Jæja.....uppfærsla.


Höfundur
gazzi1
Nörd
Póstar: 101
Skráði sig: Mán 23. Feb 2009 05:11
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Jæja.....uppfærsla.

Pósturaf gazzi1 » Mán 16. Feb 2015 19:45

Jæja núna er kominn tími á að uppfæra sjónvarpsvélina asap þar sem að mér finnst þessi sem að ég er með núna bæði alltof slöpp og of mikill hávaði í henni.

í henni er amd a4 4000 dual core
einhver drasl aflgjafi
Fm2 móðurborð
Kingston V300 120 GB ssd
2x 2gb 3.5 diskar
4 gb vinnsluminni
kassinn sem að ég á er Cooler Master Elite 110 mini-ITX
http://tl.is/product/elite-110-mini-itx ... n-aflgjafa

Langar í öfluga sjónvarpsvél sem að ræður við að spila allt og er mjög hljóðlát

Langar í annað hvort i3 eða i5, veit ekki hvort að i3 sé nóg en þið getið kannski frætt mig um það
ég mun nýta kassann, ssd diskinn og 3.5 tommu diskana og vinnsluminnið

þá vantar mig aflgjafa, mini itx móðurborð, örgjörva, hljóðláta örgjörvaviftu og hljóðláta 12 cm kassaviftu og allt þetta verður að vera mjög hljóðlátt :)

ég mun ekki koma til með að spila leiki á þessari vél

hvað mynduð þið setja í þennann kassa?

Mbk
Gazzi1



Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4324
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 382
Staða: Tengdur

Re: Jæja.....uppfærsla.

Pósturaf chaplin » Mán 16. Feb 2015 20:15

Hafa menn ekki ágætis reynslu af Raspberry Pi sem sjónvarpsvél? Alveg hljóðlaus og miklu meira en nógu öflug.

i3 (og hvað þá i5) er algjört overkill sem sjónvarpsvél.


youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS


Höfundur
gazzi1
Nörd
Póstar: 101
Skráði sig: Mán 23. Feb 2009 05:11
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Jæja.....uppfærsla.

Pósturaf gazzi1 » Mán 16. Feb 2015 20:51

nei hef enga reynslu af rasperry pi...hef átt android sjónvarpsbox og það virkaði ekkert sérlega vel...en ég er líka að stríma fótbolta í hd á þessari vél og nota hana einnig sem server




Höfundur
gazzi1
Nörd
Póstar: 101
Skráði sig: Mán 23. Feb 2009 05:11
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Jæja.....uppfærsla.

Pósturaf gazzi1 » Mán 16. Feb 2015 22:30

i5 er kannski overkill en hvernig er þá 4400 skákortið á i3 að höndla full hd efni?



Skjámynd

FreyrGauti
Tölvutryllir
Póstar: 663
Skráði sig: Fim 04. Des 2008 10:29
Reputation: 17
Staða: Ótengdur

Re: Jæja.....uppfærsla.

Pósturaf FreyrGauti » Mán 16. Feb 2015 22:45

gazzi1 skrifaði:i5 er kannski overkill en hvernig er þá 4400 skákortið á i3 að höndla full hd efni?


Auðveldlega.

Mín tillaga, ef þú ætlar að nota þenna kassa þá geturu samt bara verið með eina viftu á örgjörva kælingunni.
Myndi geyma að kaupa 120mm viftuna þangað til að þú værir búinn að athuga hvort þú getir notað kælinguna með 120mm viftunni að neðan, ef ekki þá gætiru sett hana framm í kassann og nota 92mm viftuna á kælingunni án vandræða.

Edit:Þetta er allt hjá Tölvutækni.

asdfaassd.PNG
asdfaassd.PNG (207.66 KiB) Skoðað 1344 sinnum




Höfundur
gazzi1
Nörd
Póstar: 101
Skráði sig: Mán 23. Feb 2009 05:11
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Jæja.....uppfærsla.

Pósturaf gazzi1 » Þri 17. Feb 2015 16:34

já líst vel á þetta en er ekki viss um að þessi örgjörvakæling muni henta í þennann kassa þar sem að hún er alveg 15 cm á dýpt...þarf að athuga það. Ætli það sé ekki líka betra að finna móðurborð með 4 sata3 tengjum í staðin fyrir 2 sata3 og 2 sata2 eða skiptir það kannski ekki máli ef ég mun tengja stóru 3.5 hdd í sata2?




braudrist
</Snillingur>
Póstar: 1038
Skráði sig: Mán 06. Sep 2004 13:22
Reputation: 55
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Jæja.....uppfærsla.

Pósturaf braudrist » Þri 17. Feb 2015 18:20

Ég myndi spá í svona smátölvu ef ég væri þú, t.d. Asus VivoPC, Intel NUC eða Gigabyte Brix. Dáldið í dýrari kantinum en þær eru smáar, þrusuöflugar og það heyrist ekki bofs í þeim.


