Síða 1 af 3

USA Netflix

Sent: Fim 24. Ágú 2017 21:54
af jardel
Hafa einhverjir hér prufað þetta?
Er þess virði að nota USA netflix? Ég er þá að pæla er úrvalið 100x betra á USA Netflix?
http://vipdnsclub.com/

Re: USA Netflix

Sent: Fim 24. Ágú 2017 22:26
af techseven
Það er erfitt að nýta sér USA Netflix í dag, ég get það ekki einu sinni með VPN í gegnum private server í USA - þeir þefa það uppi!

En ef þú nærð að láta þetta virka og horfir mikið, þá er það alveg þess virði, töluvert meira úrval (nei ekki 100x betra)

Re: USA Netflix

Sent: Fim 24. Ágú 2017 22:44
af jardel
Það tala margir um að þessi síða virkar http://vipdnsclub.com/

Re: USA Netflix

Sent: Fim 24. Ágú 2017 22:51
af techseven
Þeir eru líka í dýrari kantinum og ég sé ekkert trial í boði þarna, ég mundi bara prófa 1 mánuð til að byrja með. En hafðu það bak við eyrað að þetta gæti hætt að virka hvenær sem er. Netflix er á fullu að loka fyrir svona þjónustur og eru ansi kræfir.

Þeir segja "30 day money back guarantee"

Re: USA Netflix

Sent: Fös 25. Ágú 2017 15:28
af kjartanbj
Ég,prófaði vipdnsclub og það virkar enn, tók einn mánuð bara til prufu , kannski dettur það út kannski ekki

Re: USA Netflix

Sent: Fös 25. Ágú 2017 18:49
af fhrafnsson
Þessi hérna virkar: https://torguard.net/

Re: USA Netflix

Sent: Fös 25. Ágú 2017 19:19
af kizi86
er að nota www.expressvpn.com og það virkar, allaveganna fyrir usa netflix, ef stillir á Los Angeles 1 serverinn hjá þeim.

Re: USA Netflix

Sent: Lau 26. Ágú 2017 01:51
af jardel
Er urvalið mun betra?

Re: USA Netflix

Sent: Lau 26. Ágú 2017 14:00
af braudrist
USA — Þættir: 1157, Kvikmyndir: 4593
Ísland — Þættir: 180, Kvikmyndir: 777

Svo já, úrvalið er töluvert betra.

Re: USA Netflix

Sent: Lau 26. Ágú 2017 14:07
af jardel
braudrist skrifaði:USA — Þættir: 1157, Kvikmyndir: 4593
Ísland — Þættir: 180, Kvikmyndir: 777

Svo já, úrvalið er töluvert betra.


Hvar sér maður lista um þættina og bíomyndirnar?

Re: USA Netflix

Sent: Lau 26. Ágú 2017 14:35
af dedd10
Nú kemur þessi spurning kannski heimskuleg út, en er hægt að vera með VPN á Apple tv 4 og með USA netflix á því þó aðrir á heimilinu séu með íslenska ? Sama account samt.

Re: USA Netflix

Sent: Lau 26. Ágú 2017 19:14
af kizi86
dedd10 skrifaði:Nú kemur þessi spurning kannski heimskuleg út, en er hægt að vera með VPN á Apple tv 4 og með USA netflix á því þó aðrir á heimilinu séu með íslenska ? Sama account samt.

Stutt svar: já

erum með 3 tæki, eitt á íslenska ,eitt a USA og þrrriđja a uk, allt á sama account, og getum horft á a sama tima...

Re: USA Netflix

Sent: Lau 26. Ágú 2017 22:54
af dedd10
Ókei, hvernig er best að snúa sér varðandi að fá USA netflix í Apple tv 4?

Re: USA Netflix

Sent: Sun 27. Ágú 2017 22:23
af dedd10
Er það bara eitthvað VPN app?

Re: USA Netflix

Sent: Mán 28. Ágú 2017 10:04
af Jón Ragnar
Ég er með Apple TV 4 og var að prufa VIPDNSCLUB um helgina.

Virkaði ekki til að byrja með. Fékk smá aðstoð og núna virkar það vel. Fékk gott feedback frá Customer service hjá þeim.

Tíminn kemur svo með reynsluna

Re: USA Netflix

Sent: Þri 29. Ágú 2017 08:09
af dedd10
Og ef maður stillir á USA í DNS, breytist netflix þá bara sjálfkrafa?

Re: USA Netflix

Sent: Þri 29. Ágú 2017 08:47
af techseven
dedd10 skrifaði:Og ef maður stillir á USA í DNS, breytist netflix þá bara sjálfkrafa?


Netflix sýnir alltaf efni frá því landi sem það heldur að þú sért í, þannig að já, það gerist sjálfkrafa.

Re: USA Netflix

Sent: Þri 29. Ágú 2017 09:00
af Jón Ragnar
Þarft reyndar að taka endurræsingu á Apple TV :)

Re: USA Netflix

Sent: Þri 29. Ágú 2017 09:56
af KermitTheFrog
Prófaði að setja upp VIPDNSCLUB í fartölvu í gærkvöldi. Tók smá tíma að fá DNS addressuna eftir að ég borgaði, en það virkaði um leið og ég setti það inn. Primary DNS þjónninn virkaði samt af einhverri ástæðu ekki.

Sá allavega fullt af þáttum sem ég sá ekki áður.

Re: USA Netflix

Sent: Mið 30. Ágú 2017 15:34
af dedd10
Ég er ekki að finna þetta vipdnsclub í app store :/ er ég að gera eitthvað vitlaust ?

Re: USA Netflix

Sent: Fim 31. Ágú 2017 08:52
af KermitTheFrog
Held það sé ekkert app, skoðaðu leiðbeiningarnar fyrir Apple TV hér: https://vipdnsclub.com/help/

Re: USA Netflix

Sent: Fim 31. Ágú 2017 09:00
af svanur08
Af hverju hafa þeir hjá Netflix ekki bara sama úrval af efni út um allan heim?

Re: USA Netflix

Sent: Fim 31. Ágú 2017 09:01
af KermitTheFrog
Ef Netflix fengi að ráða þá væri það sennilega þannig. En það eru ákveðnir aðilar sem hafa sýningarrétt á efninu í mismunandi löndum, og Netflix þarf að semja við þá.

Re: USA Netflix

Sent: Fim 31. Ágú 2017 20:37
af OddBall
kizi86 skrifaði:
dedd10 skrifaði:Nú kemur þessi spurning kannski heimskuleg út, en er hægt að vera með VPN á Apple tv 4 og með USA netflix á því þó aðrir á heimilinu séu með íslenska ? Sama account samt.

Stutt svar: já

erum með 3 tæki, eitt á íslenska ,eitt a USA og þrrriđja a uk, allt á sama account, og getum horft á a sama tima...


hvernig nærðu UK netflix? Ég er með express vpn og fékk þau svör frá þeim að það væri bara hægt að stilla á USA

Re: USA Netflix

Sent: Fös 01. Sep 2017 10:31
af JohnnyX
Þeir sem hafa fengið US Netflix til þess að virka, hjá hvaða ISP eruð þið?