Myndir úr pc yfir í TV

Skjámynd

Höfundur
g0tlife
1+1=10
Póstar: 1164
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
Reputation: 154
Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
Staða: Ótengdur

Myndir úr pc yfir í TV

Pósturaf g0tlife » Fim 08. Jún 2017 16:07

Ég var að fá mér LG Oled 65'' og er alveg frábært sjónvarp EN ... Það er ekki hægt að nota Plex í því. Ég spurði gæjan virka sömu fídusar í þessu sjónvarpi eins og í samsung t.d. plex og hann sagði já. Viti menn ég get ekki downloadað því.

Ég er líklegur til að skila því og fá mér samsung því plex er bara svo þægilegt (þekki ekkert annað). Þannig að ég ætla gefa þessu sjéns og bið um allar hugmyndir sem þið eru með hvernig ég kem 2000+ GB bluray myndonum mínum í sjónvarpið.

Sjónvarpið er inn í stofu en PC inn í herbergi.


Intel i9-10900KF // Nvidia RTX 3080 // 2x 1TB M.2 // 1TB Samsung 860 Evo // G.Skill 32GB Ripjaws V 3600MHz // ASRock Z490 Extreme4 // Samsung Odyssey G7 32''

My CPU's Hot But My Core Runs Cold


Viggi
FanBoy
Póstar: 735
Skráði sig: Fim 26. Apr 2007 02:04
Reputation: 110
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Myndir úr pc yfir í TV

Pósturaf Viggi » Fim 08. Jún 2017 16:25

Málið er með plex að það styður ekki öll þessi codec sem þetta er allt rippað á. Mín lausn að ég er með android box tengt við og kodi á því sem spilar allt 4k dótið sem maður nær í. Annars tengist universal media server fínt við samsung tækið mitt sem ég horfi á alla þættina mína á. gætir tékkað á því


B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.


sibbsibb
has spoken...
Póstar: 157
Skráði sig: Mið 15. Ágú 2007 12:51
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Myndir úr pc yfir í TV

Pósturaf sibbsibb » Fim 08. Jún 2017 16:33

Playstation hefur líka stuðning fyrir Plex. Ég á samsung sjónvarp frá 2012 sem ég hef keyrt plex á í dágóðann tíma og mjög ánægður með það. Hef aldrei lent í neinu veseni með codea eða neitt slíkt sem ég man eftir. Algjörlega dýrka Plex :8)




Viggi
FanBoy
Póstar: 735
Skráði sig: Fim 26. Apr 2007 02:04
Reputation: 110
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Myndir úr pc yfir í TV

Pósturaf Viggi » Fim 08. Jún 2017 16:38

sibbsibb skrifaði:Playstation hefur líka stuðning fyrir Plex. Ég á samsung sjónvarp frá 2012 sem ég hef keyrt plex á í dágóðann tíma og mjög ánægður með það. Hef aldrei lent í neinu veseni með codea eða neitt slíkt sem ég man eftir. Algjörlega dýrka Plex :8)


Hefurðu testað einhverja .mkv fæla? er líka að reyna að spila 50 gig bíómynd og no luck. kodi kjamsar það nú í sig samt


B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.

Skjámynd

Höfundur
g0tlife
1+1=10
Póstar: 1164
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
Reputation: 154
Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
Staða: Ótengdur

Re: Myndir úr pc yfir í TV

Pósturaf g0tlife » Fim 08. Jún 2017 16:58

Viggi skrifaði:Málið er með plex að það styður ekki öll þessi codec sem þetta er allt rippað á. Mín lausn að ég er með android box tengt við og kodi á því sem spilar allt 4k dótið sem maður nær í. Annars tengist universal media server fínt við samsung tækið mitt sem ég horfi á alla þættina mína á. gætir tékkað á því



Ég hef heyrt marga tala um kodi og allt það en er það ekki flókið ? Plexið var svo easy kveikja á þig, stimpla inn kóða frá TV í PC komið og ekkert meira vesen.

Ef kodi myndi virka þá auðvitað skoða það en eru góðar síður hvernig skal setja þetta upp eða þarf ég að kaupa tæknimann frá vaktinni :baby :D


Intel i9-10900KF // Nvidia RTX 3080 // 2x 1TB M.2 // 1TB Samsung 860 Evo // G.Skill 32GB Ripjaws V 3600MHz // ASRock Z490 Extreme4 // Samsung Odyssey G7 32''

My CPU's Hot But My Core Runs Cold

Skjámynd

viddi
Stjórnandi
Póstar: 1310
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 12:50
Reputation: 7
Staðsetning: <?php
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Myndir úr pc yfir í TV

Pósturaf viddi » Fim 08. Jún 2017 17:44

Búinn að prófa stilla tækið á UK, þurfti að gera það á 55" LG tækinu mínu til að fá Plex inn



A Magnificent Beast of PC Master Race

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Myndir úr pc yfir í TV

Pósturaf Viktor » Fim 08. Jún 2017 17:59

Ég nota bara Chromecast og gæti ekki verið sáttari.