Intel Core-i9 9900k @ 5GHz :: ASUS ROG Maximus XI Formula :: Corsair Vengeance 3200MHz - 32GB DDR4 :: ASUS ROG STRIX RTX 2080 Ti OC :: 1TB Samsung 970 Pro m.2-NVMe :: 27" Acer Predator XB271HU :: Corsair RM850x :: Cooler Master C700m

Skjámynd

FreyrGauti
Tölvutryllir
Póstar: 663
Skráði sig: Fim 04. Des 2008 10:29
Reputation: 17
Staða: Ótengdur

Re: Jæja.....uppfærsla.

Pósturaf FreyrGauti » Þri 17. Feb 2015 19:19

gazzi1 skrifaði:já líst vel á þetta en er ekki viss um að þessi örgjörvakæling muni henta í þennann kassa þar sem að hún er alveg 15 cm á dýpt...þarf að athuga það. Ætli það sé ekki líka betra að finna móðurborð með 4 sata3 tengjum í staðin fyrir 2 sata3 og 2 sata2 eða skiptir það kannski ekki máli ef ég mun tengja stóru 3.5 hdd í sata2?


þessi kæling ætti nú að passa í kassann hjá þér svo lengi sem þú notir ekki viftu að ofan, hún nær ekki út fyrir móðurborðið.
Þú ert ekki að fara finna mun á Sata2 og Sata3 með venjulegum snúningsdiskum svo það ætti að vera í lagi, en ef þú ert tilbúinn að setja auka 6k í þetta þá er t.d. þetta móðurborð hjá Tölvutækni.
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=2806

Síðan ef þú ert smeikur með stærðina á kælingunni og ert tilbúinn að panta að utan þá væru þessar tvær flottar.
http://quietpc.co.uk/shuriken-big-2
http://quietpc.co.uk/nh-l9i

Ég hef pantað frá þeim og fékk mjög góða þjónustu.




Höfundur
gazzi1
Nörd
Póstar: 101
Skráði sig: Mán 23. Feb 2009 05:11
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Jæja.....uppfærsla.

Pósturaf gazzi1 » Fim 19. Feb 2015 12:45

En þetta móðurborð? http://www.computer.is/vorur/7978/

plús

intel i3 4150

plús

Samsung evo 850

er þetta ekki skothelt fyrir htpc? lagg- og höggtlaust? :)




Höfundur
gazzi1
Nörd
Póstar: 101
Skráði sig: Mán 23. Feb 2009 05:11
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Jæja.....uppfærsla.

Pósturaf gazzi1 » Fim 19. Feb 2015 12:50

Asrock, Msi, Asus, Gigabyte

er einhver munur á þessum borðum?
er þetta ekki aðalega bara tengimöguleikanir sem maður þarf að hafa í huga þegar að maður er að velja móðurborð?



Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2766
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 123
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Jæja.....uppfærsla.

Pósturaf zedro » Fim 19. Feb 2015 13:12

chaplin skrifaði:Hafa menn ekki ágætis reynslu af Raspberry Pi sem sjónvarpsvél? Alveg hljóðlaus og miklu meira en nógu öflug.

Er með Raspberry Pi (RPi) B+ 512MB útgáfuna og hún spilara (mest) ALLT! Elska þenna grip. Laggar að vísu hér og þar í valmyndinni.
RPi 2 er örugglega klikkuð enda margfalt hraðari og meira minni. RPi er klárlega besta Bang for your buck! Hef prófað nokkrar droid vélar
í gegnum tíðina og þau eru oftar en ekki helv. drasl.


Kísildalur.is þar sem nördin versla


Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4171
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1304
Staða: Tengdur

Re: Jæja.....uppfærsla.

Pósturaf Klemmi » Fim 19. Feb 2015 16:17

gazzi1 skrifaði:Asrock, Msi, Asus, Gigabyte

er einhver munur á þessum borðum?
er þetta ekki aðalega bara tengimöguleikanir sem maður þarf að hafa í huga þegar að maður er að velja móðurborð?


Áreiðanleikinn. Af minni reynslu munar miklu á áreiðanleika milli framleiðanda, sem er ástæðan fyrir því að ég vel ekkert annað en Gigabyte móðurborð fyrir mig og mína.

Auðvitað hafa aðrir sínar skoðanir á því hvort þetta sé rétt metið hjá mér, en ég byggi þetta á því að hafa starfað í ágætis tíma á verkstæði hjá verzlun sem seldi margar mismunandi týpur frá mörgum mismunandi framleiðendum, og að hafa annast að mestum hluta endursendingar þeirrar verzlunar vegna bilana.