða mús til þess að scrolla út fyrir skjáinn, en get það ekki með venjulegri fjarstýringu sem ég er nota á Vodafone afruglarann.

Re: Xtreamer Wonder Pro margmiðlunarspilari ?

Sent: Mán 22. Jan 2018 21:55
af Sera
Fjarstýringin með tækinu er með lyklaborði á annarri hliðinni og músabendil :)
Mynd

Re: Xtreamer Wonder Pro margmiðlunarspilari ?

Sent: Þri 23. Jan 2018 17:32
af legi
Hvernig virkar Sarp add-onið fyrir Kodi?

Þegar ég er kominn nokkrar mínútur inn í upptöku fer það alltaf að hökta og fæ meldinguna "bitrate to slow for continious playback". Lendir þú einhvertíma í þessu?

Meikar ekki alveg sens því ég get horft á beina útsendingu RÚV í hærri upplausn (og netflix) alveg vandræðalaust (er með 1 gíg ljósleiðara), og horft á Sarpinn í PC á sömu tengingu án nokkurra vandræða.

Re: Xtreamer Wonder Pro margmiðlunarspilari ?

Sent: Mið 24. Jan 2018 09:32
af Sera
legi skrifaði:Hvernig virkar Sarp add-onið fyrir Kodi?

Þegar ég er kominn nokkrar mínútur inn í upptöku fer það alltaf að hökta og fæ meldinguna "bitrate to slow for continious playback". Lendir þú einhvertíma í þessu?

Meikar ekki alveg sens því ég get horft á beina útsendingu RÚV í hærri upplausn (og netflix) alveg vandræðalaust (er með 1 gíg ljósleiðara), og horft á Sarpinn í PC á sömu tengingu án nokkurra vandræða.


ég hef ekki prófað þetta svo ég get ekki svarað, skal kanna þetta við tækifæri í spilaranum.