Nota svo þetta ef ég vil spila beint af tölvu. Netflix í símanum. BOOM.

https://chrome.google.com/webstore/deta ... lagl?hl=en


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

brain
vélbúnaðarpervert
Póstar: 975
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 134
Staða: Ótengdur

Re: Myndir úr pc yfir í TV

Pósturaf brain » Fim 08. Jún 2017 19:27

Nota Smartshare í Oled TV, downloada og setja upp í PC.

http://www.lg.com/us/support/product-he ... 7120133847



Skjámynd

odinnn
spjallið.is
Póstar: 473
Skráði sig: Fim 26. Sep 2002 20:37
Reputation: 8
Staðsetning: Hef ekki glóru!
Staða: Ótengdur

Re: Myndir úr pc yfir í TV

Pósturaf odinnn » Fim 08. Jún 2017 23:43

Menn eru eitthvað að tala um forrit sem heitir xPlay eða playz til að sneyða framhjá þessum webOS3 vandræðum, hef enga reynslu en þetta kemur upp eftir stutt gúggl. Plex er ekki fljótt að uppfæra/gefa út nýja spilara fyrir hin og þessi tæki og er það að mínu mati stærsti gallinn við Plex. Var með Plex á Samsung sjónvarpinu mínu og elskaði það að nota bara eina fjarstýringu til að stjórna öllu, núna er nota ég chromecast á annað sjónvarp (ekki mitt) og það er álíka þægilegt þar sem síminn er hvort sem er ávalt á svæðinu hvort sem er.


Desktop: i5 4670K|Asus Maximus VI Impact|EVGA GTX780SC|Adata XPG PC3-17000 16Gb
Server: C2D6600|Asus P5B deluxe Wi/Fi|GeiL PC6400 6Gb

Skjámynd

kizi86
Vaktari
Póstar: 2208
Skráði sig: Lau 26. Sep 2009 18:08
Reputation: 166
Staða: Ótengdur

Re: Myndir úr pc yfir í TV

Pósturaf kizi86 » Fös 09. Jún 2017 09:49

Ef kodi er til fyrir þetta sjónvarp, þá geturru addað plexkodiconnect addoninu.. Alger snilld það addon. Kodi er svo mikil snilld líka, og óendanlega customizeable


ASRock B650E PG-ITX WiFi AMD Ryzen 9 7950X PowerColor "Red Devil" RX 7900 XTX 24GB G.Skill Trident Z5 RGB 32GB (2 x 16GB) DDR5-6000 stýrikerfi: wd black sn850x 2TB WD RED 4TB WD RED 4TB 65" LG B8 OLED TV

Skjámynd

Höfundur
g0tlife
1+1=10
Póstar: 1164
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
Reputation: 154
Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
Staða: Ótengdur

Re: Myndir úr pc yfir í TV

Pósturaf g0tlife » Fös 09. Jún 2017 18:15

Takk fyrir allt ég lærði mjög mikið. En ég lét sjónvarpið á UK í location og gat notað plex. Mjög ánægður en hvernig hefði apple TV staðið sig í þessu ?


Intel i9-10900KF // Nvidia RTX 3080 // 2x 1TB M.2 // 1TB Samsung 860 Evo // G.Skill 32GB Ripjaws V 3600MHz // ASRock Z490 Extreme4 // Samsung Odyssey G7 32''

My CPU's Hot But My Core Runs Cold

Skjámynd

Hrotti
Geek
Póstar: 812
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Reputation: 127
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Myndir úr pc yfir í TV

Pósturaf Hrotti » Fös 09. Jún 2017 18:36

g0tlife skrifaði:Takk fyrir allt ég lærði mjög mikið. En ég lét sjónvarpið á UK í location og gat notað plex. Mjög ánægður en hvernig hefði apple TV staðið sig í þessu ?



Ég er með nokkur appletv í svefnherbergjunum hérna og er hæst ánægður með þau. Nota mikið plex, netflix, ufc og svo 365 appið.


Verðlöggur alltaf velkomnar.


sibbsibb
has spoken...
Póstar: 157
Skráði sig: Mið 15. Ágú 2007 12:51
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Myndir úr pc yfir í TV

Pósturaf sibbsibb » Lau 10. Jún 2017 10:41

Viggi skrifaði:
sibbsibb skrifaði:Playstation hefur líka stuðning fyrir Plex. Ég á samsung sjónvarp frá 2012 sem ég hef keyrt plex á í dágóðann tíma og mjög ánægður með það. Hef aldrei lent í neinu veseni með codea eða neitt slíkt sem ég man eftir. Algjörlega dýrka Plex :8)


Hefurðu testað einhverja .mkv fæla? er líka að reyna að spila 50 gig bíómynd og no luck. kodi kjamsar það nú í sig samt


Mkv fælar virka fínt hjá mér. Aldrei átt í vandræðum með þá. Kannski er þetta of þung mynd fyrir það, hef ekkert reynt þessar stærðir... aðeins of stórt fyrir minn smekk :